Innlent | mbl | 8.9.2026 | 7:30 Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Ekkert virðist ætla að stöðva fall frammistöðu barna á Íslandi í alþjóðlegum samanburði. mbl.is/Karítas Skúli Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Niðurstöður PISA birtar á morgun Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Inga tekur af skarið og setur símabann Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ » Fleiri tengdar fréttir Frammistaða barna hér á landi hefur samanlagt hrunið meira frá árinu 2015 en í nokkru öðru þeirra rúmlega 70 ríkja eða landsvæða sem horft er til í nýrri PISA-samantekt OECD. Niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025, sem 15 ára nemendur þreyttu vorið 2025, voru birtar rétt í þessu. Könnunin er að jafnaði lögð fyrir á þriggja ára fresti og er yfirleitt horft til þriggja kjarnagreina; náttúruvísinda, lesskilnings og stærðfræði. Þegar þróunin í greinunum þremur er lögð saman, fyrir árin 2015 til 2025, kemur í ljós að Ísland rekur lestina í samanburðinum. Mesta hrunið hér í tveimur greinum af þremur Í tveimur greinum af þessum þremur hefur frammistöðu barnanna hrakað meira á Íslandi en nokkurs staðar annars staðar á þessu tímabili. Annars vegar í náttúruvísindum, þar sem meðaltalsþróunin innan 35 samanburðarhæfra ríkja OECD hefur verið -7 stig. Á Íslandi hefur þróunin á sama tíma verið -37 stig. Hins vegar í lesskilningi, þar sem innan OECD hefur þróunin verið -27 stig, en á Íslandi er hún -64 stig. Í þriðju greininni, stærðfræði, hefur meðaltalsþróun OECD verið -24 stig. Á Íslandi hefur hún verið -46 stig. Í einungis þremur löndum, af rúmlega sjötíu samanburðarsvæðum stofnunarinnar, hefur fallið verið meira í stærðfræði. Frétt af mbl.is Óboðlegur árangur grunnskólanna Þróuninni ekki snúið við Síðustu niðurstöður PISA voru birtar í desember 2023, en þá hafði prófið verið tekið árið 2022. Athygli vakti þá að ekkert land féll meira en Ísland frá könnuninni þar á undan, sem lögð var fyrir árið 2018. Nú er ljóst að þeirri þróun hefur ekki verið snúið við. Sérfræðingar sem mbl.is hefur rætt við undanfarin ár bjuggust heldur ekki við því. Bentu þeir á að lítið sem ekkert hefði verið gert til að stemma stigu við þessu falli. Ísland fellur aftur á milli kannana Niðurstöður könnunarinnar nú sýna að frá árinu 2022 og til 2025 fellur Ísland um 14 stig í lesskilningi, 9 stig í stærðfræði og 6 stig í náttúruvísindum. Síðastnefnda breytingin þykir þó ekki næg til að vera tölfræðilega marktæk. Í skýrslu OECD er tekið sérstaklega fram að niðurstöðurnar ýmist staðfesti eða framlengi það mikla fall sem varð í síðustu könnun. Það sem áður mátti kannski af veikum mætti skýra sem tímabundið frávik er því nú orðið hluti af skýrri langtímaþróun. Frétt af mbl.is Ekki lagt áherslu á PISA til þessa Ísland neðst Norðurlandanna En Ísland er ekki bara í slæmum málum þegar litið er til þróunar yfir ákveðin tímabil. Frammistaðan sjálf er líka slæm. Þannig er Ísland: 41 stigi undir meðaltali OECD í náttúruvísindum (441/482). 39 stigum undir í lesskilningi (422/461). 13 stigum undir í stærðfræði (450/463). Þau ríki sem standa Íslandi næst í stigafjölda eru yfirleitt ekki þau sem við erum gjörn á að bera okkur saman við. Í náttúruvísindum eru það Brúnei, Chile og Ísrael. Í lesskilningi eru það Úrúgvæ, Svartfjallaland og Grikkland. Í stærðfræði eru það Sameinuðu arabísku furstadæmin, Króatía og Noregur. Þess ber að geta að fyrirvari er gerður við tölurnar frá Noregi þar sem 10,4% nemenda voru útilokuð frá þátttöku. Eftir stendur þó að ekkert hinna ríkja Norðurlandanna stendur verr en Ísland í neinni þessara kjarnagreina. Frétt af mbl.is Skólayfirvöld axli ábyrgð Ísland á botni lista OECD-ríkja í Evrópu Þegar á heildarmyndina er litið kann það að skekkja hana að PISA-könnunin tekur til mun fleiri ríkja og landsvæða en þeirra sem standa að Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD. Við bætast nefnilega mörg lönd sem Íslendingar eru ekki vanir að bera sig saman við. En ef við horfum einungis til Evrópuríkja innan OECD og röðum þeim miðað við birt meðalskor er staða Íslands eftirfarandi: Náttúruvísindi: 25. sæti af 26. Lesskilningur: 26. sæti af 26. Stærðfræði: 25. sæti af 26. Aðeins Grikkland er neðar í þeim kjarnagreinum þar sem Ísland vermir ekki botninn. Langt á eftir öðrum ríkjum Norðurlanda Og loks til marks um hversu langt Ísland er á eftir hinum ríkjum Norðurlandanna, miðað við sama lista Evrópuríkja innan OECD: Noregur vermir 23. sætið í náttúruvísindum, tveimur sætum ofar en Ísland. En á löndunum tveimur munar samt heilum 29 stigum. Á sama tíma vantar Noregi aðeins litlu fleiri stig, 34, til að jafna Finnland í 3. sæti. Svíþjóð og Danmörk eru á bilinu þar á milli. Ísland kemur enn verr út þegar litið er til lesskilnings. Þar sitjum við á botninum með 422 stig. Næsta ríki Norðurlandanna fyrir ofan okkur er Noregur, í 17. sæti, með 453 stig. Munar 31 stigi. En ef Noregur fengi þau 31 stig til viðbótar færi landið upp í 4. sæti listans, ofar en Finnland, Svíþjóð og Danmörk. Frétt af mbl.is Minnast ekki orði á það sem enn vantar Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Niðurstöður PISA birtar á morgun Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Inga tekur af skarið og setur símabann Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bilið breikkar mest á Íslandi Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Skorað á Þorgerði að segja af sér Flytja lög eftir heiðurslaunaþega Segir Rússa reiðubúna til samningaviðræðna Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hallalaus fjárlög en auknar álögur á almenning Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingum „Gríðarleg vonbrigði“ fyrir ferðaþjónustuna Sigmundur Davíð: „Staðfesting uppgjafar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Og hoppaðu upp í...“ Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Norðurljós í Hafnarfirði Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Hvar er draumurinn? fór beinustu leið á toppinn Hernaðarandstæðingar mótmæla harðlega Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Bilið breikkar mest á Íslandi Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Skorað á Þorgerði að segja af sér Flytja lög eftir heiðurslaunaþega Segir Rússa reiðubúna til samningaviðræðna Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum „Gríðarleg vonbrigði“ fyrir ferðaþjónustuna Bilið breikkar mest á Íslandi Hækkanir skella á sjúklingum Mest lesið Í gær Í vikunni Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Og hoppaðu upp í...“ Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Norðurljós í Hafnarfirði Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Hvar er draumurinn? fór beinustu leið á toppinn Hernaðarandstæðingar mótmæla harðlega Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið