Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vegurinn um Hellisheiði lokaður til austurs milli 14 og 18

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Veg­ur­inn um Hell­is­heiði lok­að­ur til aust­urs milli 14 og 18 Markús Þ. Þórhallsson Vegurinn um Hellisheiði verður lokaður hluta úr degi vegna malbikunar. RÚV / Brynja Þorgeirsdóttir Vegurinn yfir Hellisheiði verður lokaður til austurs frá Reykjavík til Hveragerðis milli klukkan 14 og 18 í dag vegna malbikunarframkvæmda. Hjáleið verður um Þrengsli að því er segir á vef Vegagerðarinnar. Leiðin til vesturs verður meðfram framkvæmdunum. Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tek­inn eftir ógn­andi hegðun vopn­að­ur hnífi Markús Þ. Þórhallsson Lögreglumenn handtóku mann í vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt sem vopnaður hnífi hafði uppi ógnandi hegðun. Lögreglumenn handtóku mann sem hafði uppi ógnandi hegðun í vesturhluta Reykjavíkur. RÚV / Birgir Þór Harðarsson Menn sem þóttu óvelkomnir á matsölustað og mathöll í miðborginni gengu leiðar sinnar eftir að lögreglumenn komu til að vísa þeim brott. Óvelkominn gestur var rekinn brott úr fjölbýlishúsi miðsvæðis í borginni og á svipuðum slóðum var tilkynnt um skemmdarverk á skúr. Það mál er til rannsóknar. Auk þessa höfðu lögreglumenn afskipti af ökumönnum víðs vegar um borgina vegna ýmis konar ástands þeirra eða farartækjanna ásamt því sem nokkrir óku fullgreitt. Meðal þeirra var einn með sólarhringsgömul ökuréttindi. Fyrir 17 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Kynna áherslu­mál þing­vetr­ar­ins Alþingi verður sett í dag. Formenn stjórnarflokkanna kynna þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir hádegi. Þar kemur í ljós hvaða frumvörp ráðherrar leggja fram í vetur. Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Brasilía Ný könnun: Lula og Bol­son­aro hníf­jafn­ir Markús Þ. Þórhallsson Horft yfir Guanabaraflóa þangað sem Sykurmolafjall gnæfir yfir Rio de Janeiro. EPA / GERNOT HENSEL Ný skoðanakönnun sýnir að nánast engu munar á fylgi Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseta og helsta keppinautnum Flávio Bolsonaro, hægri sinnuðum öldungadeildarþingmanni og syni Jair Bolsonaro fyrrverandi forseta. Í könnuninni sem Quaest gerði fyrir dagblaðið Globo var líkt eftir fyrri og síðari umferð forsetakosninganna sem haldnar verða í október. Í fyrri umferðinni fengi Lula 36 prósent atkvæða og Bolsonaro 29 prósent. Í þeirri síðari fengju báðir 41 af hundraði. Lula var kjörinn forseti þriðja sinni haustið 2022 þegar hann bar naumt sigurorð af Jair Bolsonaro. Fyrir 59 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bólivía Níu hafa fund­ist látnir eftir spreng­ingu í her­stöð og fimm enn leitað Alls hafa fundist lík níu hermanna sem fórust þegar sprenging varð í herstöð í um 30 kílómetra fjarlægð frá bólivísku höfuðborginni La Paz. Fimm er enn saknað. Enn liggur 31 á sjúkrahúsi. Atvikið er rannsakað sem manndráp. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zel­en­sky segir Rússa reiðu­búna til við­ræðna Úkraínuforseti segir rússnesk stjórnvöld hafa sýnt vilja til að semja fyrir veturinn um lausn innrásarstríðsins í viðræðum við erindreka Bandaríkjastjórnar um helgina. Rússlandsforseti vildi ekki ergja kollega sinn í Hvíta húsinu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ný rann­sókn: Óbein­ar reyk­ing­ar draga millj­ón­ir til dauða Ný rannsókn sýnir að milljarðar jarðarbúa finna fyrir áhrifum af óbeinum reykingum og að þær hafi einnig dregið fjölda fólks ótímabært til dauða. Þær valda einnig snemmbærum sjúkdómum meðal fólks sem ekki reykir sjálft. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Rík­is­sak­sókn­ari segir af sér vegna rann­sókn­ar á spill­ing­ar­máli tengdu emb­ætt­inu Ríkissaksóknari Úkraínu hefur sagt af sér vegna ásakana um umfangsmikla spillingu. Hann sver af sér alla sök. Húsleit var gerð á skrifstofum saksóknara um helgina. Spilling hefur verið viðvarandi vandamál í Úkraínu. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Stærsta bíósu­mar allra tíma Bíósumarið í ár er það stærsta í sögunni í Norður-Ameríku. Bandarísk og kanadísk kvikmyndahús seldu bíómiða fyrir 4,76 milljarða bandaríkjadala frá 1. maí til dagsins í dag. Ódysseifskviða og Köngulóarmaðurinn: Glænýr dagur voru vinsælustu myndirnar. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rúss­lands­her hefur árásir að nýju eftir þriggja daga hlé Markús Þ. Þórhallsson Háværar sprengingar kváðu við víðs vegar um úkraínsku höfuðborgina Kyiv í kvöld og nótt að sögn fréttaritara AFP í borginni. Hann segist einnig hafa séð elda loga og reyk stíga til himins. Hér má sjá afleiðingar loftárása Rússlandshers á Kyiv fyrr á þessu ári. EPA / SERGEY DOLZHENKO Rússlandsher hóf að nýju loftárásir á Úkraínu eftir þriggja daga hlé vegna heimsóknar bandarísku erindrekanna Steve Witkoff og Jared Kushner til höfuðborga beggja ríkja. Þeir lögðu friðaráætlun Bandaríkjaforseta fyrir ráðamenn. Hermálayfirvöld í Kyiv tilkynntu um yfirvofandi eldflaugaárás og brýndu borgarbúa til að leita sér skjóls. Yfirvöld segja eldflaugar hafa hæft byggingar í Kyiv sjálfri og útborgunum Boryspil og Fastiv. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Sex af hverj­um tíu kveð­ast ugg­andi yfir gengi Alt­ern­at­ive für Deutsch­land Stór hluti þýskra kjósenda, rúmlega 6 af hverjum 10, segist áhyggjufullur yfir góðu gengi Alternative für Deutschland í kosningum á sunnudaginn. Mörgum finnst einnig að flokkurinn eigi að fá stærra hlutverk í stjórnmálum landsins. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Draum­ur­inn er á toppn­um Á fjórða þúsund manns gerðu sér ferð í bíó til að sjá íslensku kvikmyndina Hvar er draumurinn? yfir helgina. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Það er ekki gott að vera óvinur Banda­ríkj­anna en hálfu verra að vera vinur þeirra“ Silfrið var helgað þeim verkefnum sem fram undan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn. Gestir Silfursins ræddu meðal annars kort sem Trump birti á samfélagsmiðlum í dag, EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Tók Albert átta mín­út­ur að skora fyrsta markið Albert Guðmundsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Lazio í sínum fyrsta leik fyrir félagið en hann er á láni þar frá Fiorentina. Hann kom inn á undir lok leiks og skoraði það sem reyndist úrslitamarkið í 2-1 sigri á Udinese. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Halla­laus fjár­lög „allt of dýru verði keypt“ Þingmaður Framsóknarflokksins segir hallalaus fjárlög of dýru verði keypt. Ríkisstjórnin hafi ekkert lært af fjárlögum yfirstandandi árs. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina ætla að sækja tekjur þar sem þær séu til. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Serbía Þús­und­ir við útför dæmds stríðs­glæpa­manns Fjölmenni mætti til útfarar Ratko Mladić, sem var einn af leiðtogum Bosníu-Serba á tíunda áratugnum. Hann var dæmdur fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Síerra Leóne Barna­heill byggðu leik- og grunn­skóla í Síerra Leóne Leik- og grunnskóli sem Barnaheill byggðu í þorpinu Macca í Síerra Leóne var vígður í morgun. „Það var mögnuð stund að fá að koma þarna í dag og hitta fólkið í þorpinu,“ segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Blikar aftur á topp­inn og Vík­ing­ar úr botns­æt­inu Tveir síðustu leikir Bestu deildar kvenna fyrir tvískiptingu hennar voru í kvöld. Breiðablik endurheimi toppsætið með 1-1 jafntefli gegn Þrótti og þá spyrnti Víkingur sér af botninum með 1-2 sigri á Stjörnunni. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg 80 ára rakari á Sel­fossi enn á fullu að klippa og snyrta hár Áttræður rakari á Selfossi segir vel koma til greina að halda áfram að klippa fram yfir nírætt. Klippingarnar eru vel á annað hundrað þúsund á löngum starfsferli. 7. september 2026 kl. 20:07ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ut­an­rík­is­ráð­herra kall­aði sendi­herra á fund vegna mynd­birt­ing­ar Banda­ríkja­for­seta Utanríkisráðherra kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í dag mynd á samfélagsmiðlum þar sem Ísland og fleiri ríki eru þakin bandaríska fánanum. 7. september 2026 kl. 19:55INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Mikill við­snún­ing­ur eða olía á verð­bólgu­bál? Gangi fjárlagafrumvarp sem ráðherra kynnti í morgun eftir verður það í fyrsta sinn síðan 2018 sem ríkissjóður er hallalaus. Skiptar skoðanir eru um hvort frumvarpið nái fram viðsnúningi í efnahagsmálum eða kyndi undir verðbólgubáli. 7. september 2026 kl. 19:37INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál „Skulda­hlut­föll­in hjá ríkinu eru ennþá að hækka“ Hagfræðingur segir skattahækkanir og álögur sem ríkisstjórnin kynnti í morgun eiga eftir að ýta undir verðbólgu eftir áramót. Of snemmt sé að fagna hallalausum fjárlögum og lítið megi út af bregða. 7. september 2026 kl. 19:11ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Allt að 100 þúsund eignir rangt verð­metn­ar Komið hefur í ljós að allt að 100 þúsund húseignir í Danmörku voru metnar rangt vegna mistaka sem matsnefnd fasteigna gerði árið 2022. Það varð til þess að eigendurnir hafa greitt ranga fasteignaskatta í tvö ár, ýmist of háa eða of lága. 7. september 2026 kl. 18:54INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Dósent í hag­fræði telur fjár­lög ekki verð­bólgu­hvetj­andi Fjárlagafrumvarp næsta árs, sem kynnt var í dag, er ekki verðbólguhvetjandi að mati dósents í hagfræði. Hækkun krónutölugjalda kemur á óvart. 7. september 2026 kl. 18:20INNLENDAR FRÉTTIR Peningar Ferða­kostn­að­ur­inn jafn­vel hærri en æf­inga­gjöld­in á lands­byggð­inni Íþróttafélög á landsbyggðinni rukka að jafnaði lægri æfingagjöld en félög á höfuðborgarsvæðinu. Slíkur samanburður segir þó aðeins hálfa söguna, segir yfirþjálfari Þórs í handbolta. 7. september 2026 kl. 18:19INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Báðir grun­uðu í Kárs­nes­mál­inu í haldi hér­lend­is Pólskur ríkisborgari sem er sakborningur í manndrápsmáli á Kársnesi var fluttur til landsins frá Póllandi á föstudag. Tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. 7. september 2026 kl. 18:07INNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Einka­miðl­ar fá meiri pening en dregið úr aug­lýs­ing­um RÚV Ríkisstjórnin ætlar að auka stuðning við einkarekna fjölmiðla um tæpar 278 milljónir króna. Þe

Share this article