Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sigur hjá FH í fyrsta leiknum undir stjórn Arons

  • What: FH won against Stjörnur in a handball match
  • Impact: Sports result in a local league
Read Full Article →

FH-ingar voru sterkara liðið allan leikinn á móti Stjörnunni í 1. umferð Olísdeildar karla í handbolta í kvöld og leiddu með fjögurra marka mun í hálfleik, 21-17. Munurinn jókst svo í seinni hálfleiknum og FH vann að lokum sjö marka sigur, 38-31. Hornamaðurinn Símon Michael Guðjónsson var markahæstur FH-inga í kvöld með átta mörk en hjá Stjörnunni skoraði Ísak Logi Einarsson líka átta mörk. Bæði lið voru með nýja aðalþjálfara í brúnni frá síðustu leiktíð. Aron Pálmarsson tók við FH í vor af Sigursteini Arndal. Þeir höfðu reyndar sætaskipti því Aron var aðstoðarþjálfari Sigursteins seinni hluta síðustu leiktíðar og nú er Sigursteinn orðinn aðstoðarþjálfari Arons. Þá tók Sverrir Eyjólfsson við Stjörnunni undir blálok síðustu leiktíðar.

Share this article