Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leikur í lokaumferðinni færður vegna Ljósanætur

Read Full Article →

Lokaumferð fyrri hluta Bestu deildar karla í fótbolta fer fram um helgina og þá ræðst endanlega hvaða lið leika í efri hlutanum annars vegar og neðri hlutanum hins vegar þegar deildinni verður skipt í tvennt. Neðri hlutinn er mjög jafn og því er mikið í húfi að ná að verða í efri hlutanum. Að lokinni þessari umferð verður deildinni skipt í tvennt þar sem sex efstu liðin mætast innbyrðis og sex neðstu liðin. Staða liðanna um miðja deild Nr. / Lið / markatala / stig 4 Breiðablik (+3) 30 5 Keflavík (-4) 28 6 ÍA (-4) 27 _____________________________ 7 Stjarnan (-8) 27 8 Valur (-7) 24 Keflavík tekur á móti Val klukkan 16:30 í dag en hinir fimm leikir 22. og síðustu umferðar fyrri hluta deildarinnar fara allir fram á morgun, sunnudag, klukkan 14. Leikir 22. umferðar Bestu deildar karla Laugardagur 5. september 16:30 Keflavík – Valur Sunnudagur 6. september, kl. 14:00 ÍA – KR Víkingur R. – Fram KA – Breiðablik Stjarnan – ÍBV Þór – FH Keflavík og Valur óskuðu sameiginlega eftir tilfærslu Nokkur umræða hefur skapast um þessa tilfærslu á leik Keflavíkur og Vals í ljósi mikilvægis leikjanna í lokaumferðinni. Birkir Sveinsson, sviðsstjóri mótasviðs KSÍ , segir í samtali við RÚV að sambandinu hafi borist sameiginleg ósk frá Val og Keflavík um að færa leikinn vegna bæjarhátíðarinnar Ljósanætur í Reykjanesbæ sem stendur yfir um helgina. „Það er vissulega lagt upp með það að allir leikir fari fram á sama tíma en reglugerðin leyfir tilfærslur ef óskað er eftir því. Leikurinn er færður til vegna Ljósanætur en KSÍ barst sameiginleg ósk Keflavíkur og Vals um tilfærslu á leiknum,“ segir Birkir. Hann bendir jafnframt á að síðustu tvö keppnistímabil hafi ekki verið hægt að leika alla leiki lokaumferðar fyrri hlutans á sama tíma. „Það er ekki strangara að orði kveðið um þetta í reglugerð um meistaraflokk karla fyrir þetta tímabil en „að öllu jafna“ skuli leikir þessarar umferðar fara fram á sama tíma. Orðalag reglugerðarinnar er: „Mótanefnd skal að öllu jöfnu raða leikjum í síðustu umferð fyrri og síðari hluta efstu deildar á sama tíma.“ Síðan kemur strangara ákvæði: „Leikir í síðustu umferð deilda, sem geta haft úrslitaáhrif á stöðu liða í efstu sætum (rétt til þátttöku í Evrópukeppni), skulu ávallt fara fram á sama tíma nema óviðráðanlegar aðstæður (t.d. veður) valdi að því verði ekki við komið að mati mótanefndar. Sama á við um leiki, sem geta haft úrslitaáhrif á fall úr deild.“ Valsmenn þurfa ekki aðeins að vinna Keflavík til að eiga möguleika á að enda í efri hlutanum heldur jafnframt að treysta á að Stjarnan og ÍA tapi sínum leikjum á sunnudag. Keflavík er sem stendur í 5. sæti í efri hlutanum en gæti með tapi fallið niður í neðri hlutann ef bæði Stjarnan og ÍA vinna sína leiki. Einnig gæti markatala liðanna ráðið til um lokastöðuna fyrir tvískiptingu. Það er því ljóst að mikil spenna er fyrir þessa lokaumferð sem hefst í dag en lýkur á morgun.

Share this article