Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Saga tveggja ríkja

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: Saga tveggja ríkja Eyþór Arnalds Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Fámennt og strjálbýlt ríki á norðurslóðum byggt á fiskveiðum, einkum þorskveiðum. Ríkið hlaut heimastjórn og varð sjálfstjórnarríki. Það hafði sitt eigið þing, ríkisstjórn og sinn þjóðsöng fyrir rúmum hundrað árum. Þetta ríki upplifði síðar fjármálahrun. Ríkið gafst upp og reiddi sig á erlendan stuðning. Lesandinn hélt ef til vill að hér væri verið að lýsa Íslandi. Það var eðlilegt, við gengum í gegnum svipað áfall árið 2008. Munurinn er sá að við afsöluðum okkur engu. Hitt ríkið fór aðra leið. Árið 1948 var kosið tvisvar um framtíð Nýfundnalands. Í síðari kosningunum stóð valið milli þess að endurreisa sjálfstjórn landsins og ganga í ríkjasamband Kanada. Úrslitin voru naum: 52,3% völdu Kanada. Hinn 31. mars 1949 hætti Nýfundnaland að vera sérstakt sjálfstjórnarríki og varð tíunda fylki Kanada. Fiskveiðistjórnun færðist til Ottawa, þar sem Nýfundlendingar voru brot af kjósendum. Þorskurinn hafði verið veiddur við Nýfundnaland í meira en fjórar aldir. Árið 1992 var stofninn hruninn og veiðar bannaðar. Ísland hafði kosið fjórum árum fyrr, árið 1944, þar sem 97% samþykktu fullt sjálfstæði. Margt var líkt með ríkjunum fram að þeim krossgötum. Munurinn á eftir er hins vegar gríðarlegur. Ísland hefur vaxið á alla mælikvarða sem máli skipta. Þjóðartekjur á mann á Íslandi eru meira en helmingi hærri en á Nýfundnalandi. Atvinnuleysi hefur verið miklu meira á Nýfundnalandi en á Íslandi, lífslíkur meiri á Íslandi og þjóðin mun yngri. Svo dæmi séu tekin. Valið er skýrt Nú árið 2026 er kosið um hvort við viljum hefja á ný viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Enn á ný er spurt hversu mikið vald þjóðarinnar við viljum færa út fyrir landsteinana. Aðild að Evrópusambandinu væri vitaskuld ekki það sama og að verða fylki í Kanada. En kjarninn í samanburðinum er sá sami: Hvar á úrslitavaldið yfir mikilvægustu auðlindum þjóðarinnar að liggja? Og í hvaða samband værum við að ganga? Laun á Íslandi eru með þeim hæstu í Evrópu, hér er lífeyriskerfið vel fjármagnað, þjóðin er yngri og mikið af raforku. Hér er landsframleiðsla á mann mun meiri og jafnrétti meira en innan Evrópusambandsins. Framtíðarhorfur Íslands eru mjög góðar. Hvað gæti réttlætt að við gengjum inn í Evrópusambandið? Væri ekki nær að gera betur heima fyrir en að ganga í samband ríkja sem glíma við öldrun, stöðnun og hátt orkuverð? Væri ekki nær að kjósa Ísland? Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ungur Dani í Hafnarfjörðinn Aðsend grein: Saga tveggja ríkja Aðsend grein: Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Hrakfarir á heimleið þegar fellihýsið losnaði Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Minkagildrurnar tómar í morgun: Sjá til lands Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Ráðuneytið taki þátt í ESB-áróðri Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Ný vatnslögn til Eyja Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Verndar ekki kynlífsverkafólk Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Náðu myndskeiði af holu í höggi „Auðvitað er þetta atkvæðagreiðsla um aðild“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Neytendastofa sektar Parka og EasyPark „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Maðurinn er kominn í leitirnar Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Saklaus læknatími endaði með innlögn Nýjast á mbl.is » Ungur Dani í Hafnarfjörðinn Aðsend grein: Saga tveggja ríkja Aðsend grein: Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Hrakfarir á heimleið þegar fellihýsið losnaði Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Handteknir með skotvopn á Akureyri Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Ný vatnslögn til Eyja Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Verndar ekki kynlífsverkafólk Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Náðu myndskeiði af holu í höggi „Auðvitað er þetta atkvæðagreiðsla um aðild“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Neytendastofa sektar Parka og EasyPark „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Maðurinn er kominn í leitirnar Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Saklaus læknatími endaði með innlögn

Share this article