Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,3% 800 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Tuttugu af 27 félögum aðalmarkaðarins lækkuðu í viðskiptum dagsins, þar af tíu um meira en eitt prósent. Einungis tvö félög aðalmarkaðarins hækkuðu í viðskiptum dagsins. Icelandair, sem tilkynnti um farþegatölur í morgun, hækkaði mest eða um 2% í 13 milljóna króna veltu. Gengi Icelandair stendur nú í 0,718 krónum á hlut. Sjá einnig Farþegum Icelandair til Íslands fjölgaði um 11% Icelandair tilkynnti um að farþegum félagsins í ágústmánuði hafi fækkaðum 5% milli ára í samræmi við samdrátt í framboði. Farþegum til Íslands hafi hins vegar fjölgað um 11% á milli ára og farþegum frá Íslandi um 12%. Tekjur á hvern farþegakílómetra jukust um 24% og voru 11,96 sent. Gengi Íslandsbanka hækkaði næst mest eða um 0,85% í hundrað milljóna króna veltu og stendur nú í 142,4 krónum á hlut. Gengi Ása, móðurfélags Símans, lækkaði mest eða um 4,1% í yfir 200 milljóna króna veltu. Félagið tilkynnti í morgun um nýtingu starfsmanna á kaupréttum.