Innlent | mbl | 9.9.2026 | 10:40 Þetta boðar Inga til að bæta árangurinn í PISA Inga segir núverandi ríkisstjórn leggja sérstaka áherslu á málefni barna og menntamál. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Ísland skrapar botninn í nýrri könnun „Læsi er ekki áhugamál“ Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn Aðeins Norður-Makedónía neðar en Ísland Drengir þurfi að sjá hvað þeir græða á lestrinum » Fleiri tengdar fréttir Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, boðar fjölda aðgerða til að snúa við þeirri þróun sem blasir enn og aftur við eftir að niðurstöður PISA-könnunarinnar voru gerðar opinberar. Greindi hún frá þeim á blaðamannafundi sem hún boðaði til í gærmorgun, þar sem hún brást við þeim niðurstöðum PISA sem gerðar voru opinberar í morgun. Ísland er þar ýmist í neðsta eða næstneðsta sæti, í samanburði við 26 önnur ríki í Evrópu innan OECD. Frétt af mbl.is Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA 1. Stóraukin áhersla á grunnfærni og skýrari forgangsröðun „Í fyrsta lagi þá nefni ég hér stóraukna áherslu á grunnfærni kjarnagreina, lestur, íslensku og vísindi, sem sagt sem svokölluðu STEM-greinarnar okkar, sem og endurskoðun námskrár með skýrari forgangsröðun,“ sagði Inga. Ætlunin er að gera miklar og samræmdar væntingar til allra nemenda og fara djúpt í grunninn. Kennd verða færri viðfangsefni en lögð meiri áhersla á þau viðfangsefni sem börnin takast á við hverju sinni. 2. Ný námsgögn fyrir 455 milljónir króna „Í öðru lagi þá er það nú eitt það merkilegasta af því sem er að fara að raungerast akkúrat núna, 455 milljónir króna verða lagðar í ný námsgögn.“ Ráðist verði raunverulega í útgáfu á nýjum námsgögnum. „Við erum að fara að gefa kennurunum okkar pínulítinn frið til þess að þurfa ekki að eyða kvöldum og helgum í það að búa til námsefni fyrir nemendurna sína fyrir daginn eftir eða þarnæsta dag.“ Sagði Inga þetta „stórkostlegt.“ Frétt af mbl.is Bilið breikkar mest á Íslandi 3. Símafriður í skólum „Í þriðja lagi og síðast en ekki síst vil ég nú segja það, því það er nú eiginlega það sem ég bind einna mestar vonir við, það er símafriður í skólunum. Það er að gefa börnunum okkar tækifæri á því að losna við símana á skólatíma,“ sagði Inga og vísaði til þess að snjallsímar gerðu fólk háð samfélagsmiðlum. „Við ætlum að leyfa börnunum okkar að vera börn á meðan þau eru börn. Við ætlum að reyna að gera allt sem í okkar valdi stendur til að losa þau undan áreiti og áhættuhegðun og öðru slíku sem fylgir því til dæmis að vera á samfélagsmiðlum daginn út og inn.“ 4. Átak í starfsþróun kennara Í fjórða lagi talaði Inga um að gera átak í starfsþróun kennara. Sagði hún aðeins 57 prósent kennara telja að starfsþróun hefði áhrif á kennsluna. „Það er eitthvað sem við erum ekki að gera rétt því það vantar ekki vilja kennaranna okkar til að fá að taka þátt.“ Sagði Inga að þarna yrði gert betur. „Þannig að við erum að styðja betur við starfsþróun kennaranna okkar.“ Frétt af mbl.is Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni 5. Aukinn faglegur stuðningur við skólana „Í fimmta lagi ættum við auðvitað að auka faglegan stuðning við skólana sjálfa. Það þarf að huga sérstaklega að nemendum af erlendum uppruna,“ sagði Inga. Benti hún á að það vantaði fleiri kennara sem sérhæfðu sig í íslenskukennslu sem annað tungumál. Veita þurfi kennurum það sem þeir þurfi á að halda svo þeir geti notið sín í starfi. Þá þurfi öflugir kennarar að leiðbeina öðrum. Frétt af mbl.is Reyna að fegra sláandi niðurstöður 6. Aukin sérhæfing kennara Í sjötta lagi þurfi að auka sérhæfingu kennara. „Það er vandi víða í grunnskólakerfinu og við þurfum að lyfta upp kennaranáminu. Úttekt á kennaranáminu er núna í ferli,“ sagði Inga. Hún og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hafi tekið höndum saman og ætli að leggja sitt af mörkum til að gera kennarastarfið meira spennandi og skilvirkara. Þau vilji sjá að kennaranemum sé veitt meira svigrúm til þess að fara í meira mæli í vettvangsstarf eftir ákveðinn tíma í kennaranáminu. Að þeir geti notað einhvern tíma af því til þess að vera í starfsþjálfun á launum, Nýr nemendagrunnur Inga nefndi einnig nýjan nemendagrunn sem hún sagði grípa nemendur fyrr og geta dregið úr brottfalli sem hefði verið allt of mikið. Sagði hún miklar vonir vera bundnar við allt það sem stæði til að setja inn í menntakerfið. „Við bindum miklar vonir við það að í leiðinni getum við tekið utan um þennan hóp og stutt þannig að þau munu ekki falla úr námi.“ Frétt af mbl.is Aðeins Norður-Makedónía neðar en Ísland Nýr matsferill og möguleg samræmd próf Hún kom líka inn á nýjan matsferil sem lagður var fyrir í fyrsta skipti í vor og er sagður eiga að koma í stað samræmdra prófa. Segir hún hins vegar ekkert því til fyrirstöðu að skoða þá aðferðafræði aftur að leggja samræmd próf fyrir á sama tíma um allt land. Niðurstöður úr matsferlinum liggja nú fyrir en þær hafa ekki verið birtar. „Við birtum ekki þær niðurstöður að þessu sinni en það munum við gera næsta sumar, eftir að við höfum aftur lagt fram nákvæmlega sams konar framvindupróf.“ Sagðist hún binda miklar vonir við að sjá mun á einkunnum á milli ára eftir að símafriði verði komið á. Frétt af mbl.is Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Aðstoða þá sem þurfa á að halda Inga sagði að mestri aðstoð yrði beint til þeirra skóla og nemenda sem þyrftu mest á henni að halda, enda þyrfti ekki að grípa inn í þar sem allt gengi vel. „Það eru skólar sem eru með meiri og standa frammi fyrir frekari áskorunum en aðrir og þá er það á okkar ábyrgð að stíga þar fast inn til þess að hjálpa þeim.“ Nemendur fái sérstakan stuðning Hún kom inn á nýja einkunnakerfið þar sem einkunnir verða gefnar í tölustöfum og ítrekaði að einkunnin 8 þýddi einfaldlega 8. Ekkert annað. Sagði hún þá sem fá undir 4 í einkunn fá einkunnina óstaðið. Börnin verði stjörnumerkt og fái sérstakan stuðning þegar þau komi upp í framhaldsskóla. „Það er enginn grunnskólanemi sem er látinn sitja eftir eftir tíunda bekk, enginn,“ sagði Inga „Þegar þau koma upp í framhaldsskólann sinn þá fá þau sérstakan stuðning, sérstakan stuðning sem á að fylgja þeirra þörfum. Það er sérstaklega tekið utan um þau en þau fá að fylgja sínum aldurshópi.“ Frétt af mbl.is Stjórnvöld sofnað á verðinum Skýrari aðalnámskrá og skýr viðmið eftir bekkjum Hún sagðist ætla að leggja sig alla fram um að skoða nýja aðgerðaáætlun í menntamálum og að aðalnámskráin yrði tekin til endurskoðunar. „Hún verður gerð skilvirk, hún verður skýr. Það verður algjörlega skýrt hvað þarf að vera búið að geta komið til skila eftir 1. bekk, eftir 2. bekk, eftir 3. bekk, eftir 4. bekk.“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Ísland skrapar botninn í nýrri könnun „Læsi er ekki áhugamál“ Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn Aðeins Norður-Makedónía neðar en Ísland Drengir þurfi að sjá hvað þeir græða á lestrinum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Handtekinn fyrir að hrækja á tyrkneska fánann Kóngafólk gekk á eftir kistunni Aldrei séð annan eins markaskorara Bjarnargreiði við börnin „Gæti drepið okkur öll fyrir lok áratugarins“ Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Finnur ekki héraðsdóm Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Biður Loga afsökunar Andlát: Christian Roth Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Handtekinn fyrir að hrækja á tyrkneska fánann Kóngafólk gekk á eftir kistunni Aldrei séð annan eins markaskorara Bjarnargreiði við börnin „Gæti drepið okkur öll fyrir lok áratugarins“ Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Kóngafólk gekk á eftir kistunni Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Biður Loga afsökunar Andlát: Christian Roth Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetra