Þorvaldur Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ofar en hann kemur til félagsins frá Lyfju, þar sem hann hefur verið tækni- og þróunarstjóri frá árinu 2022 og borið meðal annars ábyrgð á upplýsingatækni og þróun stafrænnar þjónustu. Þar áður starfaði hann sem viðskiptaþróunarstjóri hjá App Dynamic og gegndi leiðtogahlutverkum hjá fyrirrennurum Ofar, Origo og Nýherja. Þorvaldur er með meistaragráðu í rafmagnsverkfræði frá University of Maryland. „Það er virkilega spennandi að fá tækifæri til að taka þátt í næsta kafla Ofar. Félagið hefur sterka stöðu á fyrirtækjamarkaði, mikla sérþekkingu og traust viðskiptasambönd sem hafa byggst upp á löngum tíma,“ segir Þorvaldur Einarsson. Sjá einnig Tekjur Nova aukast um nærri 50% með kaupunum á Ofar Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tölvubúnaðar og tæknilausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki og stofnanir. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar og býður Ofar vörur og lausnir frá yfir 150 alþjóðlegum vörumerkjum sem innflutnings- og dreifingaraðili á Íslandi. „Þorvaldur þekkir bæði markaðinn og rætur félagsins og kemur með dýrmæta reynslu af tækni, viðskiptaþróun og breytingum. Það er frábært að fá Þorvald til liðs við okkur því fram undan eru spennandi tækifæri til að byggja áfram á því sem félagið gerir vel í dag, þróa þjónustu og lausnir og nýta betur styrkinn sem felst í að vera hluti af Nova-klúbbnum,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova-klúbbsins. Nova-klúbburinn keypti allt hlutafé í Ofar fyrr á árinu en félagið verður áfram rekið sem sjálfstætt félag undir eigin vörumerki.