Innlent | Morgunblaðið | 4.3.2026 | 22:40 Loftnetin nú endanlega á útleið Gömlu loftnetin sjást nú vart lengur og notkun þeirra mælist varla. Því hefur RÚV ákveðið að segja upp samningi við Sýn um dreifingu útvarps- og sjónvarpsefnis í gegnum loftnet. Samningurinn rennur út árið 2028. mbl.is/Guðlaugur J. Albertsson Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Miklar breytingar sem orðið hafa á sjónvarpsneyslu almennings eru ástæða þess að Ríkisútvarpið hefur ákveðið að segja upp samningi við Sýn um dreifingu á sjónvarps- og útvarpsefni stofnunarinnar í gegnum loftnet. Þetta segir Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. Morgunblaðið greindi frá því í gær að samþykkt hefði verið í stjórn RÚV að segja upp umræddum samningi en framkvæmdastjóri hjá Sýn sagði við blaðið að þar á bæ væri vonast eftir áframhaldandi samstarfi við RÚV. Ekki er útlit fyrir það miðað við svör Stefáns. Útvarpsstjóri rifjar upp að samningurinn hafi upphaflega verið gerður árið 2013 til fimmtán ára. Hann var gerður eftir útboð um dreifingu á útvarps- og sjónvarpsefni í gegnum loftnet. „Samningurinn var upphaflega gerður við Vodafone, nú Sýn. Margt hefur breyst þegar kemur að dreifingu sjónvarpsefnis á þessum árum sem liðin eru, eins og m.a. má sjá í könnun sem Fjarskiptastofa gerði á leiðum í sjónvarpsáhorfi á síðasta ári og er aðgengileg á vef Fjarskiptastofu. Samkvæmt þeim gögnum eru afar fáir að nýta sér sjónvarpsútsendingar í gegnum loftnet,“ segir Stefán en samkvæmt könnun Fjarskiptastofu eru þeir innan við 1% allra. „Langflestir nýta sér nettengdar lausnir, hvort sem það er í gegnum IPTV-þjónustu fjarskiptafyrirtækja eða streymi af RUV.is og með smáforritum, til að nálgast efni RÚV. Þessi staða og þróun er í samræmi við alþjóðlega þróun og væntingar notenda um sveigjanleika og aðgang að sjónvarpsefni hvar og hvenær sem er, þar sem sjónvarpsútsendingar í lofti sýna aðeins línulega dagskrá. Aðrar dreifileiðir bjóða upp á möguleika á hliðrun auk aðgangs að miklu efni í ólínulegri afspilun (VOD).“ Stefán var enn fremur spurður hvernig viðskilnaði við Sýn yrði háttað og hvað tæki við. „Uppsögnin mun taka gildi að tveimur árum liðnum. Á þeim tíma verður unnið að ýmsum atriðum, t.d. upplýsingamiðlun til almennings um væntanlegar breytingar. Áfram er gert ráð fyrir miðlun á útvarpi í gegnum FM-kerfið en eftir er að ákveða hvernig þeim rekstri verður háttað að tveimur árum liðnum þegar væntanleg uppsögn tekur gildi.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Loftnetin nú endanlega á útleið „Erum að fara í annað stríð“ Fyrsta tap Carricks kom gegn 10 Newcastle-mönnum Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Kanna hvort eftirlitsaðilar geti deilt húsnæði Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Efnahagsaðgerðir máske eftir páska RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Loftnetin nú endanlega á útleið „Erum að fara í annað stríð“ Fyrsta tap Carricks kom gegn 10 Newcastle-mönnum Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Birta myndskeið frá árásinni á herskipið Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Efnahagsaðgerðir máske eftir páska RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“