Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lokaði sig af á heimili sínu og gerði sjö þúsund verk

Read Full Article →

Það er ekki á hverjum degi sem nær óþekktur listamaður uppgötvast í íslensku samfélagi, hvað þá maður sem setur mark sitt á listasöguna með einkennandi abstraktverkum sem hann vann í einrúmi í nær fjóra áratugi. Í síðustu viku var opnuð í Hafnarborg einkasýning Frosta Fjalars, myndlistarmanns sem lærði í Kaupmannahöfn og tók um nokkurra ára bil þátt í listasenunni hér heima en dró sig svo alfarið í hlé fjarri skarkala senunnar og dvaldi að mestu í sjálfskipaðri einangrun. Hann hélt þó ótrauður áfram að skapa og vann að verkum sínum af innri þörf og áhuga. Sýningin Bjarmaband veitir innsýn í ævistarf listamannsins Frosta Fjalars sem hefur verið flestum hulið, þar til nú. Að sýningunni og nýútkominni bók um Frosta unnu tvær konur sem uppgötvuðu hann af hendingu, þær Ásdís Spanó og Kristín Ásta Kristinsdóttir. Í Víðsjá er rætt við Ásdísi um Frosta Fjalar. Í Hafnarborg er einkasýning á verkum myndlistarmannsins Frosta Fjalars sem fór í sjálfskipaða einangrun fyrir 35 árum og vann að þúsundum verka. Algjör tilviljun réði því að verk hans uppgötvuðust. Í þættinum greinir Ásdís frá þeirri tilviljunarkenndu atburðarás sem varð til þess að hún uppgötvaði listamanninn. „Það var óvænt. Vinkona mín Kristín Ásta Kristinsdóttir ljósmyndari var á ferð sinni úti á Granda og sá eldri mann sem hafði dottið. Hún ákvað að stöðva bifreið sína og aðstoða hann á fætur og bauðst til að keyra hann heim. Hann segist vera myndlistarmaður og bauð henni inn að sjá verkin sín og hún fór inn og varð steinhissa enda líktist þetta fremur vinnustofu en heimili.“ Á sjöunda þúsund verka Síðan hitti Ásdís Frosta Fjalar og segir heimsóknina eftirminnilega. Málverk og vatnslitaverk voru upp um alla veggi og inni í öllum herbergjum, í sérsmíðuðum hillum og rekkum. Alls voru þetta sex þúsund vatnslitaverk og átta hundruð málverk. „Þannig hófst þessi vegferð og okkar vinskapur.“ Frosti Fjalar hét áður Jakob Jónsson en hann breytti nafni sínu fyrir átta árum. Hann lærði verkfræði í Svíþjóð og hóf myndlistarnám í Danmörku tæplega þrítugur. Fimm árum eftir að hann kom heim úr námi sýndi hann sína fyrstu einkasýningu og fékk góðar viðtökur. Árið 1991 sýndi hann síðustu sýninguna sína. Eftir það dró hann sig í hlé og er Bjarmaland fyrsta sýningin í 35 ár. Lést mánuðinn fyrir opnun „Fljótlega eftir að við kynntumst spurðum við hann hvort hann væri ekki til í að vera með sýningu en það var mikilvægt fyrir hann að það yrði á safni og einkasýning á verkum hans.“ Frosti Fjalar gladdist því mjög þegar samþykkt var að halda sýningu í Hafnarborg og tók þátt í að velja verkin. Þá var hann kominn á hjúkrunarheimili og hafði mestar áhyggjur af því að þurfa að mæta á sýninguna með göngugrind eða í hjólastól. Frosti Fjalar lést í júlí og náði ekki opnun sýningarinnar. Hann var mjög spenntur og beið eftir þessu sem hann missir því miður af. Tók ákvörðun um að loka sig af Stóra spurningin sem liggur í loftinu er af hverju þessi listamaður dró sig í hlé. Ásdís ræddi þau mál við Frosta Fjalar. „Hann í rauninni sagði að hann hafi hreinlega viljað einbeita sér að listinni og nýta sinn tíma vel til að vinna myndlist. Hann var ekki með þessa þörf til að sýna verkin eða láta bera eitthvað á sér, vera meðal listamanna. Í raun var þetta ákvörðun sem hann tók, að loka sig inni á heimili sínu en einbeittur að vinna að myndlist sinni.“ Í Víðsjá er rætt ítarlega við Ásdísi um listamanninn og verk hans auk þess sem rætt er við listfræðinginn Aðalstein Ingólfsson. Þá má heyra samtalsbúta milli Ásdísar og Frosta þar sem Frosti tjáir sig um verk sín. Sýningin Bjarmaband stendur yfir í Hafnarborg til 1. nóvember.

Share this article