Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir

  • What: Report on increasing cyber threat levels in Iceland
  • Impact: National security risks are rising according to the National Cyber Security Centre
Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.3.2026 | 20:30 Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir GRD telur líklegt að dulkóðaðir stafrænir vettvangar muni hafa enn meiri áhrif á útbreiðslu ofbeldisfullrar öfgahyggju á næstu árum, einkum meðal ungs fólks. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál Höfum öll eitthvað fram að færa Ætla má að álag á Ísland sem gistiþjóð aukist » Fleiri tengdar fréttir Hættustig vegna hryðjuverkaógnar á Íslandi 2026 er óbreytt frá síðustu tveimur árum, á þriðja stigi af fimm, þó að óvissuþættir hafi aukist meðal annars vegna þróunar í alþjóðlegu öryggisumhverfi og aukinna áhrifa stafræns áróðurs. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra (GRD) sem ber heitið Innra öryggi Íslands 2026 . Hryðjuverkaógnin gegn Íslandi er áfram metin á þriðja hættustigi af fimm sem ber heitið aukin ógn . Það þýðir að ógnin telst raunhæf og krefst viðbúnaðar en að ekki hafi orðið grundvallarbreyting á heildarógnarmyndinni. Fyrsta stig, lágmarks ógn , þýðir að engar vísbendingar séu um hryðjuverkaógn, annað stig, takmörkuð ógn , þýðir að ógn geti hugsanlega verið til staðar, fjórða stig, alvarleg ógn , þýðir að þekkt ógn sé til staðar og fimmta stig, mjög alvarleg ógn , þýðir að tiltekin ógn sé til staðar. Breytt samsetning samfélagsins Hryðjuverkaógnin gegn Íslandi í dag stafar fyrst og fremst af ofbeldissinnuðum einstaklingum eða litlum laustengdum hópum. Þeir sækja hvatningu í ofbeldisfullan áróður, einkum úr hugmyndafræði pólitískrar öfgahyggju. Breytingar á íslensku samfélagi undanfarin ár koma meðal annars fram í því að tilkynningum til lögreglu sem varða trúarlega öfgahyggju hefur fjölgað. Það er mat GRD að þetta gefi til kynna að slík viðhorf og hugmyndir geti náð aukinni fótfestu hér á landi. Samsetning samfélagsins hefur einnig breyst, bæði hvað varðar bakgrunn fólks og félagslegar aðstæður, sem getur haft áhrif á samskipti, samheldni og tilfinningu fyrir öryggi innan samfélagsins. Tengsl Íslands við alvarlega atburði erlendis, þar á meðal stríð og langvinn átök, hafa einnig orðið sýnilegri, ekki síst vegna aukinnar umfjöllunar í fjölmiðlum og hraðari miðlunar upplýsinga. Allt hefur þetta leitt til flóknari aðstæðna í samfélaginu sem krefjast aukinnar athygli og vandaðra viðbragða af hálfu löggæslunnar. Breytingar á samfélaginu undanfarin ár koma meðal annars fram í því að tilkynningum sem varða trúarlega öfgahyggju hefur fjölgað. mbl.is/Eggert Jóhannesson Óvissa um hryðjuverkaógn fer vaxandi Lögreglan býr yfir upplýsingum um einstaklinga sem teljast hættulegir samfélaginu, viðkomandi hefur þá vilja eða getu til að fremja alvarleg ofbeldisverk. Slík ógn er í eðli sínu einstaklingsbundin, ófyrirsjáanleg og erfið viðureignar, enda byggir hún á hugmyndafræðilegri réttlætingu ofbeldis frekar en skipulagi. Stjórnvöldum ber að marka stefnu í öryggismálum með fullnægjandi lagasetningu. Geta lögreglu til að bregðast við hryðjuverkaógn ræðst af þeim lagaramma sem settur er um starfsemi hennar. Búi lögreglan ekki yfir fullnægjandi heimildum og úrræðum minnka líkur á að hún geti staðið undir kröfum. Í því samhengi er rétt að taka fram að munur er á íslenskri og norrænni löggjöf varðandi hryðjuverk og hryðjuverkastarfsemi. Óvissa um hryðjuverkaógn fer vaxandi, ekki síst vegna aukinna möguleika öfgahópa og hryðjuverkasamtaka til að koma áróðursboðskap á framfæri í gegnum internetið og samfélagsmiðla. Frétt af mbl.is Hættustig vegna hryðjuverkaógnar helst óbreytt Enn meiri áhrif á næstu árum „GRD hefur ítrekað bent á veikleika í hryðjuverkavörnum hér á landi og telur brýnt að skerpa á löggjöf er varða hryðjuverkastarfsemi, t.d. nákvæmari skilgreiningu á hvað telst undirbúningur til hryðjuverks og bann við vörslu á efni sem tengist hryðjuverkastarfsemi líkt og rakið er í skýrslum deildarinnar undanfarin ár,“ segir í skýrslunni. Þar er átt við hve ítarlega hefur verið fjallað um hættuna sem stafar af ofbeldisfullri hugmyndafræði. GRD sér ýmis merki um vaxandi andlýðræðislega og ofbeldisfulla öfgahyggju, þar á meðal hugmyndir um hvíta kynþáttahyggju og ýmsar samsæriskenningar sem dreifast á milli notenda á stafrænum vettvöngum. GRD telur líklegt að dulkóðaðir stafrænir vettvangar muni hafa enn meiri áhrif á útbreiðslu ofbeldisfullrar öfgahyggju á næstu árum, einkum meðal ungs fólks. Embætti ríkislögreglustjóra hefur á síðustu árum upplýst ríkisstjórn, Alþingi og almenning um mögulega hryðjuverkaógn og þá hættu sem einstaklingar geta skapað í samfélaginu. GRD hefur reglulega gefið út hættumat þar sem fjallað er um hryðjuverkaógn. Þar hefur verið bent á að íslensk lögregla búi ekki yfir sambærilegum rannsóknarheimildum og þekkjast hjá nágrannaríkjum Íslands. Þó að á síðustu misserum hafi verið stigið mikilvægt skref með styrkingu lagaumgjarðar telur ríkislögreglustjóri áfram brýnt að efla hryðjuverkavarnir frekar, í samræmi við þróun ógnarinnar í Evrópu og á Norðurlöndunum. Frétt af mbl.is Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál Höfum öll eitthvað fram að færa Ætla má að álag á Ísland sem gistiþjóð aukist » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bannað að mæta á Anfield Indland sækir fram á öllum sviðum Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Macron biðlar til Netanjahú að beita ekki landhernaði Leikmaður United í langt bann fyrir ljóta hegðun Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Er árásin á Íran brot á lögum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Bannað að mæta á Anfield Indland sækir fram á öllum sviðum Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Macron biðlar til Netanjahú að beita ekki landhernaði Leikmaður United í langt bann fyrir ljóta hegðun Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Er árásin á Íran brot á lögum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óþekktur kafbátur sökkti írönsku herskipi Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Birta myndskeið frá árásinni á herskipið Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article