Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dagur Árni með tólf mörk – Íslandsmeistararnir byrja á sigri

Read Full Article →

Fyrstu leikir tímabilsins í Olísdeild karla í handbolta voru í kvöld. HK 28-37 KA Selfoss 30-34 Valur. KA-menn gerðu góða ferð í Kópavoginn og unnu HK með 9 marka mun. Norðanmenn leiddu megnið af fyrri hálfleik þó HK hafi komist yfir um tíma. KA var þó yfir í hálfleik, 13-15. Í seinni hálfleik tók KA svo öll völd og sigurinn var aldrei í hættu. Dagur Árni Heimisson, sem kom aftur til uppeldisfélagsins frá Val í sumar, skoraði 12 mörk Akureyringa. Andri Þór Helgason var markahæstur í HK með 7 mörk. Arnór Snær Óskarsson var markahæsti maður Valsmanna í sigri þeirra á Selfossi með 10 mörk en Gunnar Róbertsson var ekki langt undan með 9 mörk og 8 stoðsendingar þar að auki. Hákon Garri Gestsson skoraði 7 mörk fyrir Selfoss. Fyrsta umferðin heldur áfram á morgun en klárast ekki fyrr en á sunnudag.

Share this article