Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Dressmann hagnast um 94 milljónir

  • What: Dressmann reports a profit of 94 million ISK in Iceland.
  • Impact: No direct technical impact on users.
Read Full Article →

Dressmann á Íslandi hagnaðist um 94 milljónir króna, samanborið við 97 milljóna króna hagnað árið áður. Tekjur félagsins, sem rekur verslanir í Kringlunni, Smáralind og á Glerártorgi á Akureyri, jukust um 1,8% milli ára og námu 757 milljónum króna. Rekstrargjöld námu 682 milljónum og jukust um 2,1% milli ára. Þar af voru laun og tengd gjöld 183 milljónir, sem samsvarar 7,4% aukningu milli ára. Ársverk voru 13,6, samanborið við 12,6 árið áður. Rekstrarhagnaður (EBIT) stóð nánast í stað milli ára og nam 75 milljónum króna. Eignir Dressmann á Íslandi námu 848 milljónum króna í árslok 2025, samanborið við 761 milljón árið áður. Eigið fé var um 752 milljónir. Dressmann á Íslandi er í eigu Dressmann AS í Noregi.

Share this article