Innlent | mbl | 5.9.2026 | 14:46 Eina leiðin væri að hætta að brenna lík Bálstofan í Fossvogi er eina starfandi líkbrennsla landsins. mbl.is/Eyþór Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, harmar þau óþægindi sem íbúar í grennd við bálstofuna í Fossvogi verða fyrir vegna starfsemi hennar og segir að reynt sé að taka eins mikið tillit til þeirra og kostur sé á. Hann bendir þó á að jafnvel þó svo að Kirkjugarðar Reykjavíkur reki bálstofuna, sem er sú eina á landinu, séu endurnýjun á mengunarvarnarbúnaði og bygging nýrrar bálstofu á ábyrgð ríkisins. Kirkjugarðarnir hafi bent á þörfina á umbótum í meira en 20 ár. Ingvar Stefánsson. Ljósmynd/Aðsend Mengunarvarnarbúnaður of fyrirferðamikill Í gær ræddi mbl.is við einn íbúa í grennd við bálstofuna sem sagði að íbúar í nágrenninu væru orðnir langþreyttir á þeim mikla reykjarmekki sem fylgir starfi bálstofunnar. Íbúðir þeirra fyllist reglulega af reyk frá henni þegar vindátt er óhagstæð. Búnaðurinn í bálstofunni er hátt í 80 ára gamall og úr sér genginn. Ný bálstofa sem verður staðsett í Gufuneskirkjugarði er í farvatninu og er stefnt á að hún verði opnuð fyrir lok næsta árs að sögn Ingvars. Spurður hvort til standi að breyta einhverju varðandi fyrirkomulagið á bálförum í núverandi bálstofu þangað til segir hann að eini möguleikinn væri einfaldlega að hætta bálförum þar til ný bálstofa hafi verið reist. Það væri hins vegar illgerlegt þar sem um helmingur líka hér á landi sé nú brenndur og að líkhúsin yrðu fljót að fyllast. Þá segir hann að ekki sé hægt að endurnýja mengunarvarnarbúnaðinn í núverandi bálstofu þar sem slíkur búnaður sem mætir nútímastöðlum rúmist ekki í núverandi húsnæði. Frétt af mbl.is „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Harma óþægindin „Þetta er mikilvægur innviður en það hefur ekki verið á okkar valdi að endurnýja mengunarvarnarbúnað eða að reisa nýja bálstofu,“ segir Ingvar. „Það hefur verið ákvörðun stjórnvalda að bíða með þetta í mörg ár, við höfum bent á þörfina fyrir nýja bálstofu í meira en 20 ár.“ Að lokum segir Ingvar að Kirkjugarðar Reykjavíkur harmi mjög þau óþægindi sem íbúar í nágrenni við bálstofuna í Fossvogi verða fyrir. „Við viljum þetta náttúrulega alls ekki og við reynum að taka eins mikið tillit og við getum og þess vegna erum við að brenna á kvöldin og nóttunni, en því miður getur þetta komið fyrir í einhverjum tilfellum.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Beint: Breiðholtið er hvítt og blátt Toppliðið í vandræðum með botnliðið Eina leiðin væri að hætta að brenna lík „Þetta er bara byrjunin“ Íslenskur þari og hefðir Hong Kong Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Rafmagn komið aftur á Mest lesið Í gær Í vikunni Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Sjö á slysadeild eftir árekstur Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Beint: Breiðholtið er hvítt og blátt Toppliðið í vandræðum með botnliðið Eina leiðin væri að hætta að brenna lík „Þetta er bara byrjunin“ Íslenskur þari og hefðir Hong Kong Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt svart í Keiluhöllinni Kos segir 47% styðja aðild Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Tveir handteknir af sérsveitinni á Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Sjö á slysadeild eftir árekstur Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn