Innlent | mbl | 9.9.2026 | 10:46 Bjarnargreiði við börnin Dr. Elín Þöll Þórðardóttir hefur rannsakað og fjallað um tvítyngi í fjölda ára. mbl.is/Kristinn Magnússon Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Ísland skrapar botninn í nýrri könnun „Læsi er ekki áhugamál“ Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn Aðeins Norður-Makedónía neðar en Ísland Drengir þurfi að sjá hvað þeir græða á lestrinum » Fleiri tengdar fréttir „Það er misskilningur að við séum að hjálpa börnunum með því að vera með stefnuleysi í skólunum. Við erum að eyðileggja fyrir þeim. Þetta er bjarnargreiði við þau.“ Þetta segir Elín Þöll Þórðardóttir, prófessor í málvísindum við McGill-háskóla í Montréal í Kanada, um málumhverfi barna í íslenskum grunn- og leikskólum í samtali við mbl.is. Elín segir að lengja þurfi skóladaginn, auka íslenskukennslu þar og stuðla að því að hún sé í forgrunni. Aðspurð segir hún nýútkomnar niðurstöður PISA-rannsóknarinnar ekki koma á óvart. Elín hefur rannsakað málkunnáttu tvítyngdra barna á Íslandi í fjölda ára. Bilið í námsframmistöðu hefur aukist milli nemenda sem eru íslenskir af uppruna og þeirra sem eru af erlendu bergi brotnir. Samkvæmt niðurstöðum PISA-könnunarinnar hefur bilið breikkað mest allra þjóða á Íslandi. Í náttúruvísindahluta prófsins, sem lagt var fyrir 15 ára nemendur, var til að mynda talsverður munur á frammistöðunni. Nemendur af erlendum uppruna hlutu að meðaltali 390 stig miðað við 455 stig hjá þeim nemendum sem eiga íslenska foreldra. Meðaltal OECD-ríkjanna var 497 stig. Frétt af mbl.is Bilið breikkar mest á Íslandi Frétt af mbl.is Börnin koma ósjálfbjarga úr íslenskuverum Lengja þarf skóladaginn til þess að erlend börn eyði lengri tíma í íslensku málumhverfi að sögn Elínar. mbl.is/Hari Skóladagurinn of stuttur Elín telur að lengja þurfi skóladaginn til að börnin séu lengur í íslensku málumhverfi. Þá verði líka að vinna að því með markvissari hætti að íslenska sé þar í fyrirrúmi. Helmingur erlendra barna á Íslandi nái ágætum tökum á tungumálinu en hinn helmingurinn alls ekki. Á Íslandi sé staðan mun verri en í öðrum löndum. „Ég er núna með rannsókn í gangi þar sem ég er að reyna að finna út af hverju. Af hverju fara sum börnin aðra leiðina og önnur hina leiðina þegar þau ganga í sama skólann? Ég hef haldið því fram við stjórnvöld, í blöðunum og á ýmsum vettvangi á Íslandi að þetta tengist því að skóladagurinn sé of stuttur. Við vitum það af rannsóknum að það þarf ákveðinn tíma til að læra eitt tungumál. Það þarf að vera yfir 40% af vökustundum manns þegar maður er barn. Skóladagurinn á Íslandi nær þessu bara ekki, hann er of stuttur til þess,“ segir hún. Frétt af mbl.is Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Frétt af mbl.is Enginn mætti frá ríkisstjórninni Ómarkviss stefna í málum tvítyngdra barna í skólunum hjálpar þeim ekki segir Elín. mbl.is/Karítas Fótboltaæfingar á ensku „Það gerir ekkert til þó að í frímínútum séu töluð önnur mál, það er ekki nema gott en í kennslustundum verður að vera meiri áhersla á að íslenska sé töluð. Annars náum við þessu bara ekki,“ segir Elín. Spurð að því hvort frístundastarf geti vegið upp á móti stuttum skóladegi segir Elín að það fari að hluta til fram á ensku hér á landi. „Það eru krakkar sem fara á fótboltaæfingar á ensku og það er látið viðgangast,“ segir Elín ómyrk í máli. Frétt af mbl.is Reyna að fegra sláandi niðurstöður Sofið á verðinum „Við erum of feimin við að taka stjórn á málum á málumhverfinu hér á landi eða þá að okkur finnst það ekki við hæfi af einhverjum ástæðum.“ Elín nefnir að á Íslandi hafi verið farin sú leið sem kölluð er „virkt tvítyngi“ til þess að halda á lofti móðurmálum barnanna í skólunum. Það sé að mörgu leyti ágæt leið fyrir börn til þess að átta sig á tungumálaflórunni og læra að bera virðingu fyrir henni. Íslenskan verði þó að vera fyrirferðarmeiri. „Við höldum að við séum að gera þessum börnum gott með því að troða ekki upp á þau íslensku, en í raun og veru er lykilatriði fyrir fólk sem elst upp á Íslandi og ætlar að búa hérna áfram, að það læri íslensku,“ segir Elín. „Við höfum sofið á verðinum og líka haldið að þetta fari öðruvísi fram,“ svarar hún spurð um hvort stjórnvöld hafi ekki gripið inn í og sofið á verðinum. Elín segir það ekki standast skoðun að börn læri íslensku í gegnum móðurmál sitt. Rannsóknir sýni annað. Þau verði að læra íslensku í gegnum íslensku. Stefnubreyting verði að eiga sér stað. Elín Þöll Þórðardóttir er prófessor í talmeinafræði við McGill-háskólann í Montreal í Kanada. mbl.is/Kristinn Magnússon Kallar eftir markvissari aðgerðum „Það verða síðan að taka við einhverjar aðgerðir sem beinast að því að hjálpa þeim að læra íslensku. Þá líður þeim betur og vilja frekar taka þátt í tómstundastarfi sem er á íslensku og þá verður námsárangurinn betri,“ segir hún. „Málkunnáttan flyst ekki á milli tungumála. Það verður að vera ákveðin ástundun á hverju tungumáli og til þess að þetta náist á Íslandi þarf meiri tíma.“ Elín segir mjög gott að börn af erlendum uppruna tali móðurmálið heima hjá sér. „Við eigum aldrei að stuðla að því að þau geri það ekki, en ef foreldrarnir geta ekki hjálpað þeim með íslensk heimaverkefni þá ættu skólarnir hugsanlega að grípa inn í,“ segir Elín og nefnir til dæmis heimavinnuhjálp eftir skóla. Hún segir ýmislegt vera í boði fyrir börnin eins og þjónustuver og fleira. Viðverutíminn sé þó aðalatriðið. Það sýni rannsóknir, meðal annars hennar eigin. Æfingin í tungumálinu skipti öllu máli. Margborgi sig að bregðast við „Ég er búin að segja það í mörg ár að það þurfi að gera eitthvað ofsalega róttækt. Það kostar peninga. Við erum alltaf að tala um þetta og sjáum það líka í talmeinafræði með íslenska krakka, sem eru með málþroskaraskanir, að það margborgar sig að grípa inn í eins fljótt og hægt er til þess að börn missi ekki fótanna.“ Elín bendir á að ef ekki sé gripið inn í snemma ágerist vandi barnanna eftir því sem þau eldast og málfarið flækist þegar farið er upp um bekki. Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Ísland skrapar botninn í nýrri könnun „Læsi er ekki áhugamál“ Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn Aðeins Norður-Makedónía neðar en Ísland Drengir þurfi að sjá hvað þeir græða á lestrinum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kóngafólk gekk á eftir kistunni Aldrei séð annan eins markaskorara Bjarnargreiði við börnin „Gæti drepið okkur öll fyrir lok áratugarins“ Dagbjört logaði í rauðum rósum Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kerfisbundinn vandi í skólakerfi jöfnuðar Þykk þingmálaskrá en sumt vantar „Gæti drepið okkur öll fyrir lok áratugarins“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Biður Loga afsökunar Andlát: Christian Roth Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Kóngafólk gekk á eftir kistunni Aldrei séð annan eins markaskorara Bjarnargreiði við börnin „Gæti drepið okkur öll fyrir lok áratugarins“ Dagbjört logaði í rauðum rósum Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Þetta boðar Inga til að bæta árangurinn í PISA Aukin skattbyrði á íbúðaframkvæmdir Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Biður Loga afsökunar Andlát: Christian Roth Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%