Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.9.2026 | 11:10 Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Daði Már má selja talsvert af eignum á næsta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Auknar álögur á almenning 8,8 milljarða aðhaldskrafa „Fjármagna hallann með skattahækkunum“ Kílómetragjald hækki um 15,9% » Fleiri tengdar fréttir Heimild er í fjárlögum næsta árs til að selja töluvert af eignum. Heimild er til að selja eignarhlut ríkisins í húsnæði á vegum grunn-, framhalds- og sérskóla ásamt háskólum í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar, í húsnæði á vegum heilbrigðisstofnana, sjúkrahúsa eða í heilbrigðistengdri starfsemi í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar, í húsnæði dómstóla, lögreglu- og sýslumannsembætta og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar. Þá er heimild til að selja óhentugar eða óhagkvæmar húseignir utanríkisþjónustunnar erlendis og kaupa eða leigja hentugra húsnæði. Meðal eigna sem heimilt er að selja er húsnæði embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að Hverfisgötu 113–115 í Reykjavík. Heimild er þá í fjárlögum til að kaupa eða leigja hentugra húsnæði fyrir starfsemina. Frétt af mbl.is Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Dómstólar gætu flutt Þá er heimild til sölu á húsnæði því sem hýsir Héraðsdóm Reykjavíkur og Landsrétt að Austurstræti í Reykjavík og Vesturvör í Kópavogi. Sömuleiðis er heimild fyrir kaupum eða leigu á öðru hentugu húsnæði í staðinn. Selja má Tollhúsið við Tryggvagötu og fasteignir í eigu ríkisins á Vífilsstöðum í Garðabæ sem og eignarhlut ríkisins í Hafnarstræti 99-101 á Akureyri þar sem Heilbrigðisstofnun Norðurlands var til húsa. Fjármálaráðherra er þá heimilt að selja húsnæði Tilraunastofu Háskóla Íslands við Keldnaholt. ÁTVR er heimilt að selja Austurstræti 10a í Reykjavík og Hólabraut 16 á Akureyri og Fasteignum Háskóla Íslands er m.a. heimilt að selja Hofsvallagötu 53, sem hýsir starfsemi lyfjafræðideildar HÍ. Frétt af mbl.is „Mínus í plús“: Langvinnur hallarekstur stöðvaður Selja má húsnæði Listaháskólans Þá er heimild í fjárlögum til sölu á fasteignum í eigu ríkisins við Stakkahlíð og Laugarnesveg 91 í Reykjavík, húsnæði Listaháskóla Íslands í dag. Rauðarárstíg 25 í Reykjavík má selja en þar fer fram starfsemi á vegum embættis ríkislögreglustjóra og Skuggasund 1–3 í Reykjavík má einnig selja en þar er Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins til húsa. Húsnæði embættis lögreglustjórans á Vestfjörðum og Skattsins má selja og selja má eða ráðstafa með öðrum hætti eignarhlut ríkisins í flugafgreiðslu við Nauthólsveg og ratsjárhúsi á Reykjavíkurflugvelli. Húsnæði Minjastofnunar má selja og selja má eða ráðstafa með öðrum hætti fasteignum ríkisins á Hólum í Hjaltadal í tengslum við endurskipulagningu á húsnæðismálum Háskólans á Hólum og leigja eða kaupa annað hentugra húsnæði í staðinn. Selja má Laugaveg 162–166 í Reykjavík og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði en um er að ræða gamla húsnæði Skattsins sem nú hýsir m.a. starfsemi Þjóðskjalasafnsins, Matvælastofnunar, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, Fangelsismálastofnunar o.fl. Fjármálaráðherra er þá heimilt að selja eyðibýli og húsarústir sem henta vel til endurbyggingar á leigulóð. Blikastaðalandið má selja Selja má land ríkisins við Blikastaðaveg í Reykjavík og selja má eða leigja landspildur ríkisins á Reykjanesi. Þá má selja sumarhúsalóðir, íbúðarlóðir og spildur í eigu ríkisins, sem leigðar hafa verið til langs tíma, til leigjenda á grundvelli óháðs verðmats enda liggi ekki sérstakir almannahagsmunir að baki eignarhaldi ríkisins. Selja má land við Hvanneyri sem ekki nýtist undir starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands og heimila má þá ráðstöfun á landi Fells í Suðursveit með sérleyfis- eða rekstrarleyfissamningum vegna áforma um uppbyggingu á innviðum í Jökulsárlóni. Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Auknar álögur á almenning 8,8 milljarða aðhaldskrafa „Fjármagna hallann með skattahækkunum“ Kílómetragjald hækki um 15,9% » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Myndskeið: Rými í Kórnum skírt í höfuðið á sjálfboðaliða Auknar álögur á almenning Niðurstöður PISA birtar á morgun Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samstarfið við Norðurlönd treyst frekar Sigurhrópin óma út fyrir Saxland Um 40% handtekinna erlend Kílómetragjald hækki um 15,9% Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsakað sem alvarlegt atvik Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Kílómetragjald hækki um 15,9% Varað við öflugum vindhviðum Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Hellisheiði lokað á austurleið Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Myndskeið: Rými í Kórnum skírt í höfuðið á sjálfboðaliða Auknar álögur á almenning Niðurstöður PISA birtar á morgun Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Mínus í plús“: Langvinnur hallarekstur stöðvaður Samstarfið við Norðurlönd treyst frekar Þingsalurinn lýstur upp með LED-ljósum Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsakað sem alvarlegt atvik Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Kílómetragjald hækki um 15,9% Varað við öflugum vindhviðum Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Hellisheiði lokað á austurleið Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article