Kvótasetning á grásleppu var afturkölluð með lögum sem samþykkt voru frá Alþingi fyrr í dag. Á næsta fiskveiðiári verða því veiðar á grásleppu samkvæmt sóknardagakerfi eins og þær voru allt þar til lög um kvótasetningu veiðanna var samþykkt á Alþingi sumarið 2024. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, lagði fram frumvarp um afturköllun kvótasetningarinnar á síðasta þingi og lagði frumvarpið aftur fram í október síðastliðnum. Grásleppukvóti var úthlutaður í september síðastliðnum og veiðar eru hafnar samkvæmt því kerfi. Nýju lögin taka gildi á nýju fiskveiðiári í september næstkomandi.