Innlent | Morgunblaðið | 8.9.2026 | 6:00 Hallalaus fjárlög en auknar álögur á almenning Forystumenn ríkisstjórnarinnar fögnuðu innilega þegar þeir kynntu hallalaus fjárlög næsta árs, fyrstu hallalausu fjárlögin í átta ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson Matthías Johannessen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Hækkanir skella á sjúklingum „Og hoppaðu upp í...“ Svakalegt högg fyrir rithöfunda Kristrún: „Gott fyrir Ísland“ Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi » Fleiri tengdar fréttir Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir hallalausum ríkisrekstri í fyrsta sinn í átta ár, en samhliða auknu aðhaldi boða stjórnvöld skatta- og gjaldahækkanir og aukið framboð ríkisbréfa á innlendum markaði. Andri Már Rúnarsson, sjóðstjóri hjá Kviku banka, segir í samtali við Morgunblaðið áformin fela í sér ákveðið ósamræmi. Aðgerðir sem eigi að styðja við hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta geti á sama tíma aukið verðbólguþrýsting og sett þrýsting á ávöxtunarkröfu skuldabréfa. Frétt af mbl.is Lækkar heimildir en tímalínan helst óbreytt Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 4,7 milljarða króna afgangi á ríkissjóði, eða sem nemur 0,1% af landsframleiðslu. Þrátt fyrir það verður fjármögnunarþörf ríkissjóðs áfram veruleg. Gert er ráð fyrir 230 milljarða króna lántöku ríkissjóðs innanlands á næsta ári en afborganir innlendra lána nema um 143 milljörðum. Nettóútgáfa verður því um 87 milljarðar króna, samanborið við tæpa 69 milljarða á þessu ári. „Þetta aukna nettóframboð setur óneitanlega pressu á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa, en víða erlendis hafa kröfur hækkað mikið það sem af er ári, meðal annars vegna aukinnar fjárþarfar. Hærri ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hefur svo óbein áhrif á aðra vexti, eins og íbúðalánavexti,“ segir Andri. Frétt af mbl.is Sigmundur Davíð: „Staðfesting uppgjafar“ Samhliða aðaldinu boðar frumvarpið ýmsar skatta- og gjaldahækkanir. Fjöldi opinberra gjalda hækkar um 5,2% um áramót, í takt við áætlaða verðbólgu þessa árs. Þar á meðal eru bifreiðagjald, kolefnisgjald, áfengis-, tóbaks- og nikótíngjöld og gjald vegna reksturs Ríkisútvarpsins. Kílómetragjaldið hækkar meira, eða um 15,9%, og er hækkuninni ætlað að skila ríkissjóði um 4 milljörðum króna í viðbótartekjur. Andri segir þetta ekki samræmast yfirlýstum markmiðum stjórnvalda um að draga úr vægi verðtryggingar í hagkerfinu. „Það sem veldur mér mestum vonbrigðum er ósamræmið. Ríkisstjórnin hefur gefið sig út fyrir að vilja draga úr vægi verðtryggingar í hagkerfinu, en verðtryggir um leið sínar eigin tekjur sjálfvirkt við verðbólgu liðins árs. Þegar opinber gjöld hækka um 5,2% á sama tíma og verðbólgumarkmiðið er 2,5% er verið að festa verðbólguna í sessi og senda röng skilaboð um verðbólguvæntingar, sem er nákvæmlega það sem aðhaldið á að vinna gegn.“ Frétt af mbl.is Gjaldhækkanir ýti undir verðbólgu Hann bendir sérstaklega á kílómetragjaldið og áhrif hækkunar þess á verðlag. „Kílómetragjaldið gengur svo skrefi lengra og hækkar um fjóra milljarða umfram verðlagsuppfærslu. Þetta lendir beint í vísitölu neysluverðs og þar með á höfuðstól verðtryggðra lána heimilanna, og raunar á vaxtagjöldum ríkissjóðs sjálfs,“ segir Andri. Frumvarpið felur einnig í sér að persónuafsláttur og mörk skattþrepa hækka eingöngu í takt við verðlag á næsta ári. Framleiðniviðmið sem áður hefur bæst við verðlagsbreytingar verður ekki tekið með. Áætlað er að sú breyting auki tekjur ríkissjóðs um rúma þrjá milljarða króna. Þá á lægra endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði að skila ríkissjóði 3,6 milljörðum til viðbótar. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að markmið aðhaldsins sé að rétta af rekstur ríkissjóðs og styðja við baráttuna gegn verðbólgu og háum vöxtum. Frétt af mbl.is Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Andri telur þó einnig ástæðu til að taka áætluðum afgangi næsta árs með fyrirvara og bendir á hversu mikið afkomuhorfur þessa árs hafi breyst frá samþykkt fjárlaga. „Fjárlög eru áætlun, ekki niðurstaða. Þú hleypur ekki maraþon á undir tveimur tímum þótt áætlunin þín miði að því.“ Hann bendir á að hreinn lánsfjárjöfnuður ársins 2026 hafi átt að vera neikvæður um tæpa 80 milljarða króna en sé nú áætlaður neikvæður um 128 milljarða. „Ég sé engar forsendur fyrir því að 2027 verði nákvæmara, og afgangur upp á 4,7 milljarða, sem er innan við 0,3% af heildargjöldum, þýðir að þá má lítið klikka,“ segir Andri. Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Hækkanir skella á sjúklingum „Og hoppaðu upp í...“ Svakalegt högg fyrir rithöfunda Kristrún: „Gott fyrir Ísland“ Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Í annarlegu ástandi og ógnandi með hníf Hækkanir skella á sjúklingum Hallalaus fjárlög en auknar álögur á almenning Í áfalli eftir flutningana Bergur Ebbi bauð í teiti Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Ekki sársaukalaust en nauðsynlegt Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Einn með alvarlegri áverka eftir slys á laugardag Mest lesið Í gær Í vikunni Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna verkin en þurfa samt nafn læknis „Og hoppaðu upp í...“ Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Norðurljós í Hafnarfirði Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Hvar er draumurinn? fór beinustu leið á toppinn Hernaðarandstæðingar mótmæla harðlega Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Í annarlegu ástandi og ógnandi með hníf Hækkanir skella á sjúklingum Hallalaus fjárlög en auknar álögur á almenning Í áfalli eftir flutningana Bergur Ebbi bauð í teiti Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki sársaukalaust en nauðsynlegt Innkaup ríkisins enn á ný í brennidepli Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund „Gríðarleg vonbrigði“ fyrir ferðaþjónustuna Mest lesið Í gær Í vikunni Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna verkin en þurfa samt nafn læknis „Og hoppaðu upp í...“ Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Norðurljós í Hafnarfirði Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Hvar er draumurinn? fór beinustu leið á toppinn Hernaðarandstæðingar mótmæla harðlega Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið