Hér á Íslandi er verðlaunafé í hlaupum töluvert minna en í þeim erlendu hlaupum. Íslensku hlaupin eru þó töluvert minni í sniðum en stórmótin sem voru nefnd og því ekki að ástæðalausu að verðlaunaféð sé minna. Hæsta verðlaunaféð er í Vecct Mílunni sem fór fram í fyrsta sinn í lok aprílmánaðar á þessu ári á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði. Þar fékk sigurvegarinn 250 þúsund krónur, 2. sætið 150 þúsund krónur og 3. sætið 100 þúsund krónur. Verðlaunapotturinn var því samtals 500 þúsund krónur í hverjum flokki. Puffin Run hlaupið í Vestmannaeyjum fylgir fast á hæla þeirra með 495 þúsund króna verðlaunapott. Verðlaunaféð fyrir 1. sætið þar er 220 þúsund krónur, nokkuð lægra en í Vecct Mílunni, en hins vegar er verðlaunaféð fyrir 2. og 3. sætið hærra. Fyrir 2. sæti í Puffin Run er verðlaunaféð 165 þúsund krónur og 110 þúsund krónur fyrir 3. sætið. Tvö þekktustu hlaupin á Íslandi eru þó sennilega Laugavegshlaupið og Reykjavíkurmaraþonið. Verðlaunaféð þar er nokkuð lægra en í hinum tveimur fyrrnefndu hlaupunum. Í Laugavegshlaupinu er verðlaunapotturinn 300 þúsund krónur í hverjum flokki og 245 þúsund krónur í Reykjavíkurmaraþoninu. Það er þó hægt að næla sér í smá bónusgreiðslu í Reykjavíkurmaraþoninu sem hljóðar upp á 100 þúsund krónur, að því gefnu að hlaupari slái brautarmetið. Það afrekaði þó enginn hlaupari það að setja brautarmet í því votviðri sem var á síðustu Menningarnótt. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér .