Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Myndir: Tignarlegur borgarísjaki við bæjarstæðið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.9.2026 | 17:07 Myndir: Tignarlegur borgarísjaki við bæjarstæðið Tignarlegur, jakinn. Ljósmynd/Gunnar Rögnvaldsson Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Mikið hefur borið á borgarísjökum nálægt landsteinunum í sumar. Flestir hafa þeir komið af íseyju mitt á milli Íslands og Grænlands. Tveir slíkir eru nú á reiki úti fyrir Hrauni á Skaga á Norðurlandi. Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur við Háskóla Íslands, segir eðlilegt að verða var við borgarísjaka nálægt landinu á þessum árstíma, þó að það hafi verið meira um þá í sumar en síðustu ár. „Haustið er sá tími sem þeir koma, það er svona síðsumars og haustin, þá koma þeir helst upp að landinu, á meðan hafísinn sjálfur er yfirleitt á vorin og veturna,“ segir hún. Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur við Háskóla Íslands, segir eðlilegt að verða var við borgarísjaka nálægt landinu á þessum árstíma, þó að það hafi verið meira um þá í sumar en síðustu ár. Ljósmynd/Gunnar Rögnvaldsson Þrír og hálfur kílómetri að lengd „Núna í ár höfum við verið að sjá fleiri jaka og það er að hluta til vegna íseyju, sem er miklu, miklu stærri borgarísjaki. Stærðin á henni er núna þrír og hálfur kílómetri á lengd og rúmir tveir kílómetrar á breidd og svo tugir metra á þykkt,“ heldur Ingibjörg áfram. „Hana hefur rekið suður á bóginn núna meira og minna í allt sumar afskaplega hægt og hún hefur verið að taka alls konar snúninga þarna á Grænlandssundi. Það er búið að brotna stöðugt úr þeim jaka, þannig að það er svona þessi viðbót.“ Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst mynd af borgarísjaka fyrir norðan á föstudag og aftur á sunnudag, en þá tilkynnti skipverji á íslensku fiskiskipi að ísjakinn væri á þessum stað Ljósmynd/Gunnar Rögnvaldsson Aðspurð segir hún borgarísjakana sem sjást á myndunum ekki þykja mjög stóra. „Manni finnst hann alveg vera stór en svona fyrir sjófarendur að flokka borgarísjaka, þessa stóru, þá ertu kominn með miklu stærra fyrirbæri.“ Flestir hafa borgarísjakarnir komið af íseyju mitt á milli Íslands og Grænlands. Ljósmynd/Gunnar Rögnvaldsson Sjómenn látnir vita af staðsetningu Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst mynd af borgarísjaka fyrir norðan á föstudag og aftur á sunnudag, en þá tilkynnti skipverji á íslensku fiskiskipi að ísjakinn væri á þessum stað. Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, við mbl.is. „Eins og alltaf þegar þetta gerist þá er send út siglingaviðvörun frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bara til þess að láta þá sem eru á sjó vita af staðsetningu íssins,“ segir hann. Ljósmynd/Gunnar Rögnvaldsson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Glundroði hjá Salah og félögum Myndir: Tignarlegur borgarísjaki við bæjarstæðið Kemur vel til greina að fjarlægja klett Farinn frá Arsenal „Þetta má ekki endurtaka sig“ Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sterklega grunaður um íkveikju á Laugavegi „Treystum okkur ekki til að halda áfram með þessi sömu loforð“ „Þetta má ekki endurtaka sig“ Stjórnsýslukæru Sorpu vísað frá Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Eins og blaut tuska Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Mjóu dósirnar kláruðust „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun „Stærri bilun en við áttum von á“ Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Heildartekjur að meðaltali 875 þúsund Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Glundroði hjá Salah og félögum Myndir: Tignarlegur borgarísjaki við bæjarstæðið Kemur vel til greina að fjarlægja klett Farinn frá Arsenal „Þetta má ekki endurtaka sig“ Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta má ekki endurtaka sig“ Stjórnsýslukæru Sorpu vísað frá Einn af hverjum sex fólksbílum frá Kína Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Eins og blaut tuska Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Mjóu dósirnar kláruðust „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun „Stærri bilun en við áttum von á“ Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Heildartekjur að meðaltali 875 þúsund Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article