Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skemmtileg uppskerutíð í sveitinni

  • What: Agricultural harvest in Southeast Iceland
  • Impact: Local farmers and agricultural workers
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.9.2026 | 19:10 Skemmtileg uppskerutíð í sveitinni Styrmir Snær með nýuppteknar fallegar gulræturnar. Ljósmynd/Vilborg Hrund Jónsdóttir Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Uppskerustörf í sveitum á Suðurlandi eru nú að hefjast eftir gróskumikið og gott sumar. Á bænum Böðmóðsstöðum í Laugardal í Bláskógabyggð er Stymir Snær Jónsson með 3,5 hektara undir í gulrótaræktun sinni og væntir að ná upp um 100 tonnum afurða. „Tíðin nú í ágúst var sérstaklega góð, hitastig og væta í réttum hlutföllum, og því ætla ég að uppskeran verði góð,“ segir Styrmir. Menntaskólanemar mæta til vinnu síðdegis Öflugar vélar eru notaðar við að taka gulræturnar upp, sem léttir störfin. Eigi að síður þarf mannskap og allar hendur á dekk. Þar munar um að til dæmis menntaskólanemar frá Laugarvatni hafa stundum komið til Styrmis síðdegis eftir skóla og gripið þar í tilfallandi vinnu. Sama má segja um fólk á nærliggjandi bæjum; það grípur í tilfallandi vinnu þegar tök eru á. Í sveitinni hjálpast allir að. „Þetta er alltaf skemmtilegur tími og nóg að gera. Einnig er fínt að markaðurinn tekur vel við uppskerunni, gulrótunum sem ég sel til Banana og Innness sem svo ráðstafa áfram í verslanir,“ segir Styrmir Snær sem einnig ræktar kartöflur. Þar eru horfurnar hins vegar næsta daprar, grös eru fallin eftir frostnætur svo uppskeran verður öllu minni en vænta hefði mátt. „Veður hér í sveitinni nú er alveg einstakt og gaman að vera í útivinnu í görðunum undir heiðskírum himni og í stafalogni,“ segir Styrmir Snær. Upptökuvélar á akrinum og allt að gerast. Sprettan hefur verið fín. mbl.is/Sigurður Bogi Í sendinni jörð við Þjórsá Einu bændurnir í Flóanum sem stunda kartöflurækt af einhverju umfangi eru Andri Þór Erlingsson og Hulda Kristjánsdóttir í Forsæti, sem árið 2024 tóku við kartöfluræktuninni af foreldrum Huldu, þeim Önnu Guðbergsdóttur og Kristjáni Gestssyni. Allan ágústmánuð tóku þau upp kartöflur í smáskömmtum, en nú þegar september er genginn í garð fara hjólin að snúast af fullum krafti. Kartöfluakrarnir í Forsæti eru alls um 20 hektarar að flatarmáli; sendinn jarðvegur við bakka Þjórsár. „Uppskeran gæti orðið nálægt því sem telst þokkalegt meðalár. Fyrri hluti sumars var fremur kaldur og það fór ekki að hlýna að ráði fyrr en komið var vel fram á sumarið. Þá kom hins vegar góður vaxtarkippur,“ segir Andri Þór um búskapinn í Forsæti, þar sem kartöflurækt hefur verið stunduð í áratugi. Áður fyrr stunduðu mun fleiri bændur í lágsveitunum slíka ræktun, en tímarnir hafa breyst og búskaparhættir þar með talið. Andri Þór Erlingsson „Gullauga og rauðar íslenskar eru þær kartöflutegundir sem jafnan gefast best og seljast vel. Við höfum einnig verið að prófa yrkin Milva og Solist á síðustu árum og þau hafa komið vel út. Uppskeruna sendum við á markað í gegnum Sölufélag garðyrkjumanna. Auk þess er smávægileg heimasala, meðal annars til fólks á Selfossi sem skellir sér í kartöfluferð hingað í sveitina,“ segir Andri Þór Erlingsson kartöflubóndi í Forsæti. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skemmtileg uppskerutíð í sveitinni Óðinn Þór atkvæðamikill „Stórhættuleg“ eftirför endaði á umferðareyju Fer vel af stað hjá nýju félagi Mikilvægur sigur Valskvenna Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Stórhættuleg“ eftirför endaði á umferðareyju Tveir handteknir af sérsveitinni á Akureyri Háleynilegar prófanir á milli Íslands og Írlands Neikvætt eigið fé Heimildarinnar Mest lesið Í gær Í vikunni Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Nýjast á mbl.is » Skemmtileg uppskerutíð í sveitinni Óðinn Þór atkvæðamikill „Stórhættuleg“ eftirför endaði á umferðareyju Fer vel af stað hjá nýju félagi Mikilvægur sigur Valskvenna Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Neikvætt eigið fé Heimildarinnar Rafmagn komið aftur á Mest lesið Í gær Í vikunni Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi

Share this article