Tveir leikir voru í Bestu deild kvenna í kvöld: Þróttur 1-1 Breiðablik Stjarnan 1-2 Víkingur Þetta voru síðustu leikirnir í 18. umferð sem þýðir að deildinni verður nú skipt í tvennt, sex efstu liðin leika fimm leiki til viðbótar í efri hlutanum og neðstu fjögur þrjá leiki í neðri hlutanum. Fyrsta jafntefli Breiðabliks í sumar Breiðablik sótti Þrótt heim í Laugardalinn. FH tók toppsætið af Blikum í gær en jafntefli eða sigur kæmi Blikum aftur á toppinn. Þær skoruðu eina mark fyrri hálfleiksins. Það gerði Katelyn Duong á 42. mínútu. Sierra Marie Lelii jafnaði hins vegar eftir um klukkutíma leik með skallamarki eftir hornspyrnu. Sierra lagði takkaskóna á hilluna eftir síðasta tímabil en tók þá aftur fram í síðasta mánuði og var þetta hennar fyrsta mark í sumar. Þrátt fyrir fín færi urðu mörkin ekki fleiri og 1-1 niðurstaðan. Þetta var fyrsta jafntefli Blika í sumar en það fimmta hjá Þrótturum. Blikar eru með jafnmörg stig og FH en betri markatölu á toppi deildarinnar. Þróttur er í fimmta sæti fyrir skiptingu og því í efri hlutanum. Dramatík í Miðgarði Svipuð þróun var í viðureign Stjörnunnar og Víkings og fyrstu tvö mörkin komu á nánast sömu mínútu og í leik Þróttar og Breiðabliks. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir kom gestunum yfir á 41. mínútu og Snædís María Jörundsdóttir jafnaði fyrir Stjörnuna á þeirri 61. Munurinn var sá að Víkingar fundu sigurmarkið, það skoraði Thea Rhode á 89. mínútu og Víkingar lyftu sér af botninum en eru þó enn í fallsæti. Stjarnan er í fjórða sæti.