Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Efast um að þetta sé staður sem Tyrkirnir vilja vera á“

  • What: Iceland faces Turkey in a basketball match
  • Impact: No direct impact on regular users
Read Full Article →

Ísland mætir ógnarsterku liði Tyrklands í undankeppni heimsmeistaramóts karla í körfubolta í kvöld. Tyrkir hafa unnið alla leiki sína hingað til og eru komnir langleiðina á mótið. Körfuboltasérfræðingurinn og þjálfari karlaliðs Vals, Finnur Freyr Stefánsson, telur að Ísland sé ekki óskaáfangastaður Tyrkja. Hann telur að stemningin í Laugardalshöll í kvöld verði algjört lykilatriði. Þá henti það íslenska liðinu vel að vera ekki sigurstranglegra. Meðal þess sem hann fer einnig yfir: Hversu raunhæfur er HM draumurinn? Hvað fór úrskeiðis gegn Serbíu? Hversu sterkir eru Tyrkir? Vilja alls ekki vera hér Hver er lykillinn að því að vinna Tyrki í kvöld? Finnur horfir þar helst á orkustig Íslendinga innan sem utan vallar. Þá eru gestirnir svo gott sem tryggðir með sæti sitt á HM. Því gæti Íslandsför á þeim tímapunkti verið óspennandi. „Þeir eru á toppnum og við getum sagt það bara að þeir eru búnir að tryggja sig áfram í lokakeppnina. Eigum við ekki að segja æðruleysi og orka hjá okkur, á móti smá værukærð og þreytu eftir ferðalag til Íslands hjá þeim? Ég svona efast um það að þetta sé sá staður sem Tyrkirnir vilja helst vera á akkúrat núna.“ „Það þarf að vera ákveðið æðruleysi. Við megum ekki vera eitthvað stressaðir og að velta okkur of mikið upp úr mistökum. Við þurfum að keyra á þetta og vera svolítið óþolandi andstæðingur fyrir Tyrkina.“ Gefur síðasti sigur okkur eitthvað? Ísland vann Tyrkland eftirminnilega vorið 2025, þegar liðið tryggði sæti sitt á EM. Gefur það íslenska liðinu eitthvað? Finnur telur að það henti Íslandi vel að vera ekki sigurstranglegri aðilinn. „Já, já, það gefur eitthvað. En ég held að það sé alveg óháð því hvort þeir unnu Tyrki eða eitthvað annað. Við höfum sýnt og sannað það á undanförnum árum að við höfum unnið stórþjóðir í körfubolta. Við höfum verið að ná frábærum úrslitum. Það er ekkert þannig að við verðum litlir í okkur. Það er enginn efi um það að við getum unnið.“ „Við höfum yfirleitt verið bestir í þessari aðstöðu, þar sem við erum litla þjóðin. Það hefur alltaf hentað okkur best að vera með „underdog mentality“. Hversu sterkt lið eru Tyrkir? Tyrkir eru ein fremsta körfuboltaþjóð Evrópu og tróna á toppi riðils Íslands en Ísland er í fimmta sæti. Finnur telur að Tyrkirnir séu mögulega sterkari líkamlega en Serbía og að Laugardalshöll þurfi að reynast íslenska liðinu ansi vel. „Við erum að fara að mæta alveg gríðarlega sterkri körfuboltaþjóð, með NBA-leikmenn og leikmenn sem spila í bestu liðum Evrópu. Þeir eru búnir að vinna alla leiki sína í undankeppninni og náttúrulega slátruðu Litáen á föstudaginn.“ Við erum ekki að fara að mæta liði sem er neitt síðra heldur en þetta serbneska lið. Mögulega eru þeir með fleiri íþróttamenn í fleiri stöðum. Við verðum að treysta á heimavöllinn, að við séum að fá smá orku þar. Við þurfum bara að hitta á algjöran dúndurleik ef við ætlum að eiga séns.“ Hvað vantaði upp á gegn Serbíu? Ísland tapaði að lokum með 29 stigum gegn Serbíu í síðasta leik. Strákarnir léku vel í þrjá leikhluta en Serbarnir stungu af í lokaleikhlutanum. Finnur telur að liðið hafi orðið undir í þeim hlutum leiksins sem tengjast ákefð. „Mér fannst við spila heilt yfir mjög vel. Við verðum undir í „hustle“ þáttum leiksins, litlu hlutunum. Við erum undir í fráköstunum og erum að fá allt of mikið af körfum á okkur úr hraðaupphlaupum. Síðan þegar fór að líða á leikinn varð ákvarðanataka okkar slakari heldur en var í fyrri hálfleiknum. Svona frábærar þjóðir eins og Serbar og Tyrkir í kvöld munu refsa mjög grimmt fyrir það. Við þurfum að ná að halda vel á spöðunum þegar kemur að þessum þáttum — fráköstunum og töpuðum boltum.“ Hversu nálægt er HM-draumurinn? Ísland hefur þrisvar komist á Evrópumótið en aldrei í heimsmeistarakeppni. Liðið var grátlega nálægt því að komast inn á mótið 2025. En hversu raunhæfur er draumurinn? Finnur er raunsær um stöðuna. „HM-draumurinn er ansi fjarlægur ef maður væri alveg hreinskilinn, ef maður skoðar stöðuna. Það eru þrjú lið sem fara áfram. Tyrkir eru með sjö sigra og Ítalir og Serbar með fimm, þegar þrír leikir eru eftir. Við og Bosnía erum með þrjá sigra en þessi lið eiga eftir að mætast innbyrðis.“ „Það er ljóst að við þurfum að reyna að ná að slá annaðhvort Ítali eða Serba út úr þessum topp þremur.“ Hann telur að Ísland þurfi helst að vinna alla leiki sína á heimavelli. „Það þarf ansi margt að ganga upp. Ég held að það sé algjört lágmark að vinna þrjá heimaleiki til að eiga möguleika. En það er gamla klisjan, að taka bara einn leik í einu, vera ekkert að hugsa of mikið um endamarkið. Við þurfum að vinna þennan leik í kvöld og vera svo klárir í næsta leik í nóvember. Það er hugarfarið sem þeir hafa verið með, enga uppgjöf og að setja gasið í botn. Láta vaða á þetta,“ sagði hann að lokum. Leikurinn í kvöld hefst 19:30 og er sýndur á RÚV2. Stofan hitar upp frá 19:00.

Share this article