Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Launafólk er komið í meiri mínus“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.9.2026 | 15:46 „Launafólk er komið í meiri mínus“ Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, vandar ríkisstjórninni ekki kveðjurnar eftir að hafa rýnt í fjárlagafrumvarpið. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Hækkun kílómetragjalds hafi legið fyrir „í mörg ár“ Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingum Þjóðarhöll fær aukið fjármagn Áformin valda sárum vonbrigðum » Fleiri tengdar fréttir „Það á að vera ófrávíkjanleg skylda að fara vel með opinbert fé, en hallalaus fjárlög þjóna ekki tilgangi sínum ef niðurstaðan er aukin verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og stöðnun, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslífið og samfélagið til langs tíma.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í færslu á Facebook-síðu sinni eftir að hafa rýnt í fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í morgun. Um er að ræða hallalaus fjárlög en á móti kemur að ýmsir skattar og gjöld munu hækka á næsta ári um 5,2 prósent. „Fjárlagafrumvarp næsta árs hefur nú litið dagsins ljós og ríkisstjórnin skrifar 0 á blað með stolti. Hið lofaða hallaleysi komið í excel-skjalið. En hvað kostar núllið?“ spyr Halla. Frétt af mbl.is Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingum Ratar beint inn í verðbólguna Hún segir jöfnuð á ríkisútgjöldum ekki geta verið markmið í sjálfu sér, heldur aðeins tæki á stærri vegferð sem lúti að öflugu efnahagslífi og samfélagslegri velferð. „Það sem veldur einna mestum áhyggjum í nýja hallaleysinu er tilhneiging til að nota aukin gjöld til að loka gatinu (fremur en til dæmis skatta á þá sem mest eiga). Hækkaðar gjaldskrár rata beint inn í verðbólguna og því greiðum við þær ekki aðeins í gegnum kílómetragjald eða komugjöld, heldur líka í gegnum verðbólguþrýsting og á endanum húsnæðiskostnað,“ segir Halla í færslunni. „Þetta getur aftur lengt í hávaxtastefnunni en það er einmitt vaxtakostnaður sem hvílir hvað þyngst á ríkissjóði. Þennan spíral þarf að stöðva, fremur en að viðhalda,“ segir hún jafnframt. Frétt af mbl.is „Mínus í plús“: Langvinnur hallarekstur stöðvaður Hún bendir á að forsenduákvæði kjarasamninga séu brostin vegna efnahagsástandsins, en ekkert í fjárlagafrumvarpinu geri ráð fyrir aðgerðum sem ýti undir að kjarasamningar haldi. „Það eru vonbrigði að ekkert komi fram sem ýtir undir bjartsýni á að kjarasamningar geti haldið. Við í VR, LÍV og Fagfélögunum höfum hafið viðræður við SA um leiðir fram á við og stöndum einnig að sameiginlegum málum gagnvart ríkisstjórn og SA á vettvangi ASÍ,“ segir Halla og lýkur færslunni á að róðurinn fram undan sé þungur. „Ríkisstjórnin náði núlli, en launafólk er komið í meiri mínus.“ Frétt af mbl.is Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Þá telur Halla upp nokkur atriði sem hún segir skipta launafólk máli: Verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur hafa kallað eftir frystingu á gjaldskrám til að draga úr verðbólgu og uppfylla loforð gagnvart gildandi kjarasamningum. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu munu gjaldskrár hækka í takti við verðbólgu og þannig auka álögur á vinnandi fólk og viðhalda verðbólgunni. Kílómetragjaldið verður snarhækkað, sem mun koma við veskið hjá okkur velflestum og skila sér beina leið inn í verðbólguna. Olíuverðþakið virðist ekki eiga að gilda áfram, en það var framsækin leið til að verja íslensk heimili gegn yfirgengilegum verðbólguáhrifum af árásarstríði Bandaríkjanna gegn Íran. Einhverra hluta vegna er það hætt að skipta ríkisstjórnina máli að verja heimilin með þessum hætti. Kyrrstaða í húsnæðismálum: stofnframlög inn í almenna íbúðakerfið verða dregin saman vegna þess að ríki og sveitarfélög virðast hafa gefist upp á verkefninu að koma á stöðugleika í húsnæðismálum. Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis verður lækkuð sem þýðir að viðhald fasteigna verður dýrara. Það, ásamt öðrum niðurfellingum á endurgreiðslu getur einnig leitt til aukins atvinnuleysis á samdráttartímum og dregið úr nauðsynlegri íbúðauppbyggingu. Breytingar á útreikningi persónuafsláttar þýða í rauninni lækkun á persónuafslætti sem er skattahækkun á allt launafólk. Húsnæðis- og barnabætur eru látnar rýrna áfram en þær eru eitt besta tækið til að ná til þeirra hópa sem eru í viðkvæmustu stöðunni á tímum ofurvaxta. Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Hækkun kílómetragjalds hafi legið fyrir „í mörg ár“ Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingum Þjóðarhöll fær aukið fjármagn Áformin valda sárum vonbrigðum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Launafólk er komið í meiri mínus“ Hækkun kílómetragjalds hafi legið fyrir „í mörg ár“ Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Yrði einn sá launahæsti í ensku úrvalsdeildinni Mér finnst ég alltaf bestur Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Auknar álögur á almenning Innkaup ríkisins enn á ný í brennidepli Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingum Samstarfið við Norðurlönd treyst frekar Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Ekki sársaukalaust en nauðsynlegt Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » „Launafólk er komið í meiri mínus“ Hækkun kílómetragjalds hafi legið fyrir „í mörg ár“ Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Yrði einn sá launahæsti í ensku úrvalsdeildinni Mér finnst ég alltaf bestur Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Hlutfall fyrstu kaupenda ekki meira í 19 ár Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða Segir allt stefna í verðbólguvetur Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Ekki sársaukalaust en nauðsynlegt Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article