Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Nytsamir meinleysingjar

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.9.2026 | 8:00 Nytsamir meinleysingjar Jens Garðar Helgason Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Það verður erfiðara með hverjum deginum sem líður að fylgjast með ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hækka álögur á fólk og fyrirtæki og boða enn frekari hækkanir í nýjum fjárlögum. Oftar en ekki hafa það verið álögur sem hæglega má kalla landsbyggðarskatta þar sem þeir eiga það til að leggjast þyngra á fólk og fyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins. Ríkisstjórnin hefur nú þegar meðal annars hækkað vörugjöld af ökutækjum, lagt á kílómetragjald á ökutæki sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti og hækkað gjaldskrár um allt að tugi prósenta. Allt eru þetta breytingar á álögum sem koma einstaklega illa við heimilin og fyrirtækin í landinu og kynda verðbólgubálið. En ríkisstjórnin er hvergi hætt og nú á að tækla ferðaþjónustuna. Stjórnin ætlar, þvert á gefin loforð, að hækka virðisaukaskatt á baðlón og taka upp nýtt gjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands. Rétt er að benda á þá staðreynd að velflest baðlón eru staðsett á landsbyggðinni og þeir ferðamannastaðir sem munu verða fyrir barðinu á aukinni gjaldtöku sömuleiðis. Mikið undir í einstökum sveitarfélögum Í ferðaþjónustu starfar um 31 þúsund manns um landið allt og tæplega helmingur þeirra er búsettur á landsbyggðinni. Ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugrein hinna dreifðu byggða og hefur í raun reynst ein farsælasta byggðastefna lýðveldisins fyrr og síðar. Ef ríkisstjórnin fer sínu fram má vera ljóst að hrikta tekur verulega í stoðum ferðaþjónustunnar hringinn í kringum landið og störfum verður teflt í tvísýnu. Margt má segja um ferðaþjónustuna líkt og aðrar atvinnugreinar en ljóst er að þjónusta við ferðamenn skapar störf. Í kjördæmi undirritaðs eru til að mynda fjögur baðlón, 20 milljarða fjárfesting, sem skapa um 150 heilsársstörf og þá eru ótalin öll þau afleiddu störf sem fylgja með. Þessari starfsemi má ekki taka sem sjálfsögðum hlut. Þess þá heldur þeirri staðreynd að baðlón spila lykilhlutverk í virðiskeðju ferðaþjónustunnar, skapa áfangastaðnum Íslandi einstaka sérstöðu á heimsvísu og eru þess eðlis að ferðamenn dvelja lengur í viðkomandi sveitarfélagi eða landshluta þar sem starfsemi þeirra fer fram. Þau eru ekki aðeins vinsælasta afþreying ferðamanna sem sækja Ísland heim heldur einnig meðal heimamanna og þeirra Íslendinga sem ferðast innanlands. Varnaðarorð virt að vettugi Það styttist í að þingheimur komi saman og fjárlög fyrir árið 2027 verði birt. Engin merki eru um að ríkisstjórnin ætli sér að hverfa frá auknum álögum á ferðaþjónustuna. Þvert á móti er fjármála- og efnahagsráðherra nú farinn að reyna að réttlæta hækkun virðisaukaskattsins opinberlega. Þegar virðisaukaskattshækkunin var kynnt í vor gerðu meðal annarra Vök Baths við Urriðavatn á Austurlandi alvarlegar athugasemdir við áformin. Enda er raunveruleikinn sá að verði þau að veruleika er líklegra en ekki að loka þurfi baðlóninu yfir erfiðustu vetrarmánuðina. Þessi varnaðarorð hafa hingað til verið virt að vettugi og landsbyggðarþingmenn stjórnarmeirihlutans virðast ætla að láta enn einn landsbyggðarskattinn yfir sig ganga eins og ekkert sé sjálfsagðara. Það virðist engu máli skipta þó störf í þeirra heimabyggð verði undir. Það er ekki mikil reisn yfir því að vera nytsamur meinleysingi í tannhjóli ríkisstjórnar sem grefur undan atvinnuöryggi og drepur í dróma frumkvæði og nýsköpun í heimabyggð. Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Krefst þess að Seðlabankinn lækki vexti Pistill: Neiið sem á að gilda Aðsend grein: Nytsamir meinleysingjar Gamla ljósmyndin: Skópússun í miðjum leik Óraunverulegt að sjá sjálfa sig á auglýsingaskilti í Tokyo Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kos segir 47% styðja aðild Hagtölur þjóðarinnar færðar yfir Borgartúnið Breyta veglínu Norðurljósavegar Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Sjö á slysadeild eftir árekstur Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Rafmagn komið aftur á Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Krefst þess að Seðlabankinn lækki vexti Pistill: Neiið sem á að gilda Aðsend grein: Nytsamir meinleysingjar Gamla ljósmyndin: Skópússun í miðjum leik Óraunverulegt að sjá sjálfa sig á auglýsingaskilti í Tokyo Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert RÚV eigi ekki að „bítast um molana“ Rafmagn komið aftur á Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumar Allt svart í Keiluhöllinni Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Sjö á slysadeild eftir árekstur Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Rafmagn komið aftur á Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn

Share this article