Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri DS Lausna, er skattakóngur Íslands ársins 2025. Hann greiddi 942 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt í fyrra og námu fjármagnstekjur hans því tæplega 4,3 milljörðum króna samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundarréttargreiðslur. Daníel stofnaði fyrirtækið DS Lausnir, sem sérhæfir sig í sölu, útleigu og þjónustu byggingakrana, árið 2002 og átti 100% hlut í fyrirtækinu þar til að Fagkaup keypti 70% hlut í fyrra. Samkeppniseftirlitið samþykkti kaupin í mars 2025. Sjá einnig Fagkaup að kaupa 70% í DS Lausnum DS Lausnir veltu 2,5 milljörðum króna árið 2025 og nam hagnaður ársins 581 milljón króna, samanborið við 491 milljón árið 2024. Eignir voru bókfærðar á 3,5 milljarða í árslok 2025 og nam eigið fé 3 milljörðum. Ikea-bærðurnir ofarlega Í heild voru tólf Íslendingar með meira en milljarð í fjármagnstekjur í fyrra. Sigurður Gísli Pálmason, fyrrverandi eigandi Ikea á Íslandi og í Eystrasaltsríkjunum, greiddi 696 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt í fyrra og námu fjármagnstekjur hans því um 3,2 milljörðum króna. Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir seldu reksturinn í Eistlandi, Lettlandi og Litháen árið 2024. Þá seldi Sigurður Gísli hlut sinn í Ikea á Íslandi til Jóns. Fjármagnstekjur Jóns Pálmasonar námu tæplega 1,3 milljörðum. Sjá einnig Hagnast um 32 milljarða í kjölfar sölu Jóhannes R Jóhannesson, sem var um tíma framkvæmdastjóri Ikea í Eystrasaltinu, átti sömuleiðis hlut og er hann í þriðja sæti á listanum með 1,8 milljarða í fjármagnstekjur.