„Þetta lag samdi sig að mestu leyti sjálft, þar sem ég sat við píanóið heima í stofu og er svolítið bara eins og óður til núvitundarinnar, þessar þrjár mínútur sem maður stoppar hausinn og hlustar á umhverfið,“ segir Unnur Birna um nýja lagið. „Ég vissi um leið hver ætti að vinna þetta lag með mér og hringdi um leið í vin minn Pálma Sigurhjartarson.“ Hann fílaði lagið, stökk út í bíl og keyrði til hennar og þau útsettu það og hljóðrituðu. Unnur Birna tileinkar pabba sínum lagið og vonar að hlustendur finni fyrir núvitundinni í því. Hlustaðu á lagið When The Rain Has Gone í spilaranum hér að ofan.