Innlent | mbl | 7.9.2026 | 17:40 Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka spáir í gengi krónunnar næstu misseri. Samsett mynd Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Kristrún: „Gott fyrir Ísland“ Gjaldhækkanir ýti undir verðbólgu Kæru- og úrskurðarnefndir verði undir sama þaki „Launafólk er komið í meiri mínus“ Sigmundur Davíð: „Staðfesting uppgjafar“ » Fleiri tengdar fréttir Ríkisstjórnin sýnir ekki gott fordæmi með hækkun gjalda í nýju fjárlagafrumvarpi. Þetta segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, við mbl.is. Hækkanirnar eru umfram það sem nemur verðbólgumarkmiðinu og gætu stuðlað að aukinni verðbólgu á viðkvæmum tímum að sögn Jóns sem vísar til endurskoðunar kjarasamninga í haust. Hann bendir á að skuldabréfamarkaðurinn hafi þegar brugðist við með því að spá aukinni verðbólgu á næsta ári. Verðbólguálagið hafi aukist um rúmlega 0,1% til skamms og meðallangs tíma. Jón segir að skynsamlegt hefði verið að skera niður með niðurskurði í meira mæla á rekstri en ekki fjárfestingaráformum til að kæla hagkerfið. Frétt af mbl.is Lækkar heimildir en tímalínan helst óbreytt Frétt af mbl.is Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Opinberir aðilar kyndi undir verðbólguna Um leið og Jón Bjarki lýsir yfir vonbrigðum með hækkun gjalda og ómarkvissan niðurskurð stjórnvalda segir hann jákvætt að leitast sé eftir því að ná hallalausum fjárlögum. Það eigi alltaf að vera leiðarstefið fyrir stjórnvöld, sérstaklega þegar verulegur halli hafi verið undanfarin ár. Hann stafi af tímabundnum aðstæðum eins og jarðhræringum, stríðum og faraldrinum. „Að því sögðu, þá veldur vonbrigðum hversu mikið af auknum tekjum eru sóttar í gegnum gjöld, ekki síst gjöld sem munu endurspeglast í verðbólgumælingunni í janúar. Búið var að gefa í skyn og kalla eftir því, bæði af Seðlabankanum og fleirum, að opinberir aðilar myndu ekki kynda undir verðbólguna á komandi fjórðungum og sýna gott fordæmi með því að halda slíkum hækkunum í samræmi við verðbólgumarkmiðið. Að hækka krónutölugjöld almennt um 5,2%, með vísan í verðbólguspá Seðlabankans, og auðvitað ennþá meiri hækkun á kílómetragjaldinu, 16% tæp; Það er bara ekki gott fordæmi í þessu samhengi, sérstaklega ekki á jafn viðkvæmum tímum og við erum að upplifa núna þegar kjarasamningar eru í endurskoðun.“ Frétt af mbl.is Gjaldhækkanir ýti undir verðbólgu Kallar eftir markvissari niðurskurði Æskilegt hefði verið að sjá meira aðhald á útgjaldahliðinni og markvissari niðurskurð að sögn Jóns. „Niðurskurður á fjárfestingum er klassísk leið til þess að halda aftur af útgjöldum en við erum í mikilli innviðaskuld og það er ekki heppilegasta leiðin til þess að halda aftur af ríkisútgjöldum akkúrat þessa dagana. Þannig að þetta veldur vonbrigðum líka og við höfum séð í viðbrögðum á markaði að það er verið að verðleggja heldur meiri verðbólgu á komandi misserum áður en fjárlagafrumvarpið var birt,“ segir hann að lokum. Jón Bjarki hjá Íslandsbanka segir hækkun gjalda óskynsamlega þegar endurskoðun kjarasamninga er á næsta leiti. mbl.is/Eggert Jóhannesson Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Kristrún: „Gott fyrir Ísland“ Gjaldhækkanir ýti undir verðbólgu Kæru- og úrskurðarnefndir verði undir sama þaki „Launafólk er komið í meiri mínus“ Sigmundur Davíð: „Staðfesting uppgjafar“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kristrún: „Gott fyrir Ísland“ Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Carrick ósammála: Ekki slæm byrjun Bakaði Bónusköku fyrir stærsta aðdáandann Sakborningi flogið frá Póllandi til Íslands Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Einn með alvarlegri áverka eftir slys á laugardag Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Kristrún: „Gott fyrir Ísland“ Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Carrick ósammála: Ekki slæm byrjun Bakaði Bónusköku fyrir stærsta aðdáandann Sakborningi flogið frá Póllandi til Íslands Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar 8,8 milljarða aðhaldskrafa Hlutfall fyrstu kaupenda ekki meira í 19 ár Er að hækka álögur á heimilin og fyrirtækin Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar