Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Öflugt frístundastarf

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.9.2026 | 7:00 Öflugt frístundastarf Hildur Björnsdóttir Setja bókamerki Úr ólíkum áttum Pistill Hildar Björnsdóttur úr Morgunblaðinu Margt bendir til þess að blása þurfi til sóknar hvað varðar æsku landsins. Íslenska æskulýðsrannsóknin sýnir hvernig hlutfall ungmenna sem meta andlega heilsu sína góða fer lækkandi. Þá sýna mælingar ítrekað fram á hnignandi árangur í skólastarfi. Vísbendingar eru uppi um aukna áfengisneyslu meðal ungmenna og félagsfærni fer jafnvel hrakandi. Víða þarf að gera betur – en víða er unnið gott starf sem má efla og undirstrika. Í Reykjavík er starfrækt öflugt frístunda- og félagsstarf fyrir börn og ungmenni. Hafa rannsóknir ítrekað sýnt hvernig skipulögð þátttaka í slíku starfi getur haft jákvæð áhrif á sjálfsmynd, félagsfærni og námsárangur barna, auk þess að hafa ríkt forvarnargildi. Mælast áhrifin jákvæðari eftir því sem umgjörðin reynist faglegri. Nýverið samþykkti borgarráð breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs sem innleiddar verða á næstu mánuðum. Með breytingunum sem snúa að frístundastarfi sameinast fagleg forysta og sérþekking sem áður dreifðist á fjórar sjálfstæðar stjórnsýslueiningar í eina öfluga skrifstofu frístundamála. Samræmist breytingin markmiðum nýs meirihluta um öflugri þjónustu við börn og ungmenni – og skilvirkari og þjónustumiðaðri stjórnsýslu. Áfram starfa félagsmiðstöðvar og frístundaheimili í óbreyttri mynd um alla borg en þau eru meðal öflugustu innviða borgarinnar fyrir börn og ungmenni. Starfsemi þeirra fer af stað af krafti þetta haustið samhliða skólabyrjun – og er börnum og ungmennum tekið fagnandi í starfið. Í sumar ákvað nýr meirihluti í borginni að lengja opnunartíma frístundaheimila, svo koma mætti til móts við þarfir barnafjölskyldna. Að auki var ákveðið að lengja opnunartíma sundlauga um helgar svo ungmennin okkar hefðu góðan og uppbyggilegan samastað á kvöldin. Breytingar sem þessar kosta vissulega fjármuni – en stjórnmál snúast um forgangsröðun fjármuna og við ætluðum að færa fjármunina úr kerfinu og nær fólkinu. Rekstrarumhverfi Reykjavíkurborgar kallar á ábyrgar ákvarðanir. Bregðast þarf við fyrirséðum hallarekstri með skýrum aðgerðum. Áætlað er að þær stjórnskipulagsbreytingar á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði sem innleiddar verða á næstu mánuðum muni skapa hagræði í rekstri borgarinnar sem nemur 900 milljónum árlega. Markmiðið er skýrt: einfaldara og skilvirkara stjórnkerfi, ábyrg fjármálastjórn og um leið öflug og traust þjónusta við börn og ungmenni í hverfum borgarinnar. Þannig tryggjum við bæði sjálfbæran rekstur til framtíðar og góða þjónustu við æsku landsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hin grimmilega lífsbarátta laxaseiða Tveir handteknir vegna líkamsárásar Treysta ekki kærasta Aniston Kos segir 47% styðja aðild Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumar Breyta veglínu Norðurljósavegar Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Sjö á slysadeild eftir árekstur Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Rafmagn komið aftur á Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Allt svart í Keiluhöllinni Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Hin grimmilega lífsbarátta laxaseiða Tveir handteknir vegna líkamsárásar Treysta ekki kærasta Aniston Kos segir 47% styðja aðild Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Hagtölur þjóðarinnar færðar yfir Borgartúnið Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Sjö á slysadeild eftir árekstur Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Rafmagn komið aftur á Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Allt svart í Keiluhöllinni Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn

Share this article