Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjársvelt eftirlit hressir upp á ásýndina

Read Full Article →

Eitt besta skemmtiefni sem hrafnarnir komast yfir á ári hverju er ársskýrsla Samkeppniseftirlitsins og var því sérstakt fagnaðarefni er ársskýrsla stofnunarinnar, sem Páll Gunnar Pálsson stýrir, kom út á dögunum. Í nýju ársskýrslunni er sem áður kvartað yfir meintum skorti á fjárveitingum til eftirlitsins og rifjað upp að samkvæmt eigin greiningu telji það sig þurfa á 42 ársverkum að halda til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Ársverk síðasta árs voru 24,5 og kallar stofnunin því eftir nær tvöföldun á starfsmannafjöldanum. Það skemmtilegasta við ársskýrsluna er þó umfjöllun um endurnýjun ásýndar og merkis hinnar fjársveltu stofnunar. Þar er nýrri ásýnd og hönnun merkisins lýst með háfleygum hætti. Það skýtur skökku við að stofnun sem kvartar undan auraleysi geti leyft sér að eyða í slíkt gæluverkefni. Þá virðist stofnunin loks hafa tekið skammstöfunina SKE í sátt en með nýju merki var umrædd skammstöfun tekin upp í stað SE, sem þó var skammstöfunin sem einungis stofnunin sjálf þráaðist við að nota. Huginn og Muninn er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article