Gamla laugin ehf., sem rekur samnefnda baðlaug að Flúðum í Hrunamannahreppi, hagnaðist um 318 milljónir króna árið 2025, samanborið við 322 milljóna hagnað árið 2024. Tekjur félagsins drógust saman um 7,3% á milli ára og námu 833 milljónum króna. Rekstrargjöld drógust saman um 13,5% milli ára og námu 451 milljón. EBITDA-hagnaður félagsins fór því úr 376 milljónum í 381 milljón milli ára. Laun og tengd gjöld námu 127 milljónum króna og drógust saman um 4,2% milli ára. Stöðugildum fækkaði úr 14 í 13 milli ára. Eignir Gömlu laugarinnar ehf. námu 1,4 milljörðum króna í árslok 2025 og eigið fé var um 642 milljónir. Stjórn félagsins leggur til að hagnaður ársins verði færður til hækkunar á óráðstöfuðu eigin fé meðal eigin fjár. Gamla laugin er í eigu hjónanna Björns Kjartanssonar og Agnieszku Szwaja.