Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FH missti af tækifærinu til að jafna Blika á toppnum

Read Full Article →

Valur og FH mættust í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag. Liðin berjast hvort á sínum enda deildarinnar, FH í toppbaráttu og Valur á hinum endanum. FH gat með sigri jafnað Breiðablik að stigum á toppi deildarinnar en Valur þurfti stig til að spyrna frá botni. Mörkin komu á færibandi í upphafi leiks og á 12. mínútu kom Helena Errington boltanum í netið fyrir FH eftir stoðsendingu Ingibjargar Magnúsdóttur, 1-0. Forystan varði ekki lengi því Sóley Edda Ingadóttir jafnaði fyrir Valskonur úr hornspyrnu, 1-1. Á fimmtándu mínútu komust Hafnfirðingar yfir á ný með marki Birnu Kristínar Björnsdóttur, 2-1. Það stefndi allt í sigur FH-inga en Lillý Rut Hlynsdóttir skoraði undir blálok leiksins og því skildu liðin jöfn, 2-2, og taka sitthvort stigið. Valskonur sitja því enn á botninum með 17 stig og eru jafnar Víkingum. FH-ingar eru með 34 stig, tveimur frá Breiðabliki. Þetta var síðasti leikur 17. umferðar. Hér má sjá stöðuna í deildinni.

Share this article