Innlent | mbl | 4.9.2026 | 16:08 Allir eru einhvers konar „nörd“ Ævintýraverur af ýmsu tagi setja svip sinn á hátíðina Heima og himingeima. Setja bókamerki Bókasafni Hafnarfjarðar verður breytt í fimm ólíka ævintýraheima um helgina þegar búninga- og leikjahátíðin Heimar og himingeimar fer þar fram. Yfir 50 sjálfboðaliðar koma að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar. Heimar og himingeimar sameina búninga, leiki og sköpunargleði í Bókasafni Hafnarfjarðar. Mikill undirbúningur hefur staðið yfir í Bókasafni Hafnarfjarðar síðustu daga þar sem yfir 50 sjálfboðaliðar hafa unnið að því að breyta safninu í fimm ólíka ævintýraheima. Tilefnið er búninga- og leikjahátíðin Heimar og himingeimar sem hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Þar verður meðal annars að finna fantasíuheim, sögulegan heim og sérstakt smiðjurými auk Stjörnuspillisins, geimskips 501. herdeildarinnar sem vakti mikla athygli á hátíðinni í fyrra. „Við verðum hér fram á nótt, en ég get alveg sagt þér að það er svona „jólastemming“ í loftinu hjá okkur. Bara geimskip og ævintýratjöld í staðinn fyrir jólatré,“ segir Unnur Helga Möller, verkefnastjóri Heima og himingeima. Gestir hátíðarinnar leggja mikið í búningana og þar kennir ýmissa grasa. Geimskipið verður heil bækistöð Geimskip 501. herdeildarinnar verður reist á nýjum stað í ár og verður hluti af heilli bækistöð í nýju húsnæði Bókasafns Hafnarfjarðar í Firði. Gestir geta gengið inn í skipið og upplifað heim sem sækir innblástur í Stjörnustríð. Meðlimir 501. herdeildarinnar mæta að sjálfsögðu til leiks í búningum úr Stjörnustríðs-heiminum. Skipið er smíðað af sjálfboðaliðum og vakti að sögn aðstandenda slíka athygli á síðustu hátíð að hópnum barst boð um að koma með það á erlenda hátíð. „Þau eru náttúrulega bara frábær, þetta gengi,“ segir Unnur. „Hvort sem það er geimskip eða ævintýrakrá, eða felustaðir hausaveiðara – og ég er ekkert að stoppa þau í sköpunargleðinni. Það er bara gaman að vera smá klikkuð saman.“ Fjölbreytileikinn fær að njóta sín á Heimum og himingeimum þar sem gestir geta stigið inn í ólíka ævintýraheima. 501. herdeildin er alþjóðlegur félagsskapur áhugafólks sem smíðar og klæðist nákvæmum búningum úr Star Wars-heiminum. Íslenska deildin tekur þátt í hátíðinni. „Það er okkar að búa til þennan stað“ Sjálfboðaliðarnir koma að flestum þáttum hátíðarinnar, meðal annars smíði leikmynda og leikmuna, undirbúningi búninga og smiðja og móttöku gesta. Unnur segir mikilvægan hluta hátíðarinnar vera að skapa vettvang þar sem fólk geti komið saman um áhugamál sín og látið sköpunargleðina njóta sín. „Þetta er þeirra heimur. En það er samt mikilvægasti hlutinn af áhugamálinu að opna það fyrir öðrum. Allir eru einhvers konar „nörd“ og allt of marga langar til að gera eitthvað utan rammans en einhvern veginn finna ekki stað til að gera slíkt.“ Hún segir fólk stundum feimið eða óvisst um hvar það geti fundið slíkan vettvang. „Það er okkar að búa til þennan stað – fyrir alla.“ Heimar og himingeimar standa yfir dagana 4.–6. september. Á hátíðinni verða yfir 30 smiðjur og viðburðir í fimm ævintýraheimum. Aðgangur og þátttaka eru ókeypis. Nánari upplýsingar má fá um hátíðina á vefsíðu hennar . Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sérsveitin kölluð til á Akureyri Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Vinnur lúxusbíl fyrir að fara holu í höggi Allir eru einhvers konar „nörd“ Eitt fæðubótarefni getur ekki leyst vandann Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spursmál: Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Draga úr gjaldtöku bílastæða Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Draga úr gjaldtöku bílastæða „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Sérsveitin kölluð til á Akureyri Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Vinnur lúxusbíl fyrir að fara holu í höggi Allir eru einhvers konar „nörd“ Eitt fæðubótarefni getur ekki leyst vandann Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Draga úr gjaldtöku bílastæða Finnbjörn kveður á komandi þingi ASÍ Æfingin á Íslandi gekk vonum framar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Draga úr gjaldtöku bílastæða „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar