Ríkisstjórnin áformar að lækka framlag ríkisins til stuðnings við nýsköpunarfyrirtæki í um 1,7 milljarða króna milli áranna 2026 og 2027, samkvæmt nýbirtu fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. Áætlað er að styrkir til nýsköpunarfyrirtækja í formi endurgreiðslna ríkisins til fyrirtækja vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar lækki úr 14,7 milljörðum króna í 13,0 milljarða króna milli ára. Um er að ræða ríflega 11,5% lækkun milli ára. „Lækkunin er í samræmi við áætlun Rannsóknarmiðstöðvar Íslands (Rannís) um stuðningsgreiðslur til rannsóknar og þróunar á næsta ári, en greiðslurnar hafa farið lækkandi eftir skarpan vöxt til ársins 2024,“ segir í fjárlagafrumvarpinu. Gerð er tillaga um að fjárheimildir málaflokksins Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar breytist með þeim hætti að endurgreiðslur til fyrirtækja vegna rannsókna og þróunarkostnaðar lækki um 1.741,3 milljónir króna, í samræmi við breyttar forsendur á áætlun Rannís. Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um hefur samþykktum umsóknum fyrirtækja til Rannís um endurgreiðslur dregist talsvert saman upp á síðkastið og hugverkageirinn hefur lýst áhyggjum af seinagangi og óskýrleika í svörum stofnunarinnar. Sjá einnig Telja breytta stefnu hjá Rannís ógna nýsköpun Nýtt atvinnustefnuráð forsætisráðherra hvatti ríkið í sinni fyrstu stöðuskýrslu í júní að finna „ávexti í augnhæð“ þegar kemur að atvinnustefnu stjórnvalda. Eitt slíkt væri að auka fjárfestingu í rannsóknum og þróun í 3% af landsframleiðslu, í samræmi við markmið ESB.