Valur kom sér úr fallsæti í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag með stórsigri á Grindavík/Njarðvík, 4-1 . Síðarnefnda liðið, sem leikur til bikarúrslita um næstu helgi, komst yfir í upphafi leiks áður en Valskonur svöruðu með fjórum mörkum, þar af gerði Emma Hawkins tvö. Valur er nú í áttunda sæti með 20 stig og fer í neðri hlutann ásamt Fram, Þór/KA og Víkingi. Grindavík/Njarðvík heldur sér í efri hlutanum á betri markatölu gegn Fram sem er með jafnmörg stig. Úr leik Vals og Grindavíkur/Njarðvíkur í Bestu deild kvenna fyrr í sumar.Mummi Lú FH vann Þór/KA 2-1 eftir að hafa lent undir. FH fór á toppinn og er stigi yfir Breiðabliki sem á leik til góða gegn Þrótti annað kvöld.