Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ríkisstjórn afgreiðir fjárlög í dag

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.7.2026 | 6:00 Ríkisstjórn afgreiðir fjárlög í dag Ríkisstjórn kemur saman í dag og afgreiðir fjárlög ársins 2027. mbl.is/Hákon Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Ríkisstjórn mun koma saman til fundar í dag, utan hefðbundinna fundardaga, en til stendur að frumvarp að fjárlögum ársins 2027 verði þar afgreitt og að líkindum með samþykki. Frumvarpið gerir ráð fyrir að fjárlög ársins verði hallalaus. Þetta herma áreiðanlegar heimildir blaðsins en ekki liggur fyrir hvernig markmiði ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög skal náð með frumvarpinu. Heimildarmaður blaðsins vildi ekki gefa neitt upp um það hvernig bilið væri brúað að öðru leyti en því að ekki kæmi til frekari skattahækkana, það er að segja annarra en þeirra sem áður hafa verið boðaðar fyrir næsta ár. Nýjasta þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands gerir ráð fyrir verri efnahagsforsendum en fyrri spá, þar með talið minni hagvexti, sem veikir tekjugrunn ríkissjóðs, og auknu atvinnuleysi, sem eykur kostnað. Fjármálaáætlun vegna áranna 2027-2031, sem gerir ráð fyrir hallalausum fjárlögum á næsta ári, byggir á eldri spánni með hagfelldari forsendum. Fyrir vikið hefur það verið dregið í efa opinberlega, af ýmsum, að raunhæft væri að skila hallalausum fjárlögum fyrir næsta ár, enda væri áætlaður afgangur afar naumur og því þyrfti lítið til að niðurstaðan endaði röngum megin við núllið. Þótt Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra virðist hafa tekist að sauma fjárlagafrumvarpið saman með afgangi er ekki þar með sagt að björninn sé unninn. Forsendur geta og munu áfram breytast auk þess sem frumvarpið mun að öllum líkindum taka einhverjum breytingum í þinglegri meðferð áður en það verður að lögum. Þá er það sjaldnast svo að raunveruleg niðurstaða í rekstri ríkissjóðs verði hin sama og fjárlög gera ráð fyrir – stundum reynist hún betri og stundum verri. Sem dæmi um þetta má horfa til fjárlaga yfirstandandi árs. Samkvæmt fjármálaáætlun sem samþykkt var síðasta sumar var gert ráð fyrir 26 milljarða króna halla í ár. Í frumvarpi fjármálaráðherra til fjárlaga var gert ráð fyrir skárri niðurstöðu, eða 15,5 milljarða króna halla. Í meðförum þingsins jókst ráðgerður halli og fjárlögin voru samþykkt með 28 milljarða króna halla. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands reyndist halli ríkissjóðs eftir fyrsta ársfjórðung nærri 24 milljarðar, svo að sáralítið má út af bera á hinum þremur óuppgerðu fjórðungum ársins eigi hallinn ekki að verða meiri en stefnt var að. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Áfram vætusamt en hiti allt að 17 stigum Andlát: Sr. Þórir Stephensen Ríkisstjórn afgreiðir fjárlög í dag Álit kom ráðherra á óvart Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir Watson vera elítuaktívista Álit kom ráðherra á óvart 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu „Ekkert svigrúm til að gera neitt gott“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki búsettir hér á landi Atburðarásin eins og í bíómynd Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Myndskeið: Ottó aflvana og hættulega nálægt landi Börn niður í sjö ára að skoða klám Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Fækkun beiðna áhyggjuefni Þyrlan kölluð út vegna slyss í Drangey Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Nýjast á mbl.is » Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Áfram vætusamt en hiti allt að 17 stigum Andlát: Sr. Þórir Stephensen Ríkisstjórn afgreiðir fjárlög í dag Álit kom ráðherra á óvart Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Plastbarkamálið þingfest í ágúst Tengja kyrkingartak við óútskýrðan heilsubrest „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki búsettir hér á landi Atburðarásin eins og í bíómynd Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Myndskeið: Ottó aflvana og hættulega nálægt landi Börn niður í sjö ára að skoða klám Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Fækkun beiðna áhyggjuefni Þyrlan kölluð út vegna slyss í Drangey Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“

Share this article