Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.9.2026 | 22:40 | Uppfært 8.9.2026 7:29 Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Til skoðunar er hvort víkkað starfssvið hjúkrunarfræðinga geti einfaldað ferli og dregið úr töfum í þjónustu. Samsett mynd: mbl.is/Þorkell Þorkelsson/Kristinn Magnússon Rósa Margrét Tryggvadóttir [email protected] Setja bókamerki Regluverk, verklag og jafnvel tölvukerfi geta komið í veg fyrir að hjúkrunarfræðingar setji eigið nafn við vinnu sem þeir þegar sinna. Í sumum tilfellum þarf læknir því að koma að ferlinu þótt hjúkrunarfræðingurinn hafi unnið vinnuna sjálfur, sem getur tafið þjónustu. Þetta segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í samtali við mbl.is. Hún segir víkkað starfssvið hjúkrunarfræðinga vera baráttumál félagsins og telur að betur megi nýta þekkingu þeirra og menntun innan heilbrigðiskerfisins. Tilefni samtalsins var meðal annars hvort hjúkrunarfræðingar gætu fengið auknar heimildir til að senda sjúklinga í myndgreiningu, til dæmis röntgen, án þess að læknir þurfi fyrst að gefa út beiðni. Slíkt gæti meðal annars flýtt fyrir ferilinu á bráðamóttöku í þeim tilvikum þar sem bíða þarf eftir að læknir komi að málinu áður en rannsókn fer fram. Helga Rósa segir málið þó mun víðtækara en svo og snúast um ýmis verkefni sem hjúkrunarfræðingar sinna þegar í dag. Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir að betur megi nýta þekkingu og menntun hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðiskerfisins. mbl.is/Sigurður Bogi Vinna verkið en þurfa læknanúmer Hún nefnir meðal annars beiðnir um rannsóknir og hjálpartæki, tilvísanir og jafnvel ákveðin vottorð. Í ýmsum tilfellum séu það hjúkrunarfræðingar sem vinni vinnuna en beiðnin þurfi engu að síður að fara í nafni annarrar starfsstéttar. „Þannig að þú þarft alltaf lækna, þú þarft alltaf læknanúmerið á. En það er ekki endilega læknirinn sem hefur þekkinguna eða er búinn að vera í samskiptum við einstaklinginn sem að þarf á þjónustunni að halda.“ Langur biðtími og mikið álag á bráðamóttöku hafa lengi verið til umræðu. Rýmri heimildir hjúkrunarfræðinga geti flýtt fyrir þjónustu og aukið skilvirkni. mbl.is/Þorkell Þorkelsson Hún segir þetta geta tafið þjónustuna og að skoða þurfi á hvaða sviðum hægt sé að breyta fyrirkomulaginu. Markmiðið sé meðal annars að hjúkrunarfræðingar geti „sett nafn sitt við þá vinnu sem þeir nú þegar eru að sinna.“ Helga Rósa segir hindranirnar ekki allar af sama toga. Í sumum tilvikum þurfi mögulega lagabreytingar eða breytingar á reglugerðum en annars staðar geti verið um gamlar venjur, verklag eða tæknilegar hindranir að ræða. Hún nefnir sem dæmi að ekkert í lögum banni hjúkrunarfræðingi endilega að óska eftir ákveðinni rannsókn, en kerfi Sjúkratrygginga eða upplýsingakerfi geti verið þannig upp sett að aðeins sé gert ráð fyrir lækni. „Sumt er hefð og menning. Það er ekkert sem segir í lögunum um það að hjúkrunarfræðingar megi ekki panta rannsókn á þvagi til dæmis,“ segir Helga. Viðurkenndir ferlar notaðir erlendis Röntgen og önnur myndgreining geta hins vegar verið flóknara mál þar sem sérstakar reglur gilda um notkun jónandi geislunar. Fjölþjóðlegar rannsóknir hafa hins vegar sýnt fram á að með notkun viðurkenndra greiningarferla, á borð við Ottowa-reglurnar, geta hjúkrunarfræðingar unnið eftir skýrum verkferlum við mat á þörf fyrir myndgreiningu, til dæmis vegna áverka á ökklum og úlnliðum. Slíkar vinnuaðferðir eru viðurkenndar og notaðar víða erlendis og geta stytt þjónustuferlið og aukið hagræðingu. Átti að skila fyrir rúmu ári Málið var sérstaklega tekið fyrir í síðasta kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins. Þar var ákveðið að skipa vinnuhóp um víkkað starfssvið sérfræðinga í hjúkrun sem skyldi skoða hvernig mætti hámarka nýtingu menntunar og þekkingar þeirra. Samkvæmt kjarasamningnum áttu tillögur hópsins að liggja fyrir eigi síðar en 1. maí 2025. Rúmu ári síðar liggja niðurstöðurnar þó enn ekki fyrir. Helga Rósa segir vinnu hópsins langt komna og að mikilvægt sé að hópurinn skili af sér sem fyrst. Hún segir málið að öllum líkindum flóknara en það virðist við fyrstu sýn enda þurfi meðal annars að greina hvar breytinga sé þörf á lögum og reglugerðum og hvar hindranir felist í menningu og verklagi. Telur breytingar auka skilvirkni Helga Rósa telur skýrt að heilbrigðiskerfið geti haft ávinning af því að hæfni hjúkrunarfræðinga sé nýtt betur. „Ég held klárlega að þetta myndi auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri í heilbrigðiskerfinu,“ segir hún og leggur áherslu á afstöðu félagsins. „Þetta er í raun hagsmunamál okkar allra.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bilið breikkar mest á Íslandi Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Skorað á Þorgerði að segja af sér Flytja lög eftir heiðurslaunaþega Segir Rússa reiðubúna til samningaviðræðna Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skorað á Þorgerði að segja af sér Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Lækkar heimildir en tímalínan helst óbreytt Bilið breikkar mest á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Og hoppaðu upp í...“ Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Norðurljós í Hafnarfirði Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Hvar er draumurinn? fór beinustu leið á toppinn Hernaðarandstæðingar mótmæla harðlega Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Bilið breikkar mest á Íslandi Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Skorað á Þorgerði að segja af sér Flytja lög eftir heiðurslaunaþega Segir Rússa reiðubúna til samningaviðræðna Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hallalaus fjárlög en auknar álögur á almenning Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingum Bilið breikkar mest á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Og hoppaðu upp í...“ Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Norðurljós í Hafnarfirði Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Hvar er draumurinn? fór beinustu leið á toppinn Hernaðarandstæðingar mótmæla harðlega Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið

Share this article