Innlent | mbl | 3.9.2026 | 18:00 20 milljarðar á 20 árum Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Setja bókamerki Málum sem komu á borð Samkeppniseftirlitsins fjölgaði nokkuð á milli ára, en að sama skapi fjölgaði þeim málum sem lokið var á árinu. Helmingur tíma eftirlitsins fer í samrunamál og rannsókn á ólöglegu samráði. Bæði núverandi og fyrrverandi stjórnarformenn stofnunarinnar gagnrýn lægri fjárframlög, en stofnunin telur sig þurfa að tæplega tvöfalda starfsmannafjölda sinn til að geta með fullnægjandi hætti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Samkeppniseftirlitið hefur að meðaltali lagt á sektir upp á einn milljarð á ári síðan stofnunin var sett á fót fyrir 20 árum. Þetta er meðal þess sem lesa má í ársskýrslu Samkeppniseftirlitsins fyrir síðasta ár, en skýrslan kom út í dag. Málum fjölgaði milli ára Á síðasta ári vann eftirlitið að 153 stjórnsýslumálum og fjölgaði þeim úr 124 árið á undan. Eftirlitið lauk hins vegar 89 málum á árinu samanborið við 68 mál árið 2024. Málafjöldi Samkeppniseftirlitsins árin 2024 og 2025. Skjáskot/Samkeppniseftirlitið Um 30% af ráðstöfunartíma starfsmanna stofnunarinnar fór í samrunamál á síðasta ári. Þarf eftirlitið að taka afstöðu til slíkra mála innan lögbundins tímafrests og því nýtur málaflokkurinn forgangs umfram önnur mál stofnunarinnar. 21% tímans fór í rannsókn á ólöglegu samráði, 18% í rannsókn á mögulegri misnotkun á markaðsráðandi stöðu, 8% í athuganir á opinberum samkeppnishömlum og 7% í greiningar á mörkuðum og á stjórnunar- og eigendatengslum í íslensku atvinnulífi. Telja sig þurfa tæplega tvöfalt fleiri starfsmenn Bæði í inngangi fyrrverandi og núverandi stjórnarformanna og í ársskýrslunni sjálfri er vikið að fjárveitingum til embættisins. Þannig er vakin athygli á að fjárframlög hafi lækkað um 20% á föstu verðlagi síðasta áratuginn, en að umsvif í efnahagslífinu hafi á sama tíma aukist um 35-40%. Er rifjað upp að Samkeppniseftirlitið hafi fyrir 3 árum unnið greiningu miðað við lögbundið hlutverk sitt og þá talið sig þurfa á að skipa 42 ársverkum til að sinna þessu lögbundna hlutverki. Í lok síðasta árs voru 22 fastráðnir og tveir lausráðnir hjá stofnuninni í 24,5 ársverkum og fækkaði um 5 stöður á árinu vegna skertra fjárheimilda. Má því ráða að stofnunin telji sig þurfa að bæta við tæplega 20 stöðum til að geta uppfyllt hlutverk sitt samkvæmt lögum. 90% samruna heimilaðir án íhlutunar Í ársskýrslunni er farið yfir þau mál sem voru til skoðunar á árinu, en 90% samrunamála sem komu til kasta stofnunarinnar voru heimilaðir án íhlutunar. Engir samrunar voru ógiltir, en þrjár samrunatilkynningar voru afturkallaðar á öðrum fasa rannsóknar og tveir samrunar heimilaðir með skilyrðum. Samtals var 40 samrunamálum lokið á árinu. Frá stofnun Samkeppniseftirlitsins árið 2005 til ársloka 2025 hafa 151 málum eftirlitsins verið vísað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Þá hafa 45 dómar eða úrskurðir gengið í héraðsdómi (fyrir utan húsleitarúrskurði), 9 dómar fallið í Landsrétti og 38 dómar fallið í Hæstarétti. Líkt og sjá má á meðfylgjandi grafi sem embættið tók saman hefur ákvörðun Samkeppniseftirlitsins verið staðfest að hluta eða öllu leyti í 70-84% tilvika, en felld úr gildi eða hafnað í 16-27% tilfella. Niðurstöður áfrýjunarnefndar og dómstóla frá stofnun Samkeppniseftirlitsins árið 2005. Skjáskot/Samkeppniseftirlitið Milljarður á ári Samkeppniseftirlitið hefur heimild til að beita sektarákvæðum. Samkvæmt samantek eftirlitsins hafa verið lagðar á sektir upp á 19,7 milljarða að raunvirði frá árinu 2005 þegar eftirlitið var stofnað, en ef miðað er við gildistöku samkeppnislaga árið 1993 hafa fyrirtæki hlotið sektir upp á 24,24 milljarða. Var fyrsta sektin lögð á árið 2001. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Varð heimsmeistari í sumar og er nú hættur 20 milljarðar á 20 árum Fordæmir ljót ummæli á samfélagsmiðlum Þungt haldinn eftir byssuskot Glundroði hjá Salah og félögum Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hópur“ af vitnum kallaður til lögreglu Búum við sambærilegt ástand og í kalda stríðinu Álíka margir farþegar í Keflavík og 2023 Leita að vitnum eftir meiriháttar skemmdarverk Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Eins og blaut tuska Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Mjóu dósirnar kláruðust Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ „Stærri bilun en við áttum von á“ „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Heildartekjur að meðaltali 875 þúsund Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Varð heimsmeistari í sumar og er nú hættur 20 milljarðar á 20 árum Fordæmir ljót ummæli á samfélagsmiðlum Þungt haldinn eftir byssuskot Glundroði hjá Salah og félögum Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Krefjast að skipið fái að fara leiðar sinnar Vilja geta gert eignir upptækar án sakfellingar Danir vara við áformum Rússa „Hópur“ af vitnum kallaður til lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Eins og blaut tuska Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Mjóu dósirnar kláruðust Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ „Stærri bilun en við áttum von á“ „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Heildartekjur að meðaltali 875 þúsund Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar