Innlent | mbl | 9.9.2026 | 12:10 „Hann er alltaf með þennan tannbursta“ Mohamed Sayidali Ahmed og Kareem M. M. Abufarhah í dómssal í morgun. mbl.is/Eyór Árnason. Setja bókamerki Tengdar fréttir Árás á Höfðatorgi Finnur ekki héraðsdóm Kannast ekkert við að hafa séð neitt ofbeldi Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Fá ekki afhent rafræn gögn í Höfðatorgsmálinu Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf » Fleiri tengdar fréttir Vitnaleiðslur í Höfðatorgsmálinu svokallaða, sem snýst um átök í bílakjallara undir Höfðatorgi, gengu að miklu leyti út á að staðsetja Kareem M. M. Abufarhah í bílstjórasæti bifreiðar sem ekið var hratt á brotaþola. Við ákeyrsluna kastaðist brotaþoli upp á húdd hvítrar Land Rover-bifreiðar og þaðan nokkra metra niður á steinsteypt gólf bílakjallarans. Enginn þeirra sem gáfu skýrslu fyrir dómi virtist þó vilja eða geta staðfest að Kareem hefði verið undir stýri þegar ekið var á manninn. Vitni staðfestu hins vegar að hann hefði verið undir stýri bifreiðarinnar bæði fyrir og eftir ákeyrsluna. Málsvörn Kareems er á þá leið að hann hafi skipt um sæti við annan mann áður en bifreiðinni var ekið á brotaþola. Frétt af mbl.is Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Á myndbandsupptöku má sjá bifreiðina stöðvaða skömmu áður en ekið er á manninn. Kareem segir að þá hafi verið skipt um ökumann án þess þó að hann hafi sjálfur yfirgefið bifreiðina. Hann hefur ekki getað nafngreint þann sem hann segir hafa tekið við akstrinum. Enginn staðfestir Kareem sem ökumann Nóg var að gera hjá arabískum túlki sem þýddi spurningar saksóknara fyrir vitni. Hvert vitnið á fætur öðru sagðist ýmist ekki hafa séð eða ekki vitað hver ók bifreiðinni þegar ekið var á brotaþola. Þá sögðust vitni ekki hafa séð hvort einhver hefði borið vopn eða orðið vitni að því þegar brotaþoli var stunginn. Alltaf með „tannburstann“ Eitt vitni var spurt sérstaklega út í vopnaburð og hvort einn ákærðu, Mohamed Sayidali Ahmed, hefði verið með vopn á sér umrætt kvöld. Vitnið, sem sagðist vera vinur Mohameds, kvaðst ekki vita til þess að hann hefði verið með hníf. Mohamed hefði hins vegar verið með tannbursta. „Hann var alltaf með tannburstann,“ sagði vitnið um Mohamed, sem er ákærður fyrir að hafa stungið brotaþola í bílakjallaranum. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Mohameds, spurði vitnið þá hvort það ætti við svokallaðan afrískan tannbursta. „Þetta er ekki bara tannbursti sem notaður er í Afríku, heldur líka í Sádi-Arabíu. Hann er alltaf með þennan tannbursta. Gefur honum comfort,“ sagði vitnið. Segir Kareem hafa skipt um sæti Sama vitni sagði jafnframt að Kareem hefði skipt úr bílstjórasætinu við annan mann áður en bifreiðinni var ekið á brotaþola. Vitnið kvaðst ekki vita hver sá maður væri. Sjálft sagðist vitnið hafa yfirgefið bifreiðina áður en ekið var á brotaþola. Annað vitni segir hins vegar að Kareem hafi verið undir stýri skömmu eftir að bíllinn varð kyrrstæður. Sá maður varð ekki vitni að ákeyrslunni. Tengdar fréttir Árás á Höfðatorgi Finnur ekki héraðsdóm Kannast ekkert við að hafa séð neitt ofbeldi Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Fá ekki afhent rafræn gögn í Höfðatorgsmálinu Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hátíð sem keyrir félagslífið strax í gang „Hann er alltaf með þennan tannbursta“ Tveir alvarlega slasaðir eftir sprengingu í Sviss Mjög gagnrýninn á KSÍ Yfirheyrslum „hugsanlega lokið“ Umræðan Lífið er kokteilsósa Breyttur heimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hann er alltaf með þennan tannbursta“ Grafalvarleg og sorgleg staða SÁÁ Kerfisbundinn vandi í skólakerfi jöfnuðar Bjarnargreiði við börnin Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Biður Loga afsökunar Andlát: Christian Roth Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Hátíð sem keyrir félagslífið strax í gang „Hann er alltaf með þennan tannbursta“ Tveir alvarlega slasaðir eftir sprengingu í Sviss Mjög gagnrýninn á KSÍ Yfirheyrslum „hugsanlega lokið“ Umræðan Lífið er kokteilsósa Breyttur heimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Sonja lagði rós á kistu Haraldar Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Biður Loga afsökunar Andlát: Christian Roth Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%