Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Reyna að fegra sláandi niðurstöður

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.9.2026 | 9:55 Reyna að fegra sláandi niðurstöður Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Annan hvern dreng skortir lesskilning Bilið breikkar mest á Íslandi Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Niðurstöður PISA birtar á morgun Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ » Fleiri tengdar fréttir Um 44 prósent nemenda í tíunda bekk ná ekki grunnviðmiði í lesskilningi samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA-könnunar sem lögð var fyrir á síðasta ári, en niðurstöðurnar voru birtar nú fyrir stundu. Könnunin er lögð fyrir á þriggja ára fresti og reynir á getu og hæfni nemenda í lesskilningi, náttúruvísindum og stærðfræði. Árangri íslenskra nemenda hrakar í lesskilningi á milli kannana eins og hefur verið raunin frá árinu 2009, en ekkert land hefur fallið jafn mikið á síðastliðnum áratug og Ísland. Þá eru íslensk börn eru töluvert undir meðaltali OECD-ríkja þar sem 69 prósent barna ná grunnviðmiðinu, samanborið við 56 prósent íslenskra barna. Frétt af mbl.is Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Niðurstöður PISA voru kynntar í dag og þróunin síðustu tíu ár er verst á Íslandi. mbl.is/Árni Sæberg Hljótum að geta komist að samkomulagi Sigríður Ólafsdóttir, læsisfræðingur og dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir yfirvöld gjörn á að fegra niðurstöður PISA-kannana hvað varðar námsárangur með því til dæmis að draga fram að börnunum líði vel. „Við hljótum að geta komist að samkomulagi um að það skipti máli að kenna krökkunum að lesa bókstafi, það var nú upphaflega hlutverk skólans að kenna að lesa. Ég held að við getum ekki tekið það út fyrir sviga, því það stendur allt og fellur með því. Það er grunnurinn,“ segir Sigríður. Hún er gestur Dagmála í dag ásamt Hauki Arasyni, sem einnig er dósent við menntavísindasvið háskólans. Saman fara þau yfir niðurstöður PISA-könnunarinnar og hvað hægt er að gera til að sporna við þessari neikvæðu þróun. Frétt af mbl.is Bilið breikkar mest á Íslandi Lykilatriði fyrir lýðræðisþjóðfélag Sigríður segir að lesskilningur sé miklu meira en bara að læra og kunna að lesa, og PISA-prófin reyni á töluvert meira en það. Góður lesskilningur sé mikilvægur til geta átt í rökræðum og tekið upplýstar ákvarðanir. Hún vísar til þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok ágúst þegar Íslendingar þurftu að taka upplýsta ákvörðun hvort þeir vildu halda áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. „Þá þurftum við virkilega að iðka djúpan lesskilning og rökræða við fólkið sem var andstætt okkur. Þetta var engin smá áskorun og það er það sem PISA mælir, og þetta er lykilatriði fyrir lýðræðisþjóðfélag.“ Frétt af mbl.is Annan hvern dreng skortir lesskilning Stendur allt og fellur með íslenskunni Sigríður rifjar upp umræðuna eftir að sláandi niðurstöður lágu fyrir úr PISA-könnuninni árið 2022, þar sem Ísland var í frjálsu falli og hafði aldrei fallið jafn mikið á milli kannanna. „Við gátum ekki einu sinni verið sammála um að þetta væri alvarlegt. Við þurftum að draga fram að krökkunum liði vel. Það er eins og læknir með sjúkling með veikt hjarta sem er um það bil að stoppa, en hann er með svo heilbrigð lungu.“ Sigríður segir að auðvitað verði að horfa á börnin heildstætt í skólanum. „En við skulum horfa á skólastarf því það er okkar sérgrein. Það stendur allt og fellur með íslenskunni, í öllum námsgreinum á öllum skólastigum því við erum að nota íslenskuna.“ Horfðu eða hlustaðu á þáttinn í heild sinni: Sérfræðingar rýna í nýjar niðurstöður PISA-könnunar Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Annan hvern dreng skortir lesskilning Bilið breikkar mest á Íslandi Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Niðurstöður PISA birtar á morgun Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Reyna að fegra sláandi niðurstöður Liverpool skrifar undir verðmætasta samning sögunnar Spænskum vélhjólamönnum settar reglur Þrír ákærðir fyrir manndrápstilraun Landsliðsmaður drullar yfir ríkisstjórnina Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Reyna að fegra sláandi niðurstöður Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Bilið breikkar mest á Íslandi Hækkanir skella á sjúklingum Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september „Og hoppaðu upp í...“ Sól um land allt og hitinn gæti náð 18 stigum Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Reyna að fegra sláandi niðurstöður Liverpool skrifar undir verðmætasta samning sögunnar Spænskum vélhjólamönnum settar reglur Þrír ákærðir fyrir manndrápstilraun Landsliðsmaður drullar yfir ríkisstjórnina Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Aðkoma ríkisins ekki á kostnað hallaleysis „Gríðarleg vonbrigði“ fyrir ferðaþjónustuna Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Bilið breikkar mest á Íslandi Hækkanir skella á sjúklingum Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september „Og hoppaðu upp í...“ Sól um land allt og hitinn gæti náð 18 stigum Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið

Share this article