Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ein þjóð í einu landi“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 9.9.2026 | 19:59 „Ein þjóð í einu landi“ mbl.is/Karítas Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Sagði ESB að aðildarviðræður hefjist ekki á ný Halla: Enginn á einkarétt á ástinni til Íslands „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Kos segir 47% styðja aðild » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Beint: Stefnuræða forsætisráðherra Þykk þingmálaskrá en sumt vantar Vetur kemur á Alþingi Þórunn: Mál að linni Halla: Enginn á einkarétt á ástinni til Íslands » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína á Alþingi nú fyrir skömmu. Í ræðu sinni sagði ráðherrann að ríkisstjórnin hafi sagst ætla að laga Ísland. „Við erum að laga Ísland. Með því að laga fyrst grunninn. Það tekur tíma en það er að takast – og á þeim grunni getum við síðan loksins í sameiningu litið til lengri framtíðar fyrir landið okkar.“ Að vinna að því að laga Ísland Kristrún taldi upp þær breytingar sem ríkisstjórn hennar hefur staðið fyrir og þau verk sem hún sagði sýna fram á að ríkisstjórnin væri að vinna að því að laga Ísland. „Virðing endurheimt á efri árum. Fleiri heimilislæknar og betra heilbrigðiskerfi. Lægra orkuverð í dreifbýli. Lægra húsnæðisverð og fleiri fyrstu kaupendur. Innviðauppbygging um land allt. Þetta eru breytingar sem bæta daglegt líf fólks um land allt á hverjum einasta degi og styrkja Ísland.“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld. mbl.is/Karítas Sagði hún þessu hafa verið áorkað á skömmum tíma eftir erfið ár, heimsfaraldur og jarðhræringar sem og stöðnun í stjórnmálum sem ríkti um nokkurra ára skeið og eignaði árangurinn allri þjóðinni. „Það er ekki langt um liðið. Leiðum hugann að stöðunni eins og hún var orðin árið 2024 og skoðum þær breytingar sem orðið hafa til batnaðar fyrir venjulegt fólk.“ Frétt af mbl.is Kristrún: Fáheyrt að vinna svona hratt Ekki betri staða það sem af er öldinni Kristrún sagði ríkisstjórnina meðal annars hafa snúið við þróun í þjónustu við eldra fólk. Vísaði hún til þess að staðan á Landspítala þegar kæmi að fólki sem biði eftir hjúkrunarrými hefði ekki verið betri það sem af er þessari öld. Þá stunduðu nú þrisvar sinnum fleiri sérnám í heimilislækningum en fyrir tíu árum og tekist hefði að fjölga þeim sem hefðu fastan heimilislækni innan viðkvæmustu hópanna. Hún nefndi einnig lögfestingu á hækkun lífeyris frá Tryggingastofnun í takt við hækkun launa og sagði um breytingu að ræða sem um muni fyrir fjölda fólks sem hefur misst starfsorku eða vill áhyggjulaust ævikvöld en þarf að eiga til hnífs og skeiðar, rétt eins og vinnufært fólk. Forsætisráðherra tók þá fram að raforkureikningar í dreifbýli og á köldum svæðum hefðu verið lækkaðir, sem sannarlega væri aðgerð sem um muni, ekki síst í bókhaldi bænda og fyrirtækja í dreifðum byggðum. mbl.is/Karítas Kristrún lagði mikla áherslu á uppbyggingu innviða og sagði ríkisstjórnina hafa komið Íslandi aftur á rétta braut eftir að orkumál hefðu verið stopp og viðhaldi vega ekki sinnt sem skyldi. Undirbúningsframkvæmdir vegna Fljótaganga hæfust í haust og á næsta ári yrði aftur byrjað að bora jarðgöng hér á landi. Styrk stjórn og breið sátt Í útlendingamálum sagði Kristrún ríkisstjórnina hafa endurheimt styrka stjórn og skapað breiða sátt. Sagði hún að í vetur yrði haldið áfram með heildarendurskoðun á veitingu dvalarleyfa og reglum um brottvísanir. Hún sagði þá að stjórnlausar verðhækkanir á húsnæðismarkaði hefðu verið stöðvaðar og að húsnæðisverð hafi farið lækkandi að raunvirði. Hlutfall fyrstu kaupenda væri nú það hæsta frá því fyrir efnahagshrunið árið 2008 og vanskil heimila ekki verið minni svo langt sem gögn næðu þrátt fyrir háa vexti og þráláta verðbólgu. Þá hafi kaupmáttur aukist hjá öllum tekjuhópum frá árinu 2024. Ráðherra sagði ríkisstjórn sína hafa tekið erfiðar ákvarðanir, fækkað verkefnum, ráðuneytum og ríkisstofnunum og benti á að nú hefðu verið lögð fram hallalaus fjárlög í fyrsta sinn í tæpan áratug. „Við getum betur. Hallalaus fjárlög eru nauðsynleg núllstilling í ríkisrekstrinum. Nýtt upphaf í efnahagslífi þjóðarinnar sem þingheimur allur ætti að fagna og sameinast um, þvert á flokka,“ sagði Kristrún. Hún sagði málefni barna og ungmenna verða í forgangi hjá ríkisstjórninni í vetur og boðaði meðal annars heildarendurskoðun barnaverndarlaga, skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum, fyrstu ungmennastefnu Íslands og frumvarp um 15 ára aldurstakmark á samfélagsmiðlum. Þá hyggst hún mæla fyrir frumvarpi um sanngirnisbætur til þeirra sem sætt hafa óforsvaranlegri meðferð sem börn á ábyrgð hins opinbera. Frétt af mbl.is „Við ætlum ekki að hvika frá þessu setta marki“ Þakkaði þjóðinni Kristrún þakkaði þjóðinni fyrir að svara kalli lýðræðisins með því að efna til opinnar umræðu og auka meðvitund allra um stefnu og stöðu Íslands í heiminum og sagði ljóst í sínum huga að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst hafi verið sigur fyrir lýðræðið í landinu, hvernig sem á það sé litið. Sagði hún ríkisstjórnina ekki munu hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný og, eins og mbl.is fjallaði um í morgun, hefur þeirri ákvörðun þegar verið komið skriflega á framfæri við ráðherraráð og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Þá sagði ráðherrann að með því að efna þetta loforð til þjóðarinnar, að treysta henni til að taka þessa ákvörðun, hafi stjórnvöld lagt sig fram um að græða gömul sár og efla aftur traust til íslenskra stjórnmála. Kristrún sagði að nú hafi verið mörkuð skýrari stefna fyrir Ísland til næstu ára varðandi samskipti við Evrópu og umheiminn. Passað verði upp á samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, af fullri ábyrgð og alvöru, þó að Ísland taki ekki skrefið til fullrar aðildar að Evrópusambandinu. „Nú horfum við fram á veginn. Ein þjóð í einu landi.“ Frétt af mbl.is „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Að festast ekki í pólitísku þrasi Þá hvatti hún þingheim til að festast ekki í pólitísku þrasi um fortíðina heldur taka höndum saman um framtíðina. „Við sögðumst ætla að laga Ísland. Við erum að laga Ísland. Með því að laga fyrst grunninn. Það tekur tíma en það er að takast. Og á þeim grunni getum við síðan loksins í sameiningu litið til lengri framtíðar fyrir landið okkar. Því þrátt fyrir sviptivinda í hagkerfi heimsins, sem berja nú á og berast hingað til lands, þá erum við mikils megnug. Ekki síst þegar við gætum þess, hvert og eitt, að festast ekki í pólitísku þrasi um fortíðina heldur tökum höndum saman um þá framtíð sem við berum ábyrgð á – og sköpum hana hér, á Íslandi. Ein þjóð – í einu landi. Ggerum þetta að verkmiklum vetri á Alþingi háttvirkir þingmenn – landi og þjóð til heilla.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Sagði ESB að aðildarviðræður hefjist ekki á ný Halla: Enginn á einkarétt á ástinni til Íslands „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Kos segir 47% styðja aðild » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Beint: Stefnuræða forsætisráðherra Þykk þingmálaskrá en sumt vantar Vetur kemur á Alþingi Þórunn: Mál að linni Halla: Enginn á einkarétt á ástinni til Íslands » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fimmtán íslensk mörk í Meistaradeildinni „Nú blasir við verðbólguvetur“ Aron byrjaði best Íslendinganna Þróttarar í vænlegri stöðu gegn Njarðvík Liverpool - Atlético Madrid, staðan er 2:1 Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áhugaleysi ekki skýring sem stenst „Nú blasir við verðbólguvetur“ Myndir: Kista Haraldar komin í grafhýsi Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Fimmtán íslensk mörk í Meistaradeildinni „Nú blasir við verðbólguvetur“ Aron byrjaði best Íslendinganna Þróttarar í vænlegri stöðu gegn Njarðvík Liverpool - Atlético Madrid, staðan er 2:1 Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ „Ein þjóð í einu landi“ Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Aflýsti símtali eftir að Trump fagnaði sigri Afd Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögu

Share this article