Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tapa 100 milljónum á þremur árum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 8.9.2026 | 12:33 Tapa 100 milljónum á þremur árum Gísli Steinar Gíslason, fulltrúi eigenda 701 Hotels ehf., sagði að 100 milljóna króna tap hefði orðið á rekstri samkomusalarins síðustu 3 ár. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson Skúli Björn Gunnarsson Egilsstöðum Setja bókamerki Múlaþing skoðar nú fjórar leiðir varðandi framtíð samkomusalarins í Valaskjálf á Egilsstöðum, þar á meðal að sveitarfélagið kaupi salinn af eigendum Hótels Valaskjálfar. Aðrir kostir sem eru til skoðunar eru að leigja salinn til lengri tíma, kaupa allt hótelið eða aðhafast ekkert. Þetta kom fram á íbúafundi sem byggðaráð Múlaþings hélt um málefni Valaskjálfar á sunnudag. Sveitarfélagið og eigendur 701 Hotels ehf., sem eiga salinn og reka Hótel Valaskjálf, eiga nú í viðræðum um framtíð hins sögufræga samkomusalar. Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri kynnti á fundinum þrjár sviðsmyndir sem sveitarfélagið hafði haft til skoðunar. Sú fyrsta felur í sér að sveitarfélagið aðhafist ekkert, sem hefði engin bein útgjöld í för með sér en mögulega óbein, þar sem bæta þyrfti aðstöðu til samkomuhalds í öðrum sölum sveitarfélagsins. Önnur leið væri að leigja salinn af eigendum til sjö til tíu ára fyrir um 29 milljónir króna á ári. Með því yrði aðgangur að salnum tryggður en sveitarfélagið eignaðist ekkert í húsinu. Þriðji kosturinn væri að kaupa allt húsið, þar með talda hótelálmuna, fyrir um 750 milljónir króna. Þá kæmi meðal annars til greina að flytja skrifstofur sveitarfélagsins þangað, sem er eldri hugmynd, en slíku fylgdi jafnframt kostnaður vegna breytinga á húsnæðinu.Dagmar sagði að eigendur hefðu síðan á föstudag lagt fram fjórðu hugmyndina, sem fælist í því að sveitarfélagið keypti eingöngu samkomusalinn. Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum. Ljósmynd/Aðsend Gríðarlegt vatnstjón í sumar Hún lagði áherslu á að rekstur samkomusalar væri ekki lögbundið verkefni sveitarfélagsins og að Múlaþing hefði litla burði til mikilla útgjalda vegna hans nema með því að skerða þjónustu eða breyta forgangsröðun í fjárfestingaáætlun. Gísli Steinar Gíslason, fulltrúi eigenda, sagði að um 100 milljóna króna tap hefði orðið á rekstri samkomusalarins síðustu þrjú ár, enda væri dýrt að reka 1.100 fermetra sal. Hann sagði fullan vilja hjá eigendum til að leita að bestu lausninni fyrir bæði þá og samfélagið og að engin ákvörðun hefði verið tekin um breytingar á salnum. Gríðarlegt vatnstjón varð í salnum í sumar þegar heitavatnslögn gaf sig. Í kjölfarið kom fram að eigendur hótelsins væru að skoða að breyta honum í gistirými. Yfir 1.100 manns skrifuðu undir áskorun um að salurinn yrði áfram aðgengilegur fyrir leiksýningar og tónleikahald. Rúmlega sjötíu manns mættu á íbúafundinn á sunnudag og lögðu þeir sem tóku til máls áherslu á mikilvægi Valaskjálfar fyrir menningarlíf á Egilsstöðum og Héraði. Málið verður rætt á sveitarstjórnarfundi Múlaþings á morgun, 9. september, en ólíklegt er að það verði afgreitt þá. Valaskjálf Mikil umræða hefur verið um framtíð Valaskjálfar að undanförnu. Salurinn var byggður sem félagsheimili fyrir allt Fljótsdalshérað og tekinn í notkun fyrir nákvæmlega sextíu árum. Þar var þá stærsta leiksvið utan höfuðborgarinnar. Sveitarfélagið Austur-Hérað seldi salinn árið 1998 til þáverandi hóteleigenda. Sveitarfélagið hefur á köflum síðan verið með fastan leigusamning um salinn en ekki undanfarin ár. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Áfram í úrvalsdeildinni eftir allt saman? Tapa 100 milljónum á þremur árum Enga áhrifavalda við jarðarför konungs Inga: Sárara en tárum taki Grunaður um fjölmörg skemmdarverk Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Reyna að fegra sláandi niðurstöður Hávær flauta vakti Reykvíkinga: „Mannleg mistök“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga Bilið breikkar mest á Íslandi Reyna að fegra sláandi niðurstöður Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Hækkanir skella á sjúklingum Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Áfram í úrvalsdeildinni eftir allt saman? Tapa 100 milljónum á þremur árum Enga áhrifavalda við jarðarför konungs Inga: Sárara en tárum taki Grunaður um fjölmörg skemmdarverk Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðkoma ríkisins ekki á kostnað hallaleysis Tæp 60% bóta fara til útlendinga Hávær flauta vakti Reykvíkinga: „Mannleg mistök“ Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga Bilið breikkar mest á Íslandi Reyna að fegra sláandi niðurstöður Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Hækkanir skella á sjúklingum Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið

Share this article