Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.9.2026 | 22:50 „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Setja bókamerki Íbúar í grennd við bálstofuna í Fossvogi eru orðnir langþreyttir á þeim mikla reykjarmekki sem fylgir líkbrennslunum. „Við íbúarnir erum að kvarta reglulega. Þetta er náttúrulega frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg,“ segir Thelma Ámundadóttir, íbúi í grennd við bálstofuna, í samtali við mbl.is en íbúð Thelmu fylltist af reyk um klukkan 18 í kvöld. Thelma segir ofnana sem notaðir eru til brennslu löngu úr sér gengna, en þeir eru nær áttatíu ára gamlir. „Það eru engar mengunarvarnir til staðar og ekkert sem síar reykinn. Núna var vindáttin mér ekki í hag og íbúðin mín fylltist af reyk,“ segir Thelma. Frétt af mbl.is „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Staðsetningin ekki vandamálið Að sögn Thelmu er staðsetning bálstofunnar ekki vandamál heldur búnaðurinn. „Þetta er náttúrulega bara lífið en hafðu búnað sem virkar. Það er búnaðurinn sem er að fara í taugarnar á íbúum.“ Til stendur að færa rekstur bálstofunnar upp í Gufuneskirkjugarð þar sem mengunarvarnarbúnaði verður ekki ábótavant en það er allsendis óvíst hvenær þess má vænta. Samkvæmt svari Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar við nýlegu kvörtunarbréfi íbúa er áætlað að hefja starfsemina á þessum nýju slóðum „í lok þessa árs eða á næsta ári“. Þá er áréttað í svarinu að þangað til verði bálstofan að starfa í Fossvogi þar sem því miður sé ekki hægt að koma fyrir mengunarbúnaði. Frétt af mbl.is Bálstofan starfi á nóttunni Starfsskilyrði að reykur sé ekki sýnilegur Í ágúst í fyrra nýtti Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sér heimild til að endurskoða starfsleyfi fyrir bálstofu Kirkjugarða Reykjavíkur í Fossvogi. Leyfið gilti aðeins í eitt ár eða til 19. ágúst þessa árs og fól í sér hert skilyrði sem miðuðu að því að draga úr mengunarálagi frá starfseminni. Á meðal skilyrða var að reykur væri ekki sýnilegur úr skorsteini meðan á líkbrennslu stæði og að bálfarir færu aðeins fram frá klukkan 17:30 að kvöldi til klukkan 6:30 að morgni. Dökkan reyk leggur frá bálstofunni þegar líkbrennsla fer fram. Ljósmynd/Reykjarvíkurborg Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fimmtánda banaslysið frá 2020 „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Samdi við Coventry eftir lok gluggans Allir í treyjum fyrir góðan málstað Sjö marka sigur í fyrsta leik Arons Umræðan Stóra verkefnið bíður Erindi til alþingismanna Íslendinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT RÚV eigi ekki að „bítast um molana“ Finnbjörn kveður á komandi þingi ASÍ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Sérsveitin kölluð til á Akureyri „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Stöðvaður á 190 km hraða Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Fimmtánda banaslysið frá 2020 „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Samdi við Coventry eftir lok gluggans Allir í treyjum fyrir góðan málstað Sjö marka sigur í fyrsta leik Arons Umræðan Stóra verkefnið bíður Erindi til alþingismanna Íslendinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hagtölur þjóðarinnar færðar yfir Borgartúnið Allt svart í Keiluhöllinni Æfingin á Íslandi gekk vonum framar Írskir miðlar fjalla um banaslysið Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Sérsveitin kölluð til á Akureyri „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Stöðvaður á 190 km hraða Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn

Share this article