Sverrir Jan Norðfjörð hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra ORKIS (Energy Cluster Iceland), sem varð til við sameiningu Orkuklasans, GEORG og Íslenskrar Nýorku fyrr á árinu. ORKIS er sameiginlegur vettvangur atvinnulífs, rannsókna, nýsköpunar og stjórnvalda á sviði orkumála og hefur það hlutverk að efla samstarf, nýsköpun og verðmætasköpun og styrkja samkeppnishæfni íslensks orkugeira. Sverrir Jan hefur um árabil gegnt stjórnunar- og sérfræðistörfum í íslensku atvinnulífi og starfaði lengst af í framkvæmdastjórn Landsnets. Þar kom hann meðal annars að rannsóknum og þróun, fjárfestingaáætlunum, stefnumótun og innleiðingu nýrrar tækni. Hann hefur einnig sinnt rannsóknum og kennslu við Háskóla Íslands, samstarfi á sviði orku- og tæknimála hér á landi og erlendis og setið í stjórnum og nefndum innan geirans. Sverrir Jan er með M.Sc.-gráðu í rafmagnsverkfræði. Sjá einnig Safna í 15 milljarða sjóð til fjárfestinga í orkugeiranum „Ráðning Sverris Jan markar mikilvægt skref í uppbyggingu ORKIS eftir sameiningu félaganna þriggja. Hann er með góða blöndu af stjórnunarreynslu, tæknilegri þekkingu og skilningi á því samstarfi sem þarf til að efla orkuiðnaðinn á Íslandi. Það skiptir miklu máli nú þegar við höfum sameinað krafta ólíkra aðila í einn öflugan vettvang,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, stjórnarformaður ORKIS. Sverrir Jan segir sameiningu ORKIS skapa tækifæri til að efla samstarf þvert á orkugeirann. „ORKIS hefur nú einstakt tækifæri til að tengja saman fyrirtæki, rannsóknasamfélag og hið opinbera með enn markvissari hætti. Ég vil leggja áherslu á að byggja upp öflugt klasaumhverfi þar sem góðar hugmyndir geta orðið að verkefnum, nýsköpun og verðmætasköpun. Jafnframt vil ég auka sýnileika íslensks orkugeira og skapa fleiri tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og sprota til að sækja á erlenda markaði.“