Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

PISA í brennidepli: Danir tala um stórslys

Read Full Article →

Erlent | mbl | 8.9.2026 | 17:46 PISA í brennidepli: Danir tala um stórslys Skjáskot af forsíðum norrænna miðla í morgun, þar sem PISA-niðurstöður voru efst á baugi. Ísland stendur þó enn verst allra Norðurlanda. Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Hver ber ábyrgðina?“ Beint: Niðurstöður PISA greindar Inga: Sárara en tárum taki Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Annan hvern dreng skortir lesskilning » Fleiri tengdar fréttir Niðurstöður fimmtán ára gamalla nemenda í Noregi í PISA-námskönnun Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD í fyrra sýna að lesskilningur, læsi á náttúruvísindi og stærðfræði er síðri en í flestum þeim löndum sem Noregur ber sig saman við á þessum vettvangi. Þetta kemur fram í umfjöllun norska dagblaðsins VG sem fjallar um málið í dag eins og fleiri norskir fjölmiðlar en 760.000 nemendur 91 þjóðar eða hagkerfis tóku þátt í könnuninni sem lögð er fyrir með þriggja ára millibili, þar af 38 aðildarþjóðir OECD. Frammistaða íslenskra nemenda hefur dalað mest allra síðustu tíu ár og situr Ísland enn neðst allra Norðurlanda í þeim þremur kjarnagreinum sem undir eru. Frétt af mbl.is Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Enn fremur greinir VG frá því að stærðfræðilæsi og lesskilningur komi áberandi verr út í könnuninni í fyrra en þeirri sem framkvæmd var árið 2022 og vitnar í Kari Nessu Nordtun menntamálaráðherra um að niðurstöðurnar dragi upp dökka mynd af norsku skólakerfi. Í Svíþjóð greinir ríkisútvarpið SVT frá því að nemendur þar hafi aldrei komið svo illa út í nokkurri PISA-könnun og nái versnandi árangur þar til allra prófaðra greina, einkum þó til lesskilnings og stærðfræði. Ísland fellur enn í PISA-könnun ársins 2025, Finnar einir halda haus á Norðurlöndum, danska ríkisútvarpið talar um stórslys, Spánverjar gráta stærðfræðiútkomu, Englendingar eru kátir, en ekki Bretar í heild, á meðan Kína og Singapúr bera höfuð og herðar yfir hátt í hundrað þátttökuríki og hagkerfi. mbl.is/Hari Hringja viðvörunarbjöllum DR í Danmörku segir slæmar niðurstöður þar í landi hringja viðvörunarbjöllum auk þess sem þær séu „hreint stórslys“ en þar, eins og í Svíþjóð, eru það lesskilningur og stærðfræði sem dala mest. Finnar einir halda höfði af öllum Norðurlandaþjóðunum þótt nemendur þar í landi komi slakar út í öllu þrennu nú en 2022, mest hrun þó í lestri, og tekur fjölmiðillinn Helsinki Times fram að þrátt fyrir verri útkomu sé Finnland enn yfir meðaltali OECD á öllum vígstöðvum með 474 stig, sextán stigum lakari útkomu en 2022 og deili sautjánda sætinu með Ítölum. Bretar eru nokkuð kátir og segir ríkisútvarp þeirra, BBC, að England hækki sig í öllum greinum á meðan Skotland og Wales lækki sig í lestri og stærðfræði sem sé á niðurleið hjá öllum Bretaveldisþjóðum nema Englendingum. Náttúruvísindi séu hins vegar á uppleið hjá þeim öllum og mesta bætingin á Englandi. Segir BBC nemendur glata hæfninni sem mestu skipti á gervigreindaröld, svo sem að geta á gagnrýninn hátt metið upplýsingar úr ólíkum áttum, fjöldi nemenda sem hraðlesi texta og gefi skjót en röng svör tvöfaldist nánast milli áranna 2018 og 2025. Frétt af mbl.is Inga: Sárara en tárum taki Spánverjar í frjálsu stærðfræðifalli Spænska dagblaðið El País segir prófaða nemendur landsins hrynja í einkunn í stærðfræði og sé niðurstaðan þar sú versta í sögu landsins í PISA-rannsóknum, með sextán stiga lækkun, þótt hún sé ekki jafn slæm og 23 stiga lækkun í lesskilningi og átta í náttúruvísindum. Í Þýskalandi segir Deutsche Welle frá því að fyrsta PISA-áfallið þar hafi orðið í fyrstu PISA-könnuninni árið 2000 sem hafi þó bliknað við hlið niðurstaðnanna 2022 og 2025 þar sem nýjum lægðum hefði verið náð með lækkun um fimmtán stig í lesskilningi, ellefu í stærðfræði og sjö í náttúruvísindum. Tekur fjölmiðillinn það fram að Asíulönd sitji í sex efstu sætunum hvað lesskilning snertir en sjálft vermi Þýskaland 24. sætið á frammistöðulistanum. Frétt af mbl.is Annan hvern dreng skortir lesskilning Menntakerfin sem kunna að undirbúa sína nemendur Singapúr og Kína eru toppþjóðirnar í PISA-könnuninni, í öllum þremur greinum, en Kína ofar í stærðfræði og náttúrufræði á meðan Singapúr hefur vinninginn í lesskilningi. Um þetta fjallar The Straits Times sem segir niðurstöðuna nú sýna að í þessum löndum séu menntakerfi sem kunni að búa nemendur sína undir framtíðina. Nemendur í Singapúr hafi verið sjónarmun neðar en Kínverjar í nýrri könnunargrein innan stærðfræði, lausna á flóknum vandamálum sem krefjist þess að brjóta vandamál verkefnisins til mergjar og hanna algóritma til lausnar raunverulegra vandamála á þessu sviði. VG SVT DR Helsinki Times BBC El País Deutsche Welle The Straits Times Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Hver ber ábyrgðina?“ Beint: Niðurstöður PISA greindar Inga: Sárara en tárum taki Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Annan hvern dreng skortir lesskilning » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » PISA í brennidepli: Danir tala um stórslys Leiga megi aðeins hækka einu sinni á ári Eyjamenn styrkja sig Sækja um starf forstöðumanns Spánverji á óskalista Manchester City Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þórunn: Mál að linni Tæp 60% bóta fara til útlendinga PISA í brennidepli: Danir tala um stórslys Höggvið á rafmagnshnút, Fljótagöng og sanngirnisbætur Mest lesið Í gær Í vikunni Loka fyrir brottfarir frá Heathrow og Gatwick Rússar hefja árásir í höfuðborginni á ný Grunaður um fjölmörg skemmdarverk Færsla Trumps „algjörlega óviðeigandi“ Segir Rússa reiðubúna til samningaviðræðna Trump sýnir Ísland sem hluta af Bandaríkjunum Spænskum vélhjólamönnum settar reglur Enga áhrifavalda við jarðarför konungs Áttu „virkilega hreinskilið" samtal 17 milljarðar frá Bretum Trump sýnir Ísland sem hluta af Bandaríkjunum Merz segist vera í áfalli Fimm látnir eftir að flugvél Amazon fór út af braut Ellefu fjallgöngumenn fórust í snjóflóði Sex börn fórust í eldsvoða Segir þetta upphafið að raunverulegu stríði Fagnar sigri AfD: „Við munum endurheimta landið okkar“ „Ég er góður gaur!“ Doktorsnemi og raðnauðgari gæti hlotið nýjan dóm Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Seðlabankastjóri sendir út aðvörun Sprengja sprakk við orkuver í Þýskalandi Loka fyrir brottfarir frá Heathrow og Gatwick Trump sýnir Ísland sem hluta af Bandaríkjunum Trump: Evrópubúar endurgreiði fyrir aðstoðina Grunur um sjö hæða rússneska njósnamiðstöð í Berlín Fundu 163 börn sem var saknað í stórri lögregluaðgerð Þýskur kafbátur háskalegur á ný Mette verður fjarverandi við embættistöku Hákonar Fimm látnir eftir að flugvél Amazon fór út af braut Nýjast á mbl.is » PISA í brennidepli: Danir tala um stórslys Leiga megi aðeins hækka einu sinni á ári Eyjamenn styrkja sig Sækja um starf forstöðumanns Spánverji á óskalista Manchester City Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tapa 100 milljónum á þremur árum Reyna að fegra sláandi niðurstöður Höggvið á rafmagnshnút, Fljótagöng og sanngirnisbætur Þórunn: Mál að linni Mest lesið Í gær Í vikunni Loka fyrir brottfarir frá Heathrow og Gatwick Rússar hefja árásir í höfuðborginni á ný Grunaður um fjölmörg skemmdarverk Færsla Trumps „algjörlega óviðeigandi“ Segir Rússa reiðubúna til samningaviðræðna Trump sýnir Ísland sem hluta af Bandaríkjunum Spænskum vélhjólamönnum settar reglur Enga áhrifavalda við jarðarför konungs Áttu „virkilega hreinskilið" samtal 17 milljarðar frá Bretum Trump sýnir Ísland sem hluta af Bandaríkjunum Merz segist vera í áfalli Fimm látnir eftir að flugvél Amazon fór út af braut Ellefu fjallgöngumenn fórust í snjóflóði Sex börn fórust í eldsvoða Segir þetta upphafið að raunverulegu stríði Fagnar sigri AfD: „Við munum endurheimta landið okkar“ „Ég er góður gaur!“ Doktorsnemi og raðnauðgari gæti hlotið nýjan dóm Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Seðlabankastjóri sendir út aðvörun Sprengja sprakk við orkuver í Þýskalandi Loka fyrir brottfarir frá Heathrow og Gatwick Trump sýnir Ísland sem hluta af Bandaríkjunum Trump: Evrópubúar endurgreiði fyrir aðstoðina Grunur um sjö hæða rússneska njósnamiðstöð í Berlín Fundu 163 börn sem var saknað í stórri lögregluaðgerð Þýskur kafbátur háskalegur á ný Mette verður fjarverandi við embættistöku Hákonar Fimm látnir eftir að flugvél Amazon fór út af braut

Share this article