Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kjarkur til að stefna hátt

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.7.2026 | 8:00 Kjarkur til að stefna hátt Hildur Björnsdóttir Setja bókamerki Pistill Hildar Björnsdóttur úr Sunnudagsblaðinu Undanfarna tvo áratugi hefur grundvallarfærni íslenskra grunnskólanema farið hnignandi í alþjóðlegum samanburði. Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hefur varað við þróuninni og bent á að hún geti dregið úr framleiðni og lífsgæðum til framtíðar. Tæplega helmingur drengja og þriðjungur stúlkna hefur ekki náð grunnfærni í lesskilningi að loknu tíu ára skyldunámi, og of mörg börn finna fyrir kvíða í daglegu lífi. Þótt staðan sé vissulega áhyggjuefni fylgir mikil bjartsýni þeirri staðreynd, að sérhver skóli er uppfullur af kennurum, sem af miklum eldmóð vinna frábært starf í þágu barnanna okkar. Með samstilltu átaki heimila, skóla og borgaryfirvalda – og með skýrum mælikvörðum, betri gögnum og markvissari aðgerðum – trúi ég því að saman getum við náð enn meiri árangri. Borgin hyggst taka forystu í skólamálum hérlendis og koma grunnskólum Reykjavíkur í fremstu röð. Við erum stolt af þeim ákvörðunum sem við höfum þegar tekið í átt að betra skólaumhverfi og meiri árangri. Í sumar var samþykkt að grunnskólar borgarinnar verði símalausir frá og með hausti. Ákvörðunina byggjum við á reynslu skólasamfélagsins og reynslu annarra þjóða – en við ætlum okkur jafnframt að fylgja ákvörðuninni eftir og mæla áhrifin á bæði líðan og námsárangur barna. Við höfum jafnframt sett okkur mælanleg markmið um bættan árangur í skólastarfi. Næsta skólaár verður samræmdur matsferill lagður fyrir alla árganga í grunnskólum borgarinnar svo unnt verði að fylgjast með framförum og áskorunum með gagnsæjum hætti. Við ætlum okkur að vinna markvisst með niðurstöður prófanna og fylgja þeim eftir með skýrum aðgerðum svo hámarka megi líkur á námslegum framförum allra barna. Foreldrar, kennarar og skólayfirvöld eiga rétt á að vita hvernig börnunum okkar farnast – svo við getum brugðist við í tæka tíð og stutt hvert barn á eigin forsendum. Einnig höfum við sett okkur mælanleg markmið sem fylgt verður eftir árlega. Við ætlum okkur að hækka á hverju skólastigi og ár frá ári hlutfall nemenda sem ná væntri framvindu milli ára í samræmdum matsferli. Við ætlum okkur jafnframt að fækka markvisst í þeim hópi nemenda sem mælast undir hæfniviðmiðum í lesskilningi, lesfimi og stærðfræði. Við setjum markið hátt og setjum börnin okkar í fyrsta sæti. Við gerum skýra kröfu um árangur, horfumst í augu við niðurstöður og hyggjumst bregðast við fyrirliggjandi áskorunum. Við hlökkum til samstarfsins við kennara og fjölskyldur í borginni um skólakerfi í fremstu röð. Saman getum við virkjað kraftinn og hæfileikana sem búa í sérhverju barni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gyðingar opna hús í miðbænum Antibes í Suður-Frakklandi er Tenerife Sólveigar Önnu Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni Bjargvættur og bölvaldur Kjarkur til að stefna hátt Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frakklandseldar tvöfalt skæðari en í fyrra Ísland græði ekkert á aðild að ESB Allt að fyllast og síminn á fullu Innflutningur háður leyfi lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland græði ekkert á aðild að ESB Moldin kom frá KR-vellinum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið KEA hótel láta flýta dagskrá rokkhátíðar 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Kona slasaðist á Falljökli Himinlifandi með Viðreisn og Framsókn Evrópu vaxandi vandi á höndum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Nýjast á mbl.is » Gyðingar opna hús í miðbænum Antibes í Suður-Frakklandi er Tenerife Sólveigar Önnu Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni Bjargvættur og bölvaldur Kjarkur til að stefna hátt Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland græði ekkert á aðild að ESB 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Myndskeið: Mænirinn rifinn af húsinu Frakklandseldar tvöfalt skæðari en í fyrra Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland græði ekkert á aðild að ESB Moldin kom frá KR-vellinum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið KEA hótel láta flýta dagskrá rokkhátíðar 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Kona slasaðist á Falljökli Himinlifandi með Viðreisn og Framsókn Evrópu vaxandi vandi á höndum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu

Share this article