Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögboðin þjónusta þyrfti að víkja eigi Múlaþing að bjarga Valaskjálf

Read Full Article →

Afstaða sveitarstjórnar Múlaþings til framtíðar samkomusalarins í Valaskjálf á Egilsstöðum liggur ekki fyrir. Íbúafundur var á Egilsstöðum í kvöld. Á fundinum fór sveitarstjóri yfir möguleikana sem sveitarfélagið hefur, sem er ýmist að gera ekkert, yfir í leigu á salnum upp á tæplega 30 milljónir á ári eða kaupa allt húsið fyrir 750 milljónir og flytja bæjarskrifstofurnar þangað. Um 70 manns mættu á fundinn og var samstaða meðal gesta um að halda þyrfti í salinn. Enginn sambærilegur salur er í bænum. Hann tekur allt að 450 manns í sæti og þar eru oft haldnir tónleikar, útskriftir, árshátíðir, dansleikir og önnur skemmtun. Eigendur hafa talað um að reksturinn standi ekki undir sér. Eftir vatnstjón í vor kemur til greina að breyta honum í smáherbergjahótel. Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir sveitarfélagið ekki hafa tekið ákvörðun um aðkomu sveitarfélagsins að framtíð samkomusalarins Valaskjálf á Egilsstöðum. Hún segir aðrar áætlanir þurfi að víkja eigi sveitarfélagið að koma að málum. Lögboðin þjónusta þyrfti að víkja „Það er sveitarstjórnarfundur á miðvikudaginn og við þurfum aðeins að meta bæði hvað kom fram á fundinum í dag og eiga svo áframhaldandi samtal við eigendur og meta stöðuna í framhaldi af því,“ sagði Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, í sjónvarpsfréttum í kvöld. Hún segir að ef eitthvað ætti að gera af hálfu sveitarstjórnar þyrfti annað að víkja. Leiga á húsnæðinu myndi þýða einhvers konar þjónustuskerðingu, fjárhagsramminn leyfi ekki annað. Ef kaupa ætti húsnæðið þyrftu áætlaðar fjárfestingar að víkja. „Það felur í sér grunnskóla og viðbyggingu íþróttamannvirkja sem þyrfti að setja í bið og það er ekki víst að það sé vilji íbúa fyrir því. Það er lögboðin þjónusta en þetta er það að vitaskuld ekki.“ Heyra mátti á fundargestum að salurinn væri samfélagslega mikilvægur. Jónína segir að þess vegna ætli sveitarstjórnin að gefa sér góðan tíma í að komast að niðurstöðu. Hafþór Máni Valsson stóð fyrir undirskriftarsöfnun þar sem skorað er á eigendur og sveitarfélagið að varðveita salinn. Honum fannst svörin sem gefin voru á fundinum loðin og spurningum sem hann vildi svör við ekki svarað. Hann hefði viljað skýrari svör við því hvort vilji sé hjá bænum til að koma til móts við eigendur.

Share this article