Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Loka Hellisheiði á þriðjudag vegna malbikunar

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Loka Hell­is­heiði á þriðju­dag vegna mal­bik­un­ar Brynjólfur Þór Guðmundsson Vegagerðin hyggst ráðast í malbiksviðgerðir á Hellisheiði á morgun milli Reykjavíkur og Hveragerðis. Veginum verður lokað fyrir umferð meðan á viðgerðum stendur. Hjáleið verður um Þrengslin á meðan. Bílaumferð á Hellisheiði. RÚV / Brynja Þorgeirsdóttir Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Mikið við­bragð en lítill eldur á Ak­ur­eyri í morgun Siguróli Magni Sigurðsson Slökkviliðið á Akureyri fékk tilkynningu um eld á efstu hæð Alþýðuhússins í Skipagötu 14 laust fyrir hálf 9 í morgun. Eldur hafði kviknað í millivegg hjá veitingahúsinu Strikinu. Starfsmaður varð var við eldinn og náði að ráða niðurlögum hans að mestu og hringja eftir aðstoð. Þegar slökkviliðið kom á staðinn opnuðu þeir vegginn og slökktu í restinni af glæðunum þar. Húsið var rýmt á meðan. Aðgerðum á vettvangi var lokið upp úr 9. Ekki þurfti að reykræsta húsið en Vigfús Ólafur Bjarkason, varðstjóri Slökkviliðsins, sagði í samtali við fréttastofu að skjót viðbrögð starfsmannsins hefðu skipt höfuðmáli. Strikið er á efstu hæð Alþýðuhússins á Akureyri Aðsend Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveir hand­tekn­ir grun­að­ir um frels­is­svipt­ingu og hót­an­ir Tveir voru handteknir í aðgerðum sérsveitarinnar og lögreglu á Akureyri fyrir helgi. Þeir voru grunaðir um að hafa svipt mann frelsi sínu og hótað honum. Fyrir 30 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist Hélt að þögnin ríkti því einn úr hljóm­sveit­inni þyrfti á klós­ett­ið „Einhvern veginn tókst Barböru að fá fólk til að þegja,“ segir Árni Pétur Guðjónsson. Honum var boðið á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Barböru Hannigan í vikunni. Sveitin flutti meðal annars Þögn eftir John Cage. Fyrir 57 mínútumÍÞRÓTTIR Íþróttir Arnar Davíð vann Opna norska mótið í keilu Arnar Davíð Jónsson vann Opna norska meistaramótið í keilu um helgina. Mótið er eitt það sterkasta á Norðurlöndunum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Daði Már: „Loks­ins að fara úr mínus í plús“ Fjármálaráðherra segir að rekstur ríkissjóðs fari úr mínusi í plús og boðar fimm milljarða króna afgang á fjárlagafrumvarpi næsta árs. Fjárlög hafa ekki verið afgreidd með afgangi síðan 2018 þegar Alþingi samþykkti fjárlög fyrir ríkisreksturinn 2019. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Tvö börn meðal ellefu sem voru drepn­ir í árásum Ísraelar gerðu loftárásir á þorp í Suður-Líbanon í gærkvöld og í nótt. Líbanskir fjölmiðlar segja að ellefu hafi verið drepnir í árásunum, þeirra á meðal tvö ung börn. Ísraelar segja Hezbollah halda áfram drónaárásum á Ísrael. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Færri tengi­f­ar­þeg­ar en fleiri sem koma til lands­ins Brynjólfur Þór Guðmundsson Farþegum Icelandair fækkaði um fimm prósent milli ára í ágúst. Alls flugu 577 þúsund með félaginu. Framboð á flugsætum dróst saman milli ára. Tengifarþegum fækkaði um 27 prósent milli ára en farþegum frá Íslandi fjölgaði um 12% og farþegum í innanlandsflugi um 4%. Í tilkynningu frá Icelandair segir að þetta sé í samræmi við þá stefnu félagsins að leggja meiri áherslu á markaðina til og frá Íslandi. Auk þess hafi mikil eftirspurn verið eftir flugsætum í tengslum við sólmyrkvann í síðasta mánuði. Flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Rann­saka íkveikju á Stuðl­um sem al­var­legt atvik Brynjólfur Þór Guðmundsson Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála rannsakar íkveikju á Stuðlum í síðasta mánuði sem alvarlegt atvik. Morgunblaðið greinir frá og hefur eftir Herdísi Gunnarsdóttur, forstjóra stofnunarinnar, sem staðfestir að íkveikjan sé til rannsóknar. Morgunblaðið greindi frá því á föstudag að drengur hefði kveikt eld í dýnu í herbergi sínu. Starfsfólk brást skjótt við og sá til þess að ekki fór verr. Meðferðarheimilið Stuðlar. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Þýska­land krefst frá­vís­un­ar ásök­un­ar um stuðn­ing við þjóð­ar­morð Lögmenn Þýskalands krefjast frávísunar í máli sem Níkaragva höfðaði fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag 2024 þar sem þýsk yfirvöld eru sökuð um að greiða fyrir þjóðarmorði með stuðningi sínum við Ísrael. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Blæs suð­aust­an til og rignir fyrir austan Gul viðvörun sem var gefin út á Suðausturlandi í gærkvöld er í fullu gildi fram á seinni part dags. Talsverð rigning verður á Austfjörðum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Kynnir frum­varp til fjár­laga 2027 í dag Fjárlagafrumvarp fyrir 2027 verður kynnt í dag. Áætlað er að afgangur verði upp á einhverja milljarða íslenskra króna. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Ólympíuleikar „Andri á mjög raun­hæfa mögu­leika inn á Ól­ymp­íu­leik­ana“ Fremsti skylmingamaður landsins, Andri Nikolaysson, vann til silfurverðlauna á sterku alþjóðlegu móti í Reykjavík um helgina. Forseti ÍSÍ er bjartsýnn á að Andri komist á Ólympíuleikana og segir mikilvægt að hann fái stuðning í einu og öllu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Eldur í fjöl­býl­is­húsi reynd­ist íbúi að grilla Markús Þ. Þórhallsson Slökkvilið að störfum. Mynd úr safni. RÚV / Ragnar Visage Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti að reykræsta hótel í Hlíðahverfi í gær eftir að mikill reykur barst frá bakaraofni. Einnig barst tilkynning um eld í fjölbýlishúsi í Kópavogi sem reyndist aðeins vera íbúa að grilla, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innbrot á veitingastað í Vesturborginni er til rannsóknar og nokkrir ökumenn voru sektaðir fyrir margvísleg brot. Engan sakaði í umferðaróhappi í Grafarvogi en eitt ökutæki varð óökufært eftir. Enginn meiddist heldur þegar rafhlaupahjóli var ekið á bíl í Hafnarfirði. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Musk óskar leið­toga AfD til ham­ingju með sig­ur­inn í Sax­l­andi-Anhalt Markús Þ. Þórhallsson Elon Musk er ríkasti maður heims og á meðal annars bílaframleiðslufyrirtækið Tesla og geimferðafyrirtækið SpaceX. AP / Mark Schiefelbein Bandaríski auðkýfingurinn Elon Musk hefur sent Alice Weidel, leiðtoga þýska harðlínuflokksins Alternative für Deutschland, árnaðaróskir eftirkosningasigurinn í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. „Vel gert,“ skrifaði Musk undir færslu Weidel á samfélagsmiðlinum X þar sem hún hyllti oddvitann Ulrich Siegmund. Hann þakkar Musk á móti fyrir kveðjuna og stuðninginn. Flokkurinn hlaut tæplega 44 prósent atkvæða en tryggði sér ekki meirihluta á þingi sambandslandsins. Elon Musk hefur beitt áhrifum sínum til að gagnrýna þýsk stjórnvöld og ítrekað lýst yfir stuðningi við AfD. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump segist finn­ast Nýja Am­er­íka betra heiti ríkis en Nýja Mexíkó Bandaríkjaforseti leggur til að heiti ríkisins Nýju Mexíkó skuli breytt í Nýja Ameríka. Margir hefðu komið að máli við sig og honum þætti hugmyndin frábær. Ríkisstjóri Nýju Mexíkó segir það af og frá. Ríkisheitið væri eldra en Bandaríkin. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Serbía Búist við tug­þús­und­um við útför Mla­d­ićs — Bosníu-slátr­ar­ans Ratko Mladić, dæmdur stríðsglæpamaður sem bar viðurnefnið Bosníu-slátrarinn, verður jarðsunginn í serbnesku höfuðborginni Belgrad í dag. Leiðtogi Bosníu segir dapurlegt hve margir Serbar hylli manninn. Stækkunarstjóri ESB hætti við Serbíuheimsókn. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Indónesía Miklar trufl­an­ir á flug­um­ferð vegna eld­goss Markús Þ. Þórhallsson Örtröð í flugstöðinni við alþjóðaflugvöllinn við Djakarta. EPA / FAISAL RAMADHAN Millilandaflugvöllurinn í indónesísku höfuðborginni Djakarta verður lokaður hið minnsta til klukkan sex síðdegis að staðartíma vegna eldgoss í fjallinu Anaka Krakatá. Lokunin nær einnig til minnst sex flugvalla til viðbótar. Þúsundir farþega komast því hvorki lönd né strönd og flugmálayfirvöld hvetja þá til að fylgjast grannt með framvindu mála. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísra­elski herinn gerði loft­árás­ir á bæ í suð­ur­hluta Líban­ons í hefnd­ar­skyni fyrir dróna­árás Hez­boll­ah Ísraelsher gerði árásir á bæ í suðurhluta Líbanon eftir að hafa skipað íbúunum að koma sér brott. Hezbollah hafi bækistöð þar. Árásin sé í hefndarskyni fyrir drónaárás Hezbollah á ísraelskar hersveitir. Forseti Líbanons krefst þess að atlögum linni. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bólivía Minnst sex fórust í spreng­ingu í her­stöð og ellefu enn saknað Vitað er að hið minnsta sex fórust í öflugri sprengingu sem varð í herstöð á föstudagskvöldið. Þrjú lík fundust í rústum húsa í gær til viðbótar þremur sem þegar höfðu fundist. Enn er 11 saknað. Fyrrverandi forseti kallar aðkomu stjórnvalda glæp. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Boða 15 ára ald­urs­tak­mark að sam­fé­lags­miðl­um Markús Þ. Þórhallsson Danska ríkisstjórnin hyggst feta í fótspor nokkurra annarra ríkja og setja aldurstakmark á notkun samfélagsmiðla. Christina Egelund ráðherra. EPA / Olivier Matthys Öllum börnum undir fimmtán ára verður þá algerlega bannað að nota miðlana. Christina Egelund, ráðherra vísinda-, mennta- og stafrænna mála, greindi frá þessu í dag. Frumvarp þessa efnis hefur verið í umsagnarferli og til stendur að lög taki gildi 1. júlí á næsta ári. Opinbert aldurstakmark á flestum samfélagsmiðlum er þrettán ár og í upphaflegum drögum átti að heimila þrettán til fjórtán ára börnum að nota þá með samþykki foreldra eða forráðamanna. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Alt­ern­at­ive für Deutsch­land sig­ur­veg­ari í Sax­l­andi-Anhalt Harðlínuflokkurinn Alternative für Deutschland er sigurvegari í þingkosningum í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Flokkurinn tvöfaldar fylgi sitt frá síðustu kosningum og fær um 44% atkvæða. Kristilegir demókratar eru langt á eftir. 6. september 2026 kl. 23:57ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Lyk­il­mað­ur Sví­þjóð­ar­demó­krata í leyfi því sam­býl­is­kona hans er sökuð um dreif­ingu rúss­nesks áróð­urs Einn helsti lykilmaður Svíþjóðardemókrata ætlar að taka sér leyfi eftir að sambýlis

Share this article