Stjórnir Gildis-lífeyrissjóðs og Festu-lífeyrissjóðs hafa samþykkt samning um sameiningu sjóðanna og var hann undirritaður í dag. Samningurinn verður lagður fyrir aukaársfundi beggja sjóða til staðfestingar í byrjun nóvember. Fundur Festu er fyrirhugaður 4. nóvember og fundur Gildis daginn eftir, 5. nóvember. Gangi sameiningin eftir verður til næststærsti lífeyrissjóður landsins með um 1.600 milljarða króna í eignum, miðað við stöðu sjóðanna í árslok 2025. Sameinaður sjóður yrði jafnframt sá fjölmennasti á landinu. Um 285 þúsund sjóðfélagar eiga réttindi hjá Gildi og um 116 þúsund hjá Festu, eða samtals rúmlega 400 þúsund réttindahafar. Formlegar viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna hófust í byrjun júní. Stjórnir þeirra telja að sameining geti skapað margvíslegan ávinning fyrir sjóðfélaga, meðal annars með aukinni stærðarhagkvæmni, sterkari rekstrargrundvelli og auknum burðum til tæknilegrar og stafrænnar þróunar. Þá telja stjórnirnar að stærri sjóður geti haft betri forsendur til langtímaávöxtunar og styrkt getu hans til að veita sjóðfélögum þjónustu til framtíðar. Í tilkynningu kemur jafnframt fram að sjóðirnir séu um margt sambærilegir, meðal annars hvað varðar samsetningu sjóðfélagahópa, réttindakerfi og tryggingafræðilegar forsendur. Það eigi að auðvelda samþættingu starfseminnar verði sameiningin samþykkt. Fyrir hönd Gildis undirrituðu samninginn Perla Ösp Ásgeirsdóttir formaður stjórnar og Bjarnheiður Hallsdóttir stjórnarmaður. Fyrir hönd Festu undirrituðu Silja Eyrún Steingrímsdóttir formaður stjórnar og Halldór Kristinsson varaformaður. Við undirritunina voru einnig Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri Gildis, og Gylfi Jónasson, framkvæmdastjóri Festu.