Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.9.2026 | 5:57 Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Eggert Ólafur Ásgeirsson. Setja bókamerki Eggert Ólafur Ásgeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, er látinn, 97 ára að aldri. Eggert ólst upp á Tjarnargötu hjá móður sinni og varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1949. Hann nam læknisfræði við Háskóla Íslands 1949 til 1953 en hélt svo til Stokkhólms og lauk heilbrigðisfulltrúaprófi frá Folkhälsan 1955. Eins lauk hann prófi í sænsku frá HÍ. Eggert var árið 1955 ráðinn heilbrigðisfulltrúi við Borgarlæknisembættið í Reykjavík og var svo framkvæmdasjóri Rauða kross Íslands 1969 til 1981. Hann rak svo eigið ráðgjafaþjónustufyrirtæki þar til hann tók við starfi skrifstofustjóra Sambands íslenskra hitaveitna og rafveitna, 1982 til 1995. Starfsævinni lauk hann sem verkefnastjóri Samorku 1995 til 1999. Eftirlifandi eiginkona Eggerts, Sigríður Dagbjartsdóttir, segir hann jafnframt hafa átt sæti í fjölda nefnda á vegum borgarinnar og farið fyrir fjársöfnuninni Flóttafólki, sameiginlegu verkefni alþjóða Rauða krossins og Flóttamannastofnunar SÞ um 1970. Eins hafi hann verið í hópi stúdenta sem hylltu Halldór Kiljan Laxness á hóteli hans eftir að hann fékk Nóbelsverðlaunin afhent úr hendi Gústafs Svíakonungs í Stokkhólmi. Sigríður segir þau hafa gift sig 1962 og alla tíð búið á Bergstaðastræti í Reykjavík. „Við kynntumst þegar hann var heilbrigðisfulltrúi og ég ritari framkvæmdastjóra Heilsuverndarstöðvarinnar.“ Eggert segir hún hafa verið afskaplega góðan fjölskylduföður sem haft hafi fjölskylduna í fyrirrúmi alla tíð. Hann hafi safnað og gefið út bækur með fjölskyldubréfum sem aðgengileg séu á Landsbókasafninu á tölvutæku formi, auk þess að ritstýra og safna efni í Briemsættarskrá sem kom út 1990. „Hann var eiginlega skrifandi alla tíð,“ segir hún. Eggert hafi líka verið mannblendinn og ræktarsamur við vini sína. Meðal annars hafi hann í rúm 25 ár haft forgöngu um reglubundnar samkomur samstúdenta frá MR 1949. Uppkomin börn Eggerts og Sigríðar eru fjögur talsins, Ingibjörg, Ásgeir, Dagur og Auður, og af þeim er kominn myndarlegur hópur barnabarna og barnabarnabarna. Eggert verður borinn til grafar frá Neskirkju 18. september. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Man myrkrið þegar skipin fóru Bætir í úrkomuna síðdegis Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Reiðir stuðningsmenn biðu fyrir utan klefann Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún um gjaldtöku: „Við lifum í breyttum heimi“ Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni Þórunn: Mál að linni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Mest lesið Í gær Í vikunni Biður Loga afsökunar Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Nær 300 stöðugildi hjá Ríkisútvarpinu Þetta boðar Inga til að bæta árangurinn í PISA Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn Segir kílómetragjaldið betri kost Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Man myrkrið þegar skipin fóru Bætir í úrkomuna síðdegis Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Reiðir stuðningsmenn biðu fyrir utan klefann Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Skattar ýta ríkissjóði yfir núllið Kristrún um gjaldtöku: „Við lifum í breyttum heimi“ Drengir þurfi að sjá hvað þeir græða á lestrinum Mest lesið Í gær Í vikunni Biður Loga afsökunar Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Nær 300 stöðugildi hjá Ríkisútvarpinu Þetta boðar Inga til að bæta árangurinn í PISA Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn Segir kílómetragjaldið betri kost Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%

Share this article